| |
| 1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Á 274. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var Fjárhagsáætlun 2027-2030 vísað til seinni umræðu.
Farið yfir stöðu mála og þær breytingar sem orðið hafa í kjölfar vinnu á milli umræðna og íbúafunda sem haldnir voru þann 17. nóvember s.l.
Byggðaráð þakkar starfsmönnum Dalabyggðar fyrir þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í fjárhagsáætlun.
Byggðaráð samþykkir að beina fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árin 2027-2030 til seinni umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar, með áorðnum breytingum á rekstri er varða hækkun fasteignagjaldsprósentu á C-hluta.
| | |
|
| 2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 | |
| Byggðarráð samþykkir gjaldskrá Fjósa fyrir árið 2027 með áorðnum breytingum, ásamt því að bætt sé við að ferðavagnar séu mældir með beisli og vísar til sveitarstjórnar til staðfestingar. | | Gjaldskrá - Fjósar 2027 - uppfærsla.pdf | | |
|
| 3. 2410019 - Samstarfssamningur við Foreldrafélag Auðarskóla 2025-27 | |
Frá 155. fundi fræðslunefndar:
"7. 2611027 - Foreldrafélag Auðarskóla Fulltrúar frá stjórn foreldrafélagsins koma á fund og fara yfir starf foreldrafélagsins á yfistandandi skólaári. Rætt um samstarfssamning foreldrafélags Auðarskóla við Dalabyggð.
Horft verði til þess að styðja betur við foreldrafélagið faglega, svo það geti aukið sína þjónustu við börn, foreldra og starfsfólk skólans. Unnið verður að fyrstu drögum að uppfærðum samningi þar sem m.a. verður horft til þess að skýra frekar hlutverk og skyldur foreldrafélagsins. Fundað verði með starfsfólki skrifstofu sveitarfélagsins og Auðarskóla."
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og tekur undir bókun fræðslunefndar. | | |
|
| 4. 2611011 - Nafnasamkeppni íþróttamiðstöðvar | |
1. Dalurinn og Dalalaug 2. Íþróttamiðstöðin Katlar og Katlar 3. Hvammur og Hvammslaug 4. Undrahöllin og Auðarlaug 5. Króin og Stían
Lagt er til að ofangreindar tillögur verði lagðar fyrir íbúa og kosið á milli þeirra. Lýðheilsufulltrúa falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 5. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4) | |
Viðauki IV við fjárhagsáætlun Dalabyggðar ber með sér m.a. breytingar á málaflokkum til samræmis við nýlegar reglugerðarbreytingar og innri færslur.
Helstu breytingar eru:
Nýr málaflokkur 01 Þjónusta við fatlaða - hækkar rekstrarkostnaður um kr. 23.338.000,- Eldri málaflokkur 02 Félagsþjónusta - lækkar rekstrarkostnaður um kr. 23.338.000,- Eldri málaflokkur 03 Heilbrigðiseftirlit - fellur niður og lækkar rekstrarkostnaður um kr. 825.000,- Málaflokkur 08 Úrgangsmál - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 500.000,- Málaflokkur 09 Skipulags- og byggingarmál verður Skipulags og samgöngumál - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 4.705.000 Málaflokkur 10 Umferðar- og samgöngumál - fellur niður og lækkar rekstrarkostnaður um kr. 6.645.000,- Málaflokkur 11 Atvinnu- og menningarmál - fellur niður og lækkar rekstrarkostnaður um kr. 23.887.000 Málaflokkur 13 Atvinnumál - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 23.062.000,-
Til viðbótar er bætti við rekstrarkostnaði í eftirtöldum málaflokkum Málaflokkur 07 Brunamál og almannavarnir - rekstrarkostnaður hækka um kr. 490.000,- Eignarsjóður - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 600.000,-
Samtals kostnaður í A-sjóðs lækkar kr. 350.000,- til hækkunar á handbæru fé.
Fráveita - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 350.000,-
Samtals kostnaður í B-sjóðs hækkar kr. 350.000,- til lækkunar á handbæru fé.
Samtals kostnaður A- og B-sjóðs hækkar um kr. 0,-
Eignfærslur
Íþróttamannvirki hækkar um kr. 8.100.000,- Íþróttamannvirki lækkar um kr. 8.100.000,- v. styrkja Leikskólinn hækkar um kr. 1.000.000,- Grunnskólinn lækkar um kr. 6.000.000,- Gatnagerð lækkar um kr. 1.000.000,- Slökkvibúnaður lækkar um kr. 490.000,- Götulýsing hækkar um kr. 490.000,- Fráveita hreinsistöð hækkar um kr. 1.000.000,- Fráveita stofnlagnir hækka um kr. 5.000.000,-
Samtals eignfærslur kr. 0
| | Viðauki_5_v4.pdf | | |
|
| 6. 2603012 - Afskriftarbeiðni | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni og vísar til sveitarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
| |
| 7. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026 | |
| Verkefnastjóra falið að skila inn umsögn við málið í samræmi við umræður á fundinum. | | 0365-stefnumotandi-byggdaaaetlun_27-41.pdf | | |
|
Sindri Geir Sigurðsson víkur af fundi undir dagskrárlið 8.
| | 8. 2611031 - Beiðni um umsögn vegna smásölu á skoteldum | |
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við leyfi til sölu skotelda.
Samþykkt samhljóða. | | Sindri Geir kemur aftur inn á fundinn.
| |
|
| |
| 9. 2611030 - Mentor-erindi frá Sambandinu | |
| Svar barst frá InfoMentor og er málið komið í ferli gagnvart Auðarskóla. | | Mentor23.11.26.pdf | | |
|