Til bakaPrenta
Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 51

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
31.08.2026 og hófst hann kl. 18:20
Fundinn sátu: Bjarnheiður Jóhannsdóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri ,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir þann tímaramma sem ætlaður er til undirbúnings og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2027 til 2030. Einnig kynntar þær forsendur sem Samband íslenskra sveitarfélaga leggur upp með í þeirri vinnu sem framundan er.

Fastanefndum Dalabyggðar er falið að yfirfara sína málaflokka í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Skoða vel og ræða bæði útgjöld og innkomu tengda þeim deildum sem falla undir svið deildanna. Tillögum nefnda verði skilað til starfsmanna, til úrvinnslu.

Hlutverk félagsheimilanna verði skoðað á næstu mánuðum. Stefnt að kaffispjalli með íbúum vegna málsins.

Rætt um hátíðarhöld á vegum sveitarfélagsins. Stefnt að kaffispjalli þar sem verið rætt hvort halda eigi hátíðunum áfram.
Dagsetningar vegna vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027 - 2030, samþ.pdf
2. 2511011 - Bæjarhátíð 2026
Uppgjör á bæjarhátíð rætt.
Nefndin þakkar íbúum fyrir þátttöku á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal 2026 og þeim aðilum sem stóðu fyrir viðburðum fyrir framtakið.
Skýrsla verkefnastjóra 17. júní og bæjarhátíðar í Dalabyggð_2026..pdf
3. 2604006 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026
Drög að dagskrá rædd, hvatning til íbúa, félaga og fyrirtækja til að taka þátt.
Hátíðin rædd.
Ekki náðist að boða varamann í tæka tíð fyrir fundinn.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:58 

Til bakaPrenta