| |
| 2. 1905038 - Lóðir fyrir atvinnustarfsemi í Búðardal. | |
| Kristján Sturluson sat fundinn undir þessum líð. Rætt var um iðnaðarsvæði við Iðjubraut og tekin ákvörðun um að skipuleggja iðnaðarlóðir í mismunandi stærðum sem væru tiltækar fyrir áhugasöm fyrirtæki. | | |
|
| |
| 3. 1905035 - Ný lóð úr landi Staðarfells - 137787 | |
| Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindið. | | |
|
| 4. 1905015 - Snæfellsnesvegur (54) Blönduhlíð - Ketilsstaðir | |
| Nefndin gerir ekki athugasemdir við að sveitarfélagið veiti framkvæmdaleyfi, með fyrirvara um að öll leyfi liggi fyrir. | | |
|
| 5. 1808008 - Skógrækt á Ósi í Saurbæ | |
Nefndin vísar til fyrri bókunar á þessu máli, sem fram fór 11. september 2018. Hún var svohljóðandi: "Nefndin leggur til við sveitarstjórn að ákvörðun um málið verði frestað þar til mótuð hefur verið stefna hjá sveitarfélaginu varðandi notkun á landi tengt landbúnaði samfara nýju aðalskipulagi." Gefin hafa verið út leyfi fyrir skógrækt í óræktanlegu landi undanfarið ár, en þar sem um ræktanlegt land er að ræða, þarf stefna sveitarfélagsins að liggja fyrir í aðalskipulagi. Nefndin hvetur til þess að sú vinna fari af stað sem allra fyrst. | | |
|
| 6. 1802018 - Deiliskipulag Hvammar | |
| Skiplagstillaga Hvamma tekin fyrir og ákveðið að endurauglýsa tillöguna samkvæmt lögbundnu auglýsingaferli. | | |
|
| 7. 1811006 - Aðalskipulag - drög - Ós á Skógarströnd | |
| Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkt verði breyting á aðalskipulagi Dalabyggðar, sem felur í sér stækkun á frístundabyggðinni á Ósi á Skógarströnd úr 20 hektörum í 25 hektara. Nefndin leggur einnig til að sveitarstjórn samþykki breytingu á deiliskipulagi að nýju í samræmi við ný gögn frá Landmótun, þar sem tekið hefur verið tillit til ábendinga Skipulagsstofnunar. | | |
|
| 8. 1905011 - Umsagnarbeiðni - Drangar - rekstrarleyfi | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. | | |
|
| 9. 1905031 - Umsagnarbeiðni - Veiðihúsið við Laxá í Dölum - rekstrarleyfi | |
| Nefndin gerir ekki athugasemdir við veitingu leyfisins. | | |
|
| 10. 1906004 - Skráning á nýrri landeign í fasteignaskrá | |
| Nefndin leggur til að erindið verði samþykkt. | | |
|
| 11. 1802012 - Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði | |
| Nefndin hvetur hagsmunaaðila og aðra íbúa til að koma með athugasemdir við skipulags- og matslýsingu fyrir 18. júní næstkomandi. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samráð verði haft við íbúa og gerð verði samskiptaáætlun. | | |
|
| |
| 1. 1904034 - Sorphreinsun - útboð 2020 - 2022 | |
| Kristján Sturluson og Viðar Þór Ólafsson komu á fundinn og kynntu stöðu sorpurðunarmála í landinu og rætt var um fyrirsjáanlegar breytingar á tilhögun sorpmála í sveitarfélaginu. Nauðsynlegt er að fara af stað með útboð fyrir haustið og fyrir liggur að skilgreina þurfi hvaða þjónustu sveitarféalgið vill fá. | | |
|
| 12. 1906003 - Matarvagn við Eiríksstaði | |
| Bjarnheiður Jóhannsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins. Nefndin leggst ekki gegn því að veitt sé leyfi. | | |
|
| 13. 1905030 - Umsókn um lóðir - Bakkahvammur 13, 15 og 17. | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|