| |
1. 2412015 - Fjárhagsáætlun 2024- Viðauki VI | |
Samþykkt samhljóða | Viðauki_6.pdf | | |
|
2. 2410030 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2025 | |
Til máls tóku: Björn Bjarki og Ingibjörg.
Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda á árinu 2025:
Sveitarstjórn samþykkir að útsvarshlutfall árið 2025 verði jafnt lögbundnu hámarki sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og því verði hámarkshlutfall 14,97% frá 1. janúar 2025.
Fasteignaskattur verði í samræmi við tillögu frá 329. fundi byggðarráðs eða: a) 0,50% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 umtekjustofna sveitarfélaga. b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
Staðgreiðsluafsláttur fasteignagjalda verði líkt og á árinu 2024 eða 5%
Upplýsingar Tryggingastofnunar (TR) um tekjuviðmið höfðu ekki verið birtar þegar gögn voru unnin fyrir fundinn svo viðmið fyrir afslátt af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 verða birt á heimasíðu Dalabyggðar þegar tilkynnt er um álagningu fasteignagjalda 2025. Hér er þó lagt til að hámark afsláttar elli- og örorkulífeyrisþega hækki í 85.000 kr.- fyrir árið 2025.
Byggðarráð Dalabyggðar hafði áður lagt til að álagningarhlutfall útsvars yrði 14,74% en þar var ekki reiknað með því hámarki sem samþykkt var í árslok 2023. Það er hér leiðrétt og verður að tillögu sveitarstjórnar 14,97% jafnt lögbundnu hámarki sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár fyrir geymslu að Fjósum: Gjaldskrá tekur breytingum samkv. byggingarvísitölu í september ár hvert (grunnur 2009). Byggingarvísitala í september 2024 er 193,0.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár félagsheimila: Að gjaldskrá félagsheimila fyrir 2025 taki mið af 3,9% hækkun að undanskilinni matvælavinnslu í Tjarnarlundi þar sem gjald verði óbreytt. Óbreytt gjaldskrá matvælavinnslu fylgir fundargerð.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár Auðarskóla: Að gjaldskrá Auðarskóla taki mið af 3,9% hækkun. Fæðisgjald barna í grunnskóla dettur út í samræmi við ákvörðun um fríar máltíðir í grunnskólum. Áfram verði ekkert gjald vegna leikskólapláss barna í elsta árgangi (skólahóp). Orðalagsbreytingar sbr. skipurit Auðarskóla. Vistunartíma í lengdri viðveru breytt.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár beitar- og ræktunarlands: Að gjaldskrá beitar- og ræktunarlands í eigu Dalabyggðar 2025 taki mið af 3,9% hækkun.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár hafna: Að gjaldskrá fyrir hafnir Dalabyggðar 2025 taki mið af 3,9% hækkun.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár fráveitu og rotþróa: Að flokkum stofngjalds sé breytt (vísað í stærð á tengingu í stað húsgerðar) og verð uppfært í samræmi við það. Að öðru leyti tekur gjaldskrá fráveitu og rotþróa 2025 mið af 3,9% hækkun.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár Héraðsbókasafns: Lagt til að árskort á Héraðsbókasafn Dalasýslu verði íbúum gjaldfrjálst árið 2025 en sektargjald og kostnaður við millilánasafn standi óbreytt frá fyrra ári.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár vatnsveitu: Að gjaldskrá Vatnsveitu Dalabyggðar fyrir árið 2025 útskýri betur sérstakt notkunargjald, leigugjald vatnsmæla er hækkað í samræmi við kostnað, heimæðagjald útskýrt frekar og fastagjald hækkað.
Frá 329. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár sorphirðu: Gjaldskrá fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð 2025 taki mið af breytingum í úrgangsmálum skv. lögum, nú verði greitt fast gjald og svo eftir útfærslu á ílátum. Í stað heildargjalds fyrir sorphirðu annars vegar heimila og hins vegar frístundahúsa hefur gjaldskráin verið sundurliðuð í fast gjald fyrir umsýslu og rekstur söfnunarsvæðis og íláta- og grenndarstöðvagjöld. Umsýslugjaldi bætt við. Gjaldskyldur úrgangur á söfnunarstöð tekur almenna hækkun.
