Til bakaPrenta
Fræðslunefnd Dalabyggðar - 150

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
05.05.2026 og hófst hann kl. 13:45
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Þórey Björk Þórisdóttir aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Sigríður Fjóla Mikaelsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Jóna Björg Guðmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, Sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604022 - Hver vegur að heiman
Inn á fundinn kemur Kristján Meldal verkefnastjóri frá SSV og kynnir verkefnið "Hver vegur að heiman" sem er samstarfsverkefni Dalabyggðar og SSV með stuðningi frá Byggðastofnun.
Fræðslunefnd þakkar Kristjáni fyrir góða yfirferð og tekur undir þau sjónarmið sem nefnd eru varðandi mikilvægi átthagafræðslu og annarra þátta varðandi sjálfsmynd íbúa og samfélagsins. Spennandi verður að sjá framvindu þessa verkefnis á næstu misserum.
Hver vegur að heiman er vegurinn heim_samantekt..pdf
2. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal
Farið yfir stöðu mála varðandi akstur framhaldsskólanema úr Búðardal.
Tilraunaverkefni það sem fékkst stuðningur við er nú á enda og ljóst að ekki er grundvöllur fyrir að svo stöddu að framhald verði á.
Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir lið 3 á dagskrá.
3. 2603021 - Leikjanámskeið 2026
Rætt um stöðu mála í kjölfar þess að auglýsing fór í loftið þar sem auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að halda utan um sumar- og leikjanámskeið.
Fram er komin hugmynd frá Eiríksstöðum varðandi utanumhald um sumar- og leikjanámskeið í sumar og vill fræðslunefnd lýsa ánægju sinni með þann áhuga sem þar birtist. Verið er að skoða með grundvöll þess samstarfs og kemur í ljós á næstu dögum hvert framhaldið verður.

Einnig rætt um stöðuna hvað vinnuskóla í sumar varðar.
Starfandi skólastjóri, Guðrún G. Halldórsdóttir, sat fundinn undir lið 4.
4. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026
Farið yfir stöðu mála í grunnskólanum.
Skóladagatal næsta skólaárs lagt fram til staðfestingar.

Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála. Búið er að auglýsa laus störf kennara og er umsóknarfrestur opinn, verið er að skoða þörf fyrir auglýsingu um önnur störf.
Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.

Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra að ganga frá því til birtingar.
5. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025
Farið yfir stöðu mála í leikskólanum.
Skóladagatal næsta skólaárs lagt fram til staðfestingar.

Sveitarstjóri kynnti stöðu mála í fjarveru aðstoðarleikskólastjóra.

Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.

Vinna við námsvísi næsta skólaárs er á lokametrunum.
Núna eru 28 börn á leikskólanum og útlit fyrir að óbreyttu að frá hausti verði þau 25. 5 börn færast í grunnskólanum af þeim sem nú eru á leikskólanum.

Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra að ganga frá því til birtingar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00 

Til bakaPrenta