| |
| 1. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III | |
Til máls tók: Lilja
Sveitarstjórn samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026.
| | Viðauki_3..pdf | | |
|
| 2. 2608019 - Holt Skammtímadvöl á Vesturland | |
Til máls tók: Lilja og Ingibjörg
Sveitarstjórn samþykkir aðild Dalabyggðar að rekstri skammtímadvalar á Vesturlandi skv. minnisblaði frá stjórnendum í velferðarþjónustu á Vesturlandi dags. 26.ágúst 2026.
| | Minnisblad_Holt_26_agust_2026 Leið 3 sveitastjórar..pdf | | |
|
| 3. 2608018 - breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal | |
Til máls tók: Valdís
Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga. | | |
|
| 4. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15 | |
Til máls tóku: Guðlaug, Lilja, Guðlaug (annað sinn), Lilja (annað sinn).
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og felur Skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar samsvarandi deiliskipulagsbreyting hefur tekið gildi og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.
Samþykkt með 5 atkvæðum (BJ, IÞS, GTG, IG, SOS) og á móti 2 (GK, VG). | | |
|
| 5. 2609004 - Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lengingu sjóvarnar við Ægisbraut, Búðardal | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og felur Skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar | |
Til máls tóku: Bjarnheiður og Ingibjörg.
Sveitarstjórn samþykkir að felldar verði úr gildi reglur Dalabyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum frá 2020. | | |
|
| 9. 2609011 - Dalaveitur ársreikningur 2025 | |
| Framlagt til kynningar. | | Ársreikningur Dalaveitur 2025.pdf | | |
|
| 10. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá | |
| Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og veitir heimild Dalabyggðar sem landeigandi með þeim fyrirvara að skipulagsfulltrúi gefi út framkvæmdarleyfi. | | |
|
| |
| 11. 2608001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 354 | | Fundagerð framlögð. | 11.1. 2604012 - Fjallskil 2026 Fyrir liggur fjallskilaseðill og fundargerð fjallskilanefndar Skarðsstrandar.
Fundargerð og álagningarseðill samþykkt. | 11.2. 2602031 - Vatnsveita Sveitarstjóra falið að taka samtal við aðila máls og starfsfólk taki saman gögn vegna vatnsveitunnar í samræmi við umræður á fundinum. | 11.3. 2608009 - Skólavist barna utan lögheimilissveitarfélags Sveitarstjóra og skólastjóra falið að skoða stöðu málaflokksins hjá sveitarfélaginu.
Farið yfir þær umsóknir sem hafa borist og niðurstaða skráð í trúnaðarbók. Sveitarstjóra falið að svara erindum.
Samþykkt samhljóða
| 11.4. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Rætt um dagskrá vinnufundar sveitarstjórnar 3. september nk. og þær deildir sem þarf að skoða sérstaklega í komandi vinnu. | 11.5. 2608010 - Starfsmannamál Staða mála rædd. | 11.6. 2606009 - Tónlistarnám á Akureyri Byggðarráð veitir samþykki sitt fyrir tónlistarnámi utan lögheimilis í samræmi við framlagða umsókn. Reglurnar eru í heild sinni til endurskoðunar hjá fræðslunefnd Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 12. 2607001F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 51 | | Fundagerð framlögð. | 12.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Hlutverk félagsheimilanna verði skoðað á næstu mánuðum. Stefnt að kaffispjalli með íbúum vegna málsins.
Rætt um hátíðarhöld á vegum sveitarfélagsins. Stefnt að kaffispjalli þar sem verið rætt hvort halda eigi hátíðunum áfram. | 12.2. 2511011 - Bæjarhátíð 2026 Nefndin þakkar íbúum fyrir þátttöku á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal 2026 og þeim aðilum sem stóðu fyrir viðburðum fyrir framtakið. | 12.3. 2604006 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026 Hátíðin rædd. | | |
|
| 13. 2607002F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 59 | | Fundagerð framlögð. | 13.1. 2503014 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð Nefndin leggur til að innviðaáætlun verði uppfærð í takti við núverandi ástand innviða og nýja Samgönguáætlun. | 13.2. 2607007 - Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar. | 13.3. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar. | 13.4. 2606020 - Hvítbók um byggðamál Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar. | | |
|
| 14. 2606008F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 166 | | Fundagerð framlögð. | 14.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Nefndin fór yfir stöðu málaflokka sem falla undir hana. Sveitarstjóra falið að vinna málin áfram í samræmi við umræður á fundinum. | 14.2. 2607006 - Vatnaáætlun Íslands 2028-2033 Nefndin felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu út frá gildandi aðalskipulagi og þeim framkvæmdum sem mögulega eru í farvatninu í Dalabyggð. | 14.3. 2602034 - Styrkvegir 2026 Nefndin felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir. | 14.4. 2608016 - Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi Erindi fram lagt. Nefndin þakkar erindið. | 14.5. 2608018 - breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ) Á móti einu atkvæði (VG) | 14.6. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15 Umsókn samþykkt með fyrirvara um gildistöku óverulegrar breytingar deiliskipulags á lóðinni, sbr. 5. mál á dagskrá fundar. Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar samsvarandi deiliskipulagsbreyting hefur tekið gildi og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.
Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ) Á móti einu atkvæði (VG) | 14.7. 2608002 - Reglugerðarbreytingar vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í samráðsgátt Nefndin ræddi málið. | 14.8. 2608015 - Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt í landi Kolsstaða Afla þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands/minjavarðar Vesturlands. Einnig þarf að afla umsagnar heilbrigðiseftirlits Vesturlands þar sem skógræktarsvæðið er á skilgreindu grannsvæði vatnsverndar skv. Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032.
Afgreiðslu frestað.
| 14.9. 2608021 - Tjaldsvæðið í Búðardal 2026 Nefndin felur starfsmönnum sveitarfélagsins að vinna málið áfram. | 14.10. 2608022 - Úrgangsþjónusta 2026 - fyrirspurnir og umræður Nefndin ræddi málið. | 14.11. 2609005 - Göngustígur frá Gunnarsbraut að Brekkuskógi Nefndin tekur vel í erindið og felur starfsmönnum Dalabyggðar að vinna áfram að útfærslu. Það verður framlag Dalabyggðar til verkefnisins. | 14.12. 2609004 - Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lengingu sjóvarnar við Ægisbraut, Búðardal Umsókn samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 | | |
|
| 15. 2607003F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 80 | | Fundagerð framlögð. | | |
|
| 16. 2606001F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152 | | Fundagerð framlögð. | | |
|
| 17. 2609005F - Byggðarráð Dalabyggðar - 355 | | Fundargerð framlögð. | 17.1. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III Framlögð tillaga að Viðauka III (3) við fjárhagsáætlun ársins 2026
Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarlækkunar í A-sjóði:
Hækkun Jöfnunarsjóðsframlaga kr. 42.547.000
Hækkun launakostnaðar vegna fræðslumála kr. 26.037.000
Samtals kostnaðarlækkun í A-hluta 16.510.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.
Eignfærslur:
Breytingar á fjárfestingarliðum til kostnaðarlækkunar:
Samtals kr. 7.000.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.
Einnig er í þessum viðauka leiðrétt upphafsstaða handbærts fjár þar sem útgönguspá 2025 sem unnið var útfrá var röng mv lokastöðu ársins 2025.
Byggðarráð samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026 og vísar málinu til sveitarstjórnar. | 17.2. 2608019 - Holt Skammtímadvöl á Vesturland Byggðarráð samþykkir aðild Dalabyggðar að rekstri Skammtímadvalar á Vesturlandi og þá tillögu sem fyrir liggur að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulag skv. minnisblaði frá stjórnendum í velferðarþjónustu á Vesturlandi dags. 26.ágúst 2026.
Samþykkt samhljóða
Málinu vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar. | 17.3. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá Byggðarráð veitir heimild landeiganda fyrir framkvæmdinni en bendir á að sækja þarf um formlegt framkvæmdarleyfi hjá skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir að meðtöldu leyfi Fiskistofu.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til sveitarstjórnar. | 17.4. 2609011 - Dalaveitur ársreikningur 2025 Byggðarráð samþykkir framlagðan ársreikning fyrir Dalaveitur ehf.
| | |
|
| |
| 7. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026 | |
| Framlagt til kynningar. | | stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1001..pdf | | |
|
| 8. 2609009 - Fundarboð á Haustþing SSV 2026 | |
| Framlagt til kynningar. | | 2026 Dagskrá.pdf | | 2026 Fundarboð undirritað.pdf | | |
|
| 18. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026 | |
| Til máls tók: Lilja. | | |
|