Frá 330. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár um þjónustu skrifstofu Dalabyggðar: Að gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar taki mið af sambærilegum kostnaði í gjaldskrá Auðarskóla.
Frá 330. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár fyrir söfnun og eyðingu dýraleyfa: Að gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð 2025 taki mið af 13,5% hækkun á gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands.
Frá 330. fundi byggðarráðs er eftirfarandi lagt til vegna gjaldskrár fyrir byggingar- og framkvæmdarleyfisgjöld og þjónustu: Að gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, byggingarheimildar-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Dalabyggð fyrir árið 2025 taki mið af byggingarvísitölu í nóvember 2024 (grunni 2009) sem er 193,2 stig.
Þá er tímagjald og afgreiðslugjald hækkað til samræmis við raunkostnað og kostnaður vegna framkvæmdaleyfis einfaldaður.
Á 330. fundi byggðarráðs var lögð fram og samþykkt gjaldskrá fyrir hitaveitu á Laugum.
Lagt til að afgreiða allar gjaldskrár saman. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrár Dalabyggðar fyrir 2025 lagðar fram til afgreiðslu. Samþykkt samhljóða. | Gjaldskrá - fasteignagjöld 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Fjósar 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Félagsheimila 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Tjarnarlundur - lítil matvælavinnsla - tilb..pdf | Gjaldskrá - Auðarskóli 2025 - tilb.pdf | Gjaldskrá - Leiga beitar- og ræktunarlands 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - hafnir 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - fráveitugjald og rotþrær 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Sorp Úrgangur 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Héraðsbókasafn 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Vatnsveita 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Byggingarleyfis 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - dýraleifar 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá - Þjónusta skrifstofu 2025 - tilb..pdf | Gjaldskrá Dalaveitur_Hitaveita Laugum_2024 - tilb..pdf | | |
|
3. 2410029 - Samþykkt um gatnagerðargjöld í Dalabyggð | |
Til máls tók: Björn Bjarki.
Í fyrri samþykkt var miðað við rúmmetra í áætlun gatnagerðargjalds en það á ekki lengur við og hefur verið breytt í fermetra. Bætt var við gjaldstofni gatnagerðargjalds, skýrt betur hvað er undanþegið gatnagerðargjaldi ásamt því að uppfæra greiðslutilhögun og endurgreiðslu gatnagerðargjalds.
Samþykkt samhljóða. | SAMÞYKKT um gatnagerðargjald í Dalabyggð_tilb..pdf | | |
|
4. 2407002 - Fjárhagsáætlun 2025-2028 | |
Til máls tóku: Björn Bjarki, Ingibjörg, Einar.
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á árinu 2025 er áætluð jákvæð um 224,6 milljónir króna og rekstrarniðurstaða A-hluta jákvæð um 219,5 milljónir króna.
Heildareignir samstæðunnar eru áætlaðar um 2,86 milljarður króna í árslok 2025, skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 1,564 milljarðar króna og eigið fé um 1276 milljónir króna.
Áætlað veltufé frá rekstri A-hluta er um 180,1 milljónir króna eða 14,3% af heildartekjum A-hluta og samantekið fyrir A- og B-hluta 192,4 milljónir króna, eða um 15,3% af heildartekjum.
Áætlaðar fjárfestingar á árinu 2025 eru samtals að fjárhæð 1000 milljónir króna og verður varið til uppbyggingar íþróttamannvirkja.
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025-2028 lögð fram til afgreiðslu við seinni umræðu.
Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025-2028 samþykkt samhljóða.
