| |
| 1. 2601014 - Fjölnytja- og landgræðsluskógrækt á lögbýlinu Vígholtsstöðum L137591 | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur farið yfir erindið. Skógræktaráformin samræmast stefnu og skilyrðum Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 um skógrækt á landbúnaðarsvæðum. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að ræktunaráætlun verði kynnt henni áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út.
| | |
|
| 2. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar og senda hana til athugunar Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. | | |
|
| 3. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna og fela skipulagsfulltrúa að senda hana til yfirferðar Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. Skipulagslaga. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri og Gunnar Þór Haraldsson frá Íslenska Gámafélaginu mættu til fundarins undir liðum 4 og 5.
| | 4. 2601022 - Úrgangsþjónusta - hreinsunarátak 2026 | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að viðhafa samskonar verklag og var viðhaft sumarið 2025. | | |
|
| 5. 2503006 - Úrgangsþjónusta - útboð 2025 | |
Fram kom í samtali nefndarinnar við fulltrúa Íslenska Gámafélagsins að mikilvægt er að leggja aukna áherslu á við bændur að þeir flokki rúlluplast eftir litum og æskilegt sé að minnka notkun á svörtu plasti. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að viðhaft verði samskonar verklag varðandi söfnun rúlluplasts og viðhaft hefur verið undanfarin ár. | | |
|
| 6. 2601003 - Umsókn um 10 stöðuleyfi að Fellsenda (hjúkrunarheimili) | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs sbr.reglugerð þar um . | | |
|
| 7. 2512007 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir starfsmannahús í landi Kvennabrekku/við Árblik/ | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur byggingarfulltrúa að afgreiða umsóknina. | | |
|
| 8. 2602001 - Umsókn um breytingu innandyra í Íþróttamiðstöðinni | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingu. | | |
|