| |
| 1. 1902037 - Ósk um aðalskipulagsbreytingu fyrir vindlund á jörð Sólheima | |
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að vinna lýsingu sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010. sbr. einnig lög um umhverfismat áætlana fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004 - 2016 vegna vindorkugarðs í landi Sólheima þar sem óskað er eftir umsögnum viðeigandi stofnana og athugasemda hagsmunaaðila. Nefndin bendir á að þetta er einungis fyrsta skrefið í ferli breytinga. Nefndin lítur svo á að breytingin á aðalskipulagi verði öll norðan vegsvæðis, eins og kemur fram á mynd 1 í minnisblaði Eflu frá 19.2.2019. | | |
|
| 2. 1902040 - Umsókn um stofnun vegsvæðis úr landi Hvols í Saurbæ | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðar. | | |
|
| 3. 1811005 - Breyting á aðalskipulagi vegna áætlaðs vindorkugarðs | |
Nefndin samþykkir greinargerðina, með eftirtöldum breytingum: Við lið 5.1 um umsagnaraðila bætist: Eigendur aðliggjandi jarða og frístundahúsa Liður 5.3 breytist þannig: Í stað Mars/apríl komi Mars/maí Í stað Maí/júní komi Júni/júlí Í stað Júní/ágúst komi Ágúst/september Í stað Ágúst/september komi Október/nóvember Í stað Október/nóvember komi Desember/janúar Fram komi í auglýsingum að lýsingarferli vegna annars samskonar verkefnis sé í farvatninu. Við greinargerðina bætist uppdráttur sem sýnir ytri mörk mögulegs iðnaðarsvæðis. | | |
|