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir að sveitarstjóra verði falið að hefja undirbúning að frekari sölu eigna Dalabyggðar á árinu 2025. Þær eignir sem um er að ræða eru t.a.m. félagsheimilið Tjarnarlundur, sem byggðarráð hefur þegar fjallað um á fundi sl. sumar, félagsheimilið Árblik og sumarhúsalóðir að Laugum í Sælingsdal svo dæmi séu tekin. Horft verði til þeirra skylduverkefna sem sveitarfélögum ber að sinna við ákvörðun um eignarhald og sölu einstakra eigna út úr eignasafni sveitarfélagsins. Sveitarstjóri hafi samráð við byggðarráð og meðeigendur Dalabyggðar þar sem við á varðandi ferli máls hvað einstaka eignir varðar.
Samþykkt samhljóða. | Fjárhagsáætlun 2025-2028 Síðari umræða..pdf | Greinargerð með fjárhagsáætlun 2025-2028..pdf | Íbúakynning_3_desember_2024..pdf | | |
|
5. 2411020 - Stafræn húsnæðisáætlun 2024-2034 | |
Til máls tók: Björn Bjarki.
Í áætluninni er að finna mannfjöldaspá, lýsingu á atvinnuástandi, íbúðaþörf, markmið um íbúðauppbyggingu og áætlaða þörf, upplýsingar um þjónustu og innviði, markmið í lóðamálum og ýmiskonar samanburð. Það sem er m.a. áhugavert og kemur fram í áætluninni og rétt að vekja athygli á er að það kostar aðeins 10milljónir í opinber gjöld (byggingarleyfi, lóðaverð, gatnagerð og tengigjöld við veitur) að byggja þriggja íbúða raðhús (alls 375,4fm) í Búðardal.
Húsnæðisáætlun Dalabyggðar lögð fram til afgreiðslu. Samþykkt samhljóða. | Húsnæðisáætlun 2025 - Dalabyggð.pdf | Bygging íbúða - opinber gjöld - Búðardalur (Húsnæðisáætlun).pdf | | |
|
6. 1811022 - Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni | |
Til máls tók: Ingibjörg.
Samþykkt samhljóða. | Frístundastyrkur - staðf.í fræðslunefnd 03.12.2024.pdf | | |
|
7. 2412007 - Fjósar - aðstaða rekstraraðila | |
Samþykkt samhljóða. | samningur_Dalahestar_Fjósar_undirritaður_09122024.pdf | | |
|
8. 2210026 - Uppbygging innviða - atvinnuhúsnæði | |
Til máls tók: Björn Bjarki og Ingibjörg.
Sveitarstjóra falið að vinna að málinu og undirrita viljayfirlýsingu við Byggðastofnun þegar hún liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða. | Bréf til Dalabyggðar.pdf | | |
|
9. 2412002 - Beiðni um leyfi fyrir slitum húsnæðissjálfseignarstofnunar | |
Til máls tók: Björn Bjarki.
Bakkahvammur hses. var stofnað undir árslok 2019 til að halda utan um tilraunaverkefni um fjölgun íbúða í Dalabyggð og starfaði skv. lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016. Á árunum 2019-2023 stóð stofnunin fyrir uppbyggingu 6 íbúða í Búðardal sem allar hafa nú verið seldar inn í Brák hses. til að reyna ná fram stærðarhagkvæmni sem ekki næst með rekstri lítilla húsnæðissjálfseignarstofnana með fáar íbúðir í rekstri. Stjórn Bakkahvamms hses. hefur ítrekað bókað í fundargerðir sínar að verkefnum stofnunarinnar sé lokið og að vinna eigi að lokauppgjöri og slitum þar sem engar eignir eru lengur í hennar eigu né stefnt að frekari verkefnum. Bakkahvammur hses. hefur fengið KPMG til að vinna að lokauppgjöri og frágangi fyrir slit stofnunarinnar. Þær íbúðir sem byggðar voru með aðkomu og stofnframlögum frá Dalabyggð fóru inn í aðra húsnæðissjálfseignarstofnun sem starfar eftir fyrr nefndum lögum um almennar íbúðir og því gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við ráðstöfun þeirra. Sveitarstjórn Dalabyggðar leggst ekki gegn slitum húsnæðissjálfseignarstofnunarinnar og samþykkir hér með beiðni Bakkahvamms hses.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
10. 2311021 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla | |
Til máls tók: Björn Bjarki.
