Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
06.08.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Bjarnheiður Jóhannsdóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Guðmundur Sveinn Bæringsson aðalmaður,
Linda Guðmundsdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, formaður
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2503014 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð
Rætt um uppfærslu
Nefndin leggur til að innviðaáætlun verði uppfærð í takti við núverandi ástand innviða og nýja Samgönguáætlun.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
2. 2607007 - Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett í samráð drög að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Samkvæmt 39.gr.a. í raforkulögum skal endurskoða stefnu þessa á fjögurra ára fresti. Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi og skilgreina þau markmið sem flutningsfyrirtækinu er ætlað að vinna að. Leggja línur um forgangsröðun og til hvaða sjónarmiða eigi að líta þegar fjölþætt markmið stangast á. Stefna þessi hefur víðtæk áhrif, meðal annars á loftslagsskuldbindingar, atvinnustefnu, byggðastefnu og orkuöflunarstefnu. Óskað er eftir því að athugasemdir við drögin berist eigi síðar en 19. ágúst nk.
Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar.
3. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi
Innviðaráðuneytið undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um. Umsagnarfrestur til og með 21. ágúst 2026.
Á síðasta fundi atvinnumálanefndar var ákveðið að vinna málið áfram.
Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar.
Í hvítbók um byggðamál eru kynnt drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.
Á síðasta fundi atvinnumálanefndar var ákveðið að vinna málið áfram.
Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar.