Til bakaPrenta
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 58

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
30.06.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Bjarnheiður Jóhannsdóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Linda Guðmundsdóttir aðalmaður,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Steinþór Logi Arnarsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2606030 - Kosning varaformanns og ritara
Nefndin kýs varaformann og ritara.
Fram kom tillaga um Jón Egil Jóhannsson sem varaformann og Lindu Guðmundsdóttur sem ritara nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.
2. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030
Nefndin ræðir stefnu og áherslur.
Áherslur ræddar, tengsl og stuðning við atvinnulífið, óstaðbundin störf og komandi uppfærslu á innviðaskýrslu, sem stoðtæki við atvinnulífið. Einnig rætt um húsnæðismál bæði fyrir fólk og fyrirtæki.

Sérstaklega var talað um landbúnað og umhverfi hans, nýliðun, stuðning og lagaumhverfi. Einnig aðeins um verslun sem þjónar atvinnurekstri í Dölunum.
3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um stöðu mála vegna almyrkva 12. ágúst 2026

Búið er að senda út dreifibréf á öll heimili í Dalabyggð þar sem farið er yfir atburðinn og aðstæður. M.a. þarf að horfa til umferðarstýringar, umferðarþunga í héraðinu og fjölda gesta.

Nefndin fagnar frumkvæði sveitafélagsins og hvetur íbúa og fyrirtæki til að vera vel byrg og undirbúin undir álag og umferð.
Bréf frá Dalabyggð vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026 (3)..pdf
Almenn mál - umsagnir og vísanir
4. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi
Innviðaráðuneytið undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um.
Umsagnarfrestur til og með 21. ágúst 2026.

Nefndin ræðir hvort tilefni sé til að bregðast við með umsögn frá Dalabyggð.

Nefndin hyggst vinna málið áfram.
Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi_19.06.2026..pdf
5. 2606020 - Hvítbók um byggðamál
Í hvítbók um byggðamál eru kynnt drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.
Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Nefndin ræðir hvort tilefni sé til að bregðast við með umsögn frá Dalabyggð.

Nefndin hyggst vinna málið áfram.
Hvítbók um byggðamál júní 2026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15 

Til bakaPrenta