Enn stendur útaf auglýsing vegna framsals Dalabyggðar til Akraneskaupstaðar vegna barnaverndarþjónustu sem hefur ekki verið birt í Stjórnartíðindum. Þá er lagt til að byggðarráð verði stjórn Dalaveitna og Bakkahvammur hses. fellur út úr samþykktum Dalabyggðar þar sem hlutverki stofnunarinnar er lokið og unnið er að slitum hennar.
Sveitarstjórn leggur til að þegar auglýsing um framsal vegna barnaverndarþjónustu hefur verið birt með númeri, verði samþykktin send innviðaráðuneytinu til yfirferðar áður en hún er lögð fyrir seinni umræðu hjá sveitarstjórn Dalabyggðar.
Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar er hér lögð fram til afgreiðslu við fyrri umræðu, með áorðnum breytingum.
Samþykkt samhljóða. | Samthykktir_stjorn_Dalabyggdar_16122024_m_breytingum.pdf | | |
|
11. 2409033 - Hvammar deiliskipulag | |
Til máls tók: Björn Bjarki.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi:
"Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna með breytingum á Lækjarhvammi nr. 8 og nr. 9 sbr. athugasemdir lóðareigenda, sbr. minnisblað um umsagnir og viðbrögð dags. 16.12.2024 og felur skipulagsfulltrúa að senda deiliskipulagið til athugunar Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga."
Sveitarstjórn staðfestir hér framkomna samþykkt og bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | Deiliskipulag Hvamma Greinargerð..pdf | Deiliskipulag Hvamma, uppdráttur..pdf | DSk Hvamma Búðardal. Umsagnir og viðbrögð eftir kynningu..pdf | | |
|
12. 2301065 - Ljárskógarbyggð | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti eftirfarandi:
"Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga."
Sveitarstjórn staðfestir hér framkomna samþykkt og bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
13. 2412009 - Könnunarviðræður | |
Til máls tóku: Ingibjörg, Björn Bjarki.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
Sveitarstjórn samþykkir að skipa tvo fulltrúa og tvo til vara í verkefnishóp til að skoða hvort fýsilegt sé fyrir Dalabyggð og Húnaþing vestra að hefja formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna skv. 119. grein sveitarstjórnarlaga. Sveitarstjórar sveitarfélaganna skulu starfa með verkefnishópnum með málfrelsi og tillögurétt á fundum. Skal hópurinn skila niðurstöðum eigi síðar en 30. apríl 2025.
Markmið verkefnishópsins er að leiða könnunarviðræður og kanna hvort grundvöllur sé fyrir sameiningu sveitarfélaganna. Viðræðurnar munu m.a. fela í sér mat á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna, skipulagi og starfsemi og mati á væntum breytingum við mögulega sameiningu. Verkefnishópnum er falið að leita eftir sjónarmiðum íbúa í ferlinu.
Áréttað er að í óformlegum sameiningarviðræðum felst engin skuldbinding af hálfu sveitarfélaganna og geta þau hætt viðræðum hvenær sem er. Verkefnishópi er falið að leita sérfræðiráðgjafar við vinnuna, og sækja um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga fyrir kostnaði sem af henni hlýst.
Fyrir hönd Dalabyggðar eru eftirfarandi aðal- og varafulltrúar skipaðir í verkefnishópinn:
Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, aðalfulltrúi Skúli Hreinn Guðbjörnsson, aðalfulltrúi Þuríður Jóney Sigurðardóttir, varafulltrúi Guðlaug Kristinsdóttir, varafulltrúi
Tillagan borin upp til afgreiðslu og samþykkt samhljóða. | | |
|
14. 2412011 - Leyfi, umsögn vegna flugeldasölu (skoteldar) | |
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við sölu Björgunarsveitarinnar Óskar á skoteldum.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
15. 2411001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 330 | Lögð fram til kynningar. | 15.1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 2024 Umsjónarmaður framkvæmda fór yfir stöðu verkefnisins. Stefnt er að því að halda áfram að steypa til 20. desember og halda síðan áfram eftir áramót. Ekki hafa komið fram tilvik sem seinka verkinu í heild sinni.
