Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
13.05.2024 og hófst hann kl. 17:15
Fundinn sátu: Þorgrímur Einar Guðbjartsson formaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson varamaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri ,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2310001 - Bæjarhátíð 2024
Framlögð drög að dagskrá bæjarhátíðar. Unnið áfram.
Unnið áfram að dagskránni. Ítrekað verður við rekstraraðila varðandi þátttöku í dagskránni. Verið að staðfesta tímasetningar á viðburðum.
2. 2403013 - 17. júní 2024
Verkefnastjóri átti fund með mögulegum þátttakendum í hátíðarhöldunum. Drög að dagskrá lögð fyrir nefndina.
Unnið áfram að dagskrá í samstarfi við félög í héraði.
3. 2402008 - Járngerðarsýning - Úr mýri í málm
Á síðasta fundi nefndarinnar var óskað eftir frekari upplýsingum um sýninguna: Um er að ræða veggi með öllu fræðsluefninu á og á þeim eru gluggar með sýningarhlutum, c.a. 8 - 10 gluggar, þar af tveir video gluggar með viðtölum frá RUV (Gísla Einars). Herbergið sem hýsir sýninguna er um 15 - 20fm og veggirnir ná frá gólfi til lofts á þrjá vegu. Þjóðminjasafnið á sýninguna sjálfa en William Short gæti átt einhverja af sýningargripunum skv. upplýsingum sem bárust. Annars er sýningin þannig að hægt er að vera með færri gripi eða aðra, en núna eru, því þeir eru aðalllega til skýringa og fræðsluefnið er á veggjunum.
Nefndin tekur vel í erindið og leggur til að hún verði tekin heim. Unnið verður að því að finna henni stað í héraði.