| |
| 1. 2608012 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027 | |
Katrín Kristjánsdóttir skólastjóri fer yfir stöðu mála.
| | |
|
| 2. 2608011 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027 | |
| Katrín Kristjánsdóttir skólastjóri fer yfir stöðu mála. | | |
|
| 3. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran | |
Einar Björn Þorgrímsson fer yfir stöðu mála.
Góð mæting hefur verið í félagsmiðstöðina. Starfsemin var færð út úr skólanum og yfir í Nýsköpunarsetrið í Stjórnsýsluhúsinu, gekk það með ágætum. Áfram var leitað að hentugra rými fyrir félagsmiðstöðina og nú er verið að prufa afnot af aðstöðu í gamla pósthúsinu við Miðbraut. Verður það fyrirkomulag fram að áramótum í hið minnsta. Búið að vera nokkuð um GOS - hittinga í haust, þ.e. samstarfshittingar með öðrum félagsmiðstöðum þar sem aflýsa þurfti viðburðum fyrr á árinu vegna veðurs. Vert er að skoða samstarf við foreldrafélagið vegna samstarfshittinga. | | |
|
| 4. 2505001 - Lýðheilsa | |
Einar Björn Þorgrímsson fer yfir stöðu mála.
Félag eldri borgara hefur núna afnot tvo daga í viku af aðstöðu í gamla pósthúsinu við Miðbraut. Það fyrirkomulag verður a.m.k. prufað fram að áramótum.
Það þarf að taka starfsemi Ungmennaráðsins fastari tökum.
Landsátakið "Syndum" er í gangi í nóvember. Búið er að synda yfir 70 km í sundlauginni í Búðardal. | | |
|
| 5. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 20242025 | |
Einar Björn Þorgrímsson fer yfir stöðu mála.
Nýting á húsinu dróst saman meðan viðgerðir á gólfi stóðu yfir. Fólk er duglegt að mæta í sund, þó minna megi viðskiptavini á að virða opnunartíma, þ.e. þegar verið er að loka. Nýting á ræktinni að aukast. Ánægjulegt að sjá áhuga nemenda Auðarskóla á körfubolta, skoða þarf möguleika á að bæta við körfum á skólalóð. Nafnasamkeppni fyrir íþróttamiðstöðina er í gangi. Tekið er á móti tillögum og verður svo kosið á milli topp 5 tillagna. | | |
|
Áheyrnarfulltrúar viku af fundi undir dagskrárlið 6.
| | 6. 2611026 - Skólaþjónusta Auðarskóla 2026 - 2027 | | |
|
Sigríður Fjóla Mikaelsdóttir, formaður foreldrafélags Auðarskóla situr fundinn undir dagskrárlið 7.
| | 7. 2611027 - Foreldrafélag Auðarskóla | |
Rætt um samstarfssamning foreldrafélags Auðarskóla við Dalabyggð.
Horft verði til þess að styrkja betur við foreldrafélagið faglega, svo það geti aukið sína þjónustu við börn, foreldra og starfsfólk skólans. Unnið verður að fyrstu drögum að uppfærðum samningi þar sem m.a. verður horft til þess að skýra frekar hlutverk og skyldur foreldrafélagsins. Fundað verði með starfsfólki skrifstofu sveitarfélagsins og Auðarskóla. | | |
|
| 8. 2611030 - Mentor-erindi frá Sambandinu | |
| Fræðslunefnd hefur fjallað um málið og samþykkir að verkefnastjóra verði falið að skrifa undir áskorun til InfoMentor og skila henni inn. | | |
|