Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri og staðgengill sveitarstjóra
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2611017 - Notendaráð fatlaðs fólks í Dalabyggð
Notendaráð eða samráðshópar fatlaðs fólks á sveitarfélagastigi eru lögbundnar samráðsnefndir. Samkvæmt íslenskri löggjöf og Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er skylda að viðhafa samráð við fatlað fólk á öllum stigum. Skipa skal notendaráð að hverjum sveitarstjórnarkosningum loknum. Í því sitja að lágmarki þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn, þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunafélögum fatlaðs fólks og einn fulltrúi frá heilsugæslunni.
Lagt er til að málinu sé frestað þar sem beðið er frekari upplýsinga vegna málsins.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
2. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 286. mál - Stefna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna til ársins 2031. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. nóvember nk.
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 285. mál - Aðgangur barna að samfélagsmiðlum. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 2. desember nk.
Verkefnastjóra falið að skila inn umsögn við mál 286 í samræmi við umræður á fundinum.
Lögð er fram fundargerð Öldungaráðs frá 4. nóvember sl.
Verkefnastjórum falið að taka saman og birta á heimasíðu sveitarfélagsins, á aðgegnilegum og sýnilegum stað yfirlit yfir þá þjónustu og úrræði sem standa íbúum 67 ára og eldri til boða.