| |
| 1. 2611003 - Skátalundur | |
| Nefndin tekur vel í erindið og tillögu að staðsetningu skátalundar. Samhliða þróun svæðisins þurfi að huga að öryggi gangandi með tilliti til umferðar á þjóðveginum. | | |
|
| 2. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd | |
Skipulagsnefnd hefur fjallað um athugasemdir HMS, 10. september, við deiliskipulagstillögu í Tungu á Skógarströnd og yfirfarið uppfærða tillögu.
Nefndin áréttar að deiliskipulag Tungu á Skógarströnd tekur til eldri frístundabyggðar og telur að það samræmist stefnu Aðalskipulags Dalabyggðar. Ekki er gert ráð fyrir að þegar byggð hús verði færð eða þeim breytt vegna afgreiðslu skipulagsins. Nýbyggingar og framkvæmdir skulu samræmast skilmálum deiliskipulagsins og gildandi ákvæðum um fjarlægðir frá ám.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið með umhverfisskýrslu, enda verði samræmi greinargerðar og uppdráttar tryggt og athugasemdir HMS um skilmála og byggingarreiti vegna framtíðaruppbyggingar. Skipulagsfulltrúa verði falið að leggja til endanlegrar samþykktar og afgreiðslu til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 3. 2608018 - Breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal | |
| Nefndin þakkar fyrir framkomnar athugasemdir og leggur til ákveðnar breytingar á tillögu að deiliskipulagsbreytingunni til að bregðast við þeim. Lóð fyrir spennistöð Rarik verði færð þannig að sjónlínur við Gunnarsbraut skerðist ekki. Útakstur til vinstri út á Gunnarsbraut af lóð verði ekki heimiluð. Með þessu telur nefndin að komið sé til móts við athugasemdir. | | Athugasemdir dags. 13.10.2026 v. grenndarkynningar.pdf | | |
|
| |
| 4. 2610023 - Snæfellsnesvegur (54_21-22), ákvörðun um matsskyldu - umsagnarbeiðni | |
Kynningarskýrslan er ítarleg og góð og samræmist gildandi Aðalskipulagi Dalabyggðar. Sækja skal um framkvæmdarleyfi til sveitarfélagsins áður en framkvæmdir hefjast. | | Kynningarskýrsla Snæfellsnesvegur í Dalabyggð..pdf | | |
|
| |
| 5. 2610020 - Gjaldskrá Sorpurðurnar Vesturlands 2027 | |
| Til kynningar. | | |
|
| 6. 2610019 - Umsókn um byggingarleyfi að Harastöðum, 240m2 geymsluhúsnæði | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | | |
|
| 7. 2610033 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Ljárskógaströnd 23 | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | | |
|
| 8. 2611004 - Rammaáætlun, 6. áfangi - tillaga að flokkun vindorkuverkefna | |
| Formanni nefndar falið að ræða málið við sveitarstjórn. | | Skýrsla - Tillaga verkefnisstjórnar.pdf | | |
|