Varðandi kostnað við þrif á götum, ýtingu á jarðvegstipp og gerð upplýsingaskiltis við verkstað þá samþykkir byggðarráð framkomna tillögu verkefnastjóra að skiptingu kostnaðar. | 15.2. 2401015 - Sorphirða í Dölum 2024 Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu þar sem lagt er til að viðmið og krafa um sorpílát verði óbreytt í Búðardal en í dreifbýli verði miðað við fasta búsetu, heilsárs eða meirihluta ársins. Embættismenn sveitarfélagsins meti þetta eftir atvikum og styðjist m.a. við skráð lögheimili. Fasteignaeigendur geti skilað inn ílátum sé búseta sannarlega fallin niður. Breytt gjaldtaka miðist við tímabilið þegar ílát hafa verið afhent eða fjarlægð af staðnum.
Samþykkt samhljóða. | 15.3. 2410015 - Urðunarstaður á Höskuldsstöðum - Áhættumat og viðbragðsáætlun Framlagt | 15.4. 2411010 - Erindi til félagsmálanefndar 11.11.2024 Málið rætt. | 15.5. 2411015 - Málefni Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs Formanni byggðarráðs og sveitarstjóra falið að vinna áfram að málefnum brunavarna í Dalabyggð í samræmi við umræður á fundinum. | 15.6. 2411023 - Leyfi, umsögn vegna flugeldasýningar og brennu 2024 Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsókn um leyfi vegna flugeldasýningar og brennu. | 15.7. 2410029 - Samþykkt um gatnagerðargjöld í Dalabyggð Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu að samþykkt um gatnagerðargjald í Dalabyggð. Samþykkt samhljóða. | 15.8. 2410030 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2025 Gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa var frestað en er hérna lögð fram. Tekið er mið af 13,5% hækkun á gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands fyrir gjaldskrá 2025 í Dalabyggð. Samþykkt samhljóða
Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis-, byggingarheimildar-, framkvæmdar-, skipulags- og þjónustugjöld 2025 tekur mið af byggingarvísitölu í nóvember 2024 (grunni 2009) sem er 193,2 stig. Samþykkt samhljóða
Gjaldskrá fyrir hitaveitu á Laugum lögð fram. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir þjónustu skrifstofu Dalabyggðar er lögð fram og lagt til að hún taki mið af sambærilegum kostnaði í gjaldskrá Auðarskóla. Samþykkt samhljóða
Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald og annað gæludýrahald var frestað. Verið er að skoða möguleika á að Heilbrigðiseftirlit Vesturlands fari fyrir sameiginlegri samþykkt á Vesturlandi. Lagt er til að fresta afgreiðslu að sinni, samþykkt samhljóða.
Nauðsynleg vísitala er ekki komin fyrir gjaldskrá slökkviliðs og því er lagt til að fresta afgreiðslu þeirrar gjaldskrár. Samþykkt samhljóða. | 15.9. 2407002 - Fjárhagsáætlun 2025-2028 Byggðarráð þakkar starfsmönnum Dalabyggðar fyrir þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í vinnu við fjárhagsáætlun á milli umræðna. Byggðarráð samþykkir að beina fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árin 2025 til 2028 til seinni umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar. Samþykkt samhljóða. | | |
|
16. 2411003F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 136 | Lögð fram til kynningar. | 16.1. 2408003 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2024-2025 Farið yfir málin og verkefnin í grunnskólanum, jólaundirbúningur í fullum gangi, kaffihúsakvöld og danskennslu nýlokið svo eitthvað sé nefnt í því sem á dagana hefur drifið í skólastarfi undanfarnar vikur.
Farið yfir útkomu nemendaþings fyrir 4. til 10. bekk Auðarskóla sem haldið var fyrir stuttu. Fræðslunefnd fagnar þessu framtaki. | 16.2. 2408004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2024-2025 Farið yfir málin og verkefnin í leikskólanum, jólaundirbúningur í fullum gangi svo eitthvað sé nefnt í því sem á dagana hefur drifið í skólastarfi undanfarnar vikur.
