| |
Málið varðar selaker sem sótt var um að setja niður við höfnina.
| | 1. 1709012 - Gefum selum lengra líf | Umhverfis- og skipulagsnefnd bíður enn álits frá Umhverfisstofnun varðandi verkefnið, en borist hafa umsagnir frá Matvælastofnun og Hafrannsóknarstofnun, þar sem fram kom að dýrahald sé ekki leyfilegt nema með leyfi Umhverfisstofnunar. Nefndin gagnrýnir að framkvæmdir við selakerið hafi hafist án þess að leyfi liggi fyrir. Nefndin óskar eftir því að fá fulltrúa Húsdýragarðsins ásamt Svavari Garðarssyni á fund þegar umsagnir eru komnar fram. | | |
|
| 2. 1811016 - Beiðni um leyfi til að hafa sjókví við flotbryggjuna í Búðardal | |
| Málinu er frestað sbr. mál 1709012. | | |
|
| 3. 1811005 - Breyting á aðalskipulagi vegna áætlaðs vindorkugarðs - sameiginlegur fundur sveitarstjórnar og umhverfis- og skipulagsnefndar. | Nefndin leggur til við sveitarstjórn að vinna lýsingu sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010. sbr. einnig lög um umhverfismat áætlana fyrir breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkugarðs í landi Hróðnýjarstaða þar sem óskað er eftir umsögnum viðeigandi stofnana og athugasemda hagsmunaaðila sbr. bókum nefndarinnar frá 9.11.2018.
| | |
|