| |
| 1. 2607011 - Milliuppgjör eftir fimm fyrstu mánuði ársins | |
Lögð fram drög að milliuppgjöri fyrir fyrstu fimm mánuði ársins. Ekki hefur áður verið unnið milliuppgjör fyrir Dalabyggð og því ekki til viðmiðunartölur áranna á undan heldur notast við áætlaðar niðurstöðutölur árins. Um er að ræða gróft mat á stöðunni við lok fyrstu fimm mánaðanna. Í fjárhagsáætlun fyrir árið er gert ráð fyrir halla upp á tæplega 22,3 milljónir á A hluta sveitarsjóðs við árslok. Helstu niðurstöður benda til þess að hallareksturinn verði töluvert meiri á yfirstandandi ári en gert var ráð fyrir í áætlun. Helstu skýringar eru þróun verðlags, aukinn launakostnaður, seinkun á áætluðum tekjum en rekstur sveitarfélagsins er þannig samansettur að útgjöld stærri liða eru oft þyngri fyrri hluta ársins.
Þegar fjárhagsáætlun var unnin var lagt upp með 3,6% verðbólgu þvert á áætlun en verðbólgan stendur í dag í um 5% sem hefur þau áhrif að viðbótarkostnaður vegna þessar liðar eru tæplega 30 milljónir sem af er ári.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 2. 2607001 - Umsókn um lóð Stekkjarhvammur 9.a | |
Byggðarráð úthlutar lóðinni Stekkjarhvammi 9a, Búðardal til Elvars Hallgrímssonar kt. 040659-3749 á grundvelli reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða frá 20. september 2016.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 3. 2607003 - Umsókn um lóð Búðarbraut 9 | |
Lóðinni Búðarbraut 9, Búðardal er úthlutað til Bogu Kristínar Thorlacius kt. 120875-3459 með þeim fyrirvara að ekki er verið að veita leyfi fyrir færslu á húsi frá Vesturbraut 6. Úthlutun fer fram á grundvelli reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða frá 20. september 2016. Lóðarhafi verður að beina þeim hluta erindisins sem snýr að tilfærslu á húsi til byggingarfulltrúa Dalabyggðar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 4. 2208004 - Vegamál | |
Staða vega í sveitarfélaginu rædd. Sveitarstjóri hefur sent fyrirspurn á Vegagerðina og kallað eftir stöðu á útboði vegna Vestafjarðarvegar frá Erpstöðum að Haukadalsá. Samkvæmt svörum frá svæðisstjóra Vegagerðinnar á Vestursvæði þá verður ekki farið í útboð á þessum kafla fyrr en í ágúst úr þessu. Einnig kom fram að til stendur að fara í lagfæringar í haust á illa förnum vegkafla í Saurbænum en búið er að færa til fjármagn úr öðrum verkefnum til að bregðast við ástandi á þeim vegi.
Byggðarráð fagnar því að ráðast eigi í lagfæringar á vegkafla í Saurbæ en ítrekar mikilvægi þess að staðið verði við útboð á Vestfjarðavegi um Miðdali. Mikill umferðaþungi ásamt þungaflutningum er á umræddum vegakafla og er hann mikilvæg tenging við Vestfirði. Í kjölfar aukins umferðarþunga hefur ástand vegarins hríðversnað með tilheyrandi slysahættu. | | |
|
| 5. 2607010 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands | |
| Farið yfir stöðu og rekstur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og næstu skref varðandi undirbúning og framkvæmd á breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits. Verið er að afla gagna og upplýsinga í samvinnu með öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi og SSV til að varpa skýrara ljósi á stöðuna vegna óvissu um umfang þeirra verkefna sem eftir sitja hjá sveitarfélögunum, hvernig staðið verður að starfsmannamálum, frágangi búnaðar og skjala og öðrum skuldbindingum. | | |
|
| 6. 2607006 - Vatnaáætlun Íslands 2028-2033 | |
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um áætlanir og verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18. gr.laga um stjórn vatnamála.
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| |
| 8. 2606033 - Fundarboð á aðalfund Dalagistingar | |
| Fundargerð aðalfundar framlögð. Ekki var unnt að klára að staðfesta ársreikning þar sem fyrirliggur að hann mun taka breytingum en ákveðnar forsendur tengdar söluhagnaði á fasteignum liggja ekki fyrir að svo stöddu. Í ljósi þess var ákveðið að boða til auka aðalfundar í haust til að samþykkja ársreikning félagsins. | | Aðalfundargerð.pdf | | |
|
| |
|
| 9. 2605023 - Aðalfundur Veiðifélags Laxár í Hvammssveit 2026 | |
| Aðalfundargerð Veiðifélags Laxár í Hvammsveit framlögð. | | Aðalfundargerð, ársreikningur og bændadagar.pdf | | |
|