24 börn eru í leikskólanum nú og útlit fyrir að í janúar og febrúar 2025 fjölgi þeim um þrjú.
Skólastjóri lagði fram ósk um að færa skipulagsdag leikskólans sem fyrirhugaður var 11. febrúar 2025 yfir á 12. febrúar 2025. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina fyrir sitt leiti. | 16.3. 2304010 - Félagsmiðstöð ungmenna Sveitarstjóri kynnti stöðu mála, stefnt er að því að starfsemi félagsmiðstöðvar hefjist eftir jólafrí og verður það kynnt þegar nær dregur áramótum. | 16.4. 1811022 - Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni Formaður fór yfir framkomna tillögu að uppfærðum reglum varðandi frístundastyrk Dalabyggðar. Fræðslunefnd samþykkti reglurnar með áorðnum breytingum og vísaði til staðfestingar sveitarstjórnar. | 16.5. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 Farið yfir stöðu mála. | 16.6. 2411021 - Erindi vegna tónlistarskóla Formanni fræðslunefndar og sveitarstjóra falið að fara yfir erindið með skólastjóra og afla frekari gagna varðandi starfsemi skólans og einstaka atriði í starfsemi hans. | 16.7. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran Fræðslunefnd vísar til bókunar undir lið 3 á dagskrá fundarins. Fræðslunefnd tekur undir ábendingar frá foreldrafélagi Auðarskóla varðandi það að mikilvægt er að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar hefjist sem fyrst. | | |
|
17. 2411007F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 152 | Lögð fram til kynningar. | 17.1. 2411020 - Stafræn húsnæðisáætlun 2024-2034 Nefndin gerir ekki athugasemdir og vísar málinu til sveitarstjórnar. | 17.2. 2409022 - Merking stíga Nefndin þakkar svar og góð viðbrögð og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram. | 17.3. 2409033 - Hvammar deiliskipulag Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna með breytingum á Lækjarhvammi nr. 8 og nr. 9 sbr. athugasemdir lóðareigenda, sbr. minnisblað um umsagnir og viðbrögð dags. 16.12.2024 og felur skipulagsfulltrúa að senda deiliskipulagið til athugunar Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. | 17.4. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal 2024 Nefndin rýndi atriðin og felur skipulagsfulltrúa að fá þau atriði lagfærð sem þarf, fyrir áður samþykkta auglýsingu, sem sveitarstjórn hefur þegar samþykkt. | 17.5. 2301065 - Ljárskógarbyggð Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagstillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. | 17.6. 2411006 - Umsókn um stofnun lóðar að Miðskógi Nefndin samþykkir erindið. | 17.7. 2409026 - Tjaldsvæðið í Búðardal 2024 Nefndin tekur jákvætt í erindið, með tilliti til þess að öll skilyrði um gististaði af þessu tagi séu uppfyllt. | | |
|
|
19. 2411014 - Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum | Lögð fram til kynningar. | Adalfundur-SSKS..pdf | stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum - 77..pdf | | |
|
|
21. 2401002 - Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 2024 | Lagt fram til kynningar. | 183 fundur stjórnar SSV - fundargerð..pdf | 184 fundur stjórnar SSV - fundargerð.pdf | | |
|
| |
22. 2401007 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2024 | Lögð fram til kynningar. | Fundur-227..pdf | | |
|
23. 2412012 - Aðalfundur Menningar- og framfarasjóðar Dalasýslu 2024 | Lögð fram til kynningar. | Ársreikningur 2023..pdf | MennOgFramFundargAðalf2024.pdf | | |
|
24. 2401014 - Skýrsla sveitarstjóra 2024 | Til máls tók: Björn Bjarki. | Skýrsla sveitarstjóra á 252. fundi.pdf | | |
|
Minnisblað umsjónarmanns framkvæmda vegna kostnaðar við þrif á götum, ýtingu á jarðvegstipp og upplýsingarskiltis við verkstað lagt fram.