| |
| 1. 1910036 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki V (Silfurtún, Vínlandssetur og HeV)) | |
Til máls tók: Kristján Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki V lagður fram til samþykktar. Samþykkt samhljóða. | | R. Yfirlit viðauka 2019_Dalabyggð V.pdf | | |
|
| 2. 1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023 | |
Samkvæmt tillögunni verður álagningarhlutfall útsvars 2020 14,52% og álagningarhlutfall fasteignaskatts a) 0,50% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 umtekjustofna sveitarfélaga. b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. Afsláttur af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 og reglur Dalabyggðar hækkar sem nemur breytingu á launavísitölu milli áranna 2017 og 2018 eða um 5,99% og upphæðir síðan námundaðar niður að næsta þúsundi.
Til máls tóku: Kristján, Einar, Skúli
Samþykkt samhljóða. | | Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda 2020 - námundun viðmiðunar leiðrétt.pdf | | |
|
| 3. 1911006 - Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar | |
Til máls tóku: Skúli, Kristján
Staðfest fyrri ákvörðun sveitarstjórnar um stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar vegna leiguíbúða í Dalabyggð. Dalabyggð er stofnandi húsnæðissjálfseignarstofnunarinnar og staðfestir sveitarstjórn samþykktir hennar. Í samræmi við samþykktirnar kýs sveitarstjórn eftirtalda aðila í stjórn stofnunarinnar sem situr þar til ársfundur hefur verið haldinn. Samþykkt samhljóða
Aðalmenn í fimm manna stjórn: Einar Jón Geirsson Eyjólfur Ingvi Bjarnason Ragnheiður Pálsdóttir Þuríður Jóney Sigurðardóttir Skúli Hreinn Guðbjörnsson
Varamenn í stjórn (tveir skv. samþykktunum): Jón Egill Jóhannsson Boga Kristín Thorlacius
Samþykkt samhljóða.
| | Drög að samþykktum fyrir DB hses.pdf | | Svar við beiðni um undanþágu frá fjölda í fulltrúaráði.pdf | | Fundargerð undirbúningsstjórnar 7_11_2019.pdf | | Viljayfirlýsing um fjölgun íbúða í Dalabyggð í gegnum tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs.pdf | | Samkomulag vegna HSES.pdf | | |
|
| 4. 1906005 - Jafnréttisáætlun og framkvæmdaáætlun | |
Tillaga: Sveitarstjórn felur byggðarráði að gera breytingar í samræmi við athugasemdir Jafnréttisstofu og staðfesta áætlunina fyrir hönd Dalabyggðar. Samþykkt samhljóða. | | Tölvupóstur - athugasemdir við jafnréttisáætlun.pdf | | |
|
| 5. 1910014 - Beiðni um nafnabreytingu, Krossland verði Skjön | |
| Samþykkt samhljóða. | | Beiðni undirrituð af öllum eigendum.pdf | | Umsögn - Árnastofnun.pdf | | |
|
|
| 7. 1910029 - Umsókn um lögbýli á Gautastöðum | |
| Samþykkt samhljóða. | | Umsögn frá Búnaðarsamtökum Vesturlands.pdf | | |
|
| 8. 1909024 - Minningargarðar í Dalabyggð | |
Til máls tóku: Einar, Ragnheiður
Tillaga lögð fram: Sveitarstjórn Dalabyggðar þakkar forsvarsmönnum Tré Lífsins fyrir erindið og felur umsjónarmanni framkvæmda hjá Dalabyggð að ræða við forsvarsmenn verkefnisins og afla frekari gagna. Samþykkt af sex fulltrúum (EJG, SHG, SHS, RP; PJ, ÞJS), einn situr hjá (ABH) | | Bréf til að kanna áhuga Dalabyggðar á Minningargörðum og afstöðu til þess að opna slíkan garð í sveitarfélaginu.pdf | | Minnisblað_08.10.2019.pdf | | |
|
| 9. 1910030 - Vindbú í Garpsdal - skipulags- og matslýsing | |
| Samþykkt samhljóða. | | UmsagnarbeiðniGarpsdalurDalabyggð.pdf | | SKIPULAGS- .pdf | | |
|
| 10. 1811005 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Hróðnýjarstaða | |
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 8: 1811005 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Hróðnýjarstaða Breyting á aðalskipulagi Dalabyggðar. Alls bárust 10 umsagnir frá stofnunum og aðilum og voru þær lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Í áliti Skipulagsstofnunar segir að í áformum um vindorkuver í sveitarfélaginu séu vindmyllur staðsettar í minna en tveggja km fjarlægð frá frístundabyggð. Það stangist á við skýrslu um stefnumótun í vindorkumálum í Dalabyggð sem gefin var út árið 2018. Skipulagsnefnd bendir á að skýrslan er ekki stefna sveitarstjórnar og hefur ekki fengið afgreiðslu sem slík og er einungis vinnuplagg. Endanleg ákvörðun um fjarlægð vindmylla frá frístundabyggð verður tekin á seinni stigum skipulagsferlis, m.a. í deiliskipulagsvinnunni. Skiplagsstofnun setur auk þess út á að þrátt fyrir að sveitarfélagið hafi samþykkt að ráðast í gerð lýsingar vegna tveggja vindorkuvera er í hvorugri lýsingunni vikið að því hversu ákjósanlegt sé að reisa tvö slík ver í grennd hvors annars m.t.t. umhverfisáhrifa eða möguleika á orkuflutningi né lagt til að metin verði möguleg samlegðaráhrif vindorkuveranna á umhverfið. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að bæði verkefnin eru staðsett nálægt tveimur aðskildum tengivirkjum og þá hefur Landsnet hafið undirbúning á aukinni flutningsgetu kerfisins í framtíðinni. Því er ekkert sem bendir til þess að nálægð þessarra tveggja vindorkuvera muni hafa áhrif á möguleika í orkuflutningi. Með tilliti til umhverfisáhrifa þessara verkefna þá mun í umhverfisskýrslu með aðalskipulagsbreytingunum verða skoðuð áhrif á umhverfisþætti. Auk þess mun breytingin á aðalskipulaginu gangast undir umhverfismat áætlana. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur ennfremur fram að standi vilji sveitarfélagsins til að halda áfram með breytingu á gildandi aðalskipulagi, bendir stofnunin á nokkur atriði sem þurfi að hafa til skoðunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að farið verður eftir ábendingum skipulagsstofnunnar ef sú leið verður farin. Lögskil fyrir hönd hagsmunaaðila jarðanna Glerárskóga, Ljárskóga, Ljárkots, Vígholtsstaða og frístundabyggðar í landi þeirrar jarðar gerði einnig athugasemdir. Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar í minnisblað Hjalta Steinþórssonar, lögmanns, sem farið hefur yfir athugasemdir Lögskila. Umsagnir bárust auk þess frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Strandabyggð, Húnaþingi Vestra, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Heilbrigðisteftirliti Vesturlands. Tekið verður tillit til ábendinga þessarra stofnanna við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Einnig barst athugasemd frá einum einstaklingi, Bjarna V. Guðmundssyni. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ráðist verði í breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Hróðnýjarstöðum. Samþykkt samhljóða. _____________________________________________________
Samþykkt samhljóða. | | Minnisblað um bréf Lögskila, skannað.pdf | | Minnisblað um bréf Lögskila.pdf | | Tölvupóstur frá UAR vegna vindorku og rammaáætlunar 15_10_2019.pdf | | Minnisblað til ráðherra vegna vindorku.pdf | | Minnisblað - 1811005- fundur sveitarstjórnar með Stormorku.pdf | | Bre?f til sveitarstjo?rnar 21082019.pdf | | UmsögnStrandabyggðarHróðnst.pdf | | UmsögnRáðuneytisHróðnýjarstaðir.pdf | | UmsögnHúnaþingsVestraHróðnýjarst.pdf | | UmsögnHEVHróðnýjarst.pdf | | UmsögnfráSkipulagsstofnunLýsing_Hróðnýjarstaðir.pdf | | Umsögn - Hróðnýjarstaðir.pdf | | Umsögn - Hróðnýjarstaðir, breyting á aðalskipulagi.pdf | | Athugasemdir við vindmyllugarð á Hróðnýjarstöðum í Dalabyggð.pdf | | Hrodnyjarstadir Dalabyggd Lysing.pdf | | Athugasemdir frá Lögskil dags. 28.6.2019 og annað skjal dags. 2.2.2018.pdf | | Umsögn frá Minjastofnun.pdf | | Hróðnýjarstaðir, skipulagslýsing-uppfærð.pdf | | Dalabyggð v Lo¨gskila.pdf | | |
|
| 11. 1902037 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Sólheima | |
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 9: 1902037 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Sólheima Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar. Alls bárust 6 umsagnir frá stofnunum og aðilum og voru þær lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Í áliti Skipulagsstofnunar segir að í áformum um vindorkuver í sveitarfélaginu séu vindmyllur staðsettar í minna en tveggja km fjarlægð frá frístundabyggð. Það stangist á við skýrslu um stefnumótun í vindorkumálum í Dalabyggð sem gefin var út árið 2018. Skipulagsnefnd bendir á að skýrslan er ekki stefna sveitarstjórnar og hefur ekki fengið afgreiðslu sem slík og er einungis vinnuplagg. Endanleg ákvörðun um fjarlægð vindmylla frá frístundabyggð verður tekin á seinni stigum skipulagsferlis, m.a. í deiliskipulagsvinnunni. Skipulagsstofnun setur auk þess út á að þrátt fyrir að sveitarfélagið hafi samþykkt að ráðast í gerð lýsingar vegna tveggja vindorkuvera er í hvorugri lýsingunni vikið að því hversu ákjósanlegt sé að reisa tvö slík ver í grennd hvors annars m.t.t. umhverfisáhrifa eða möguleika á orkuflutningi né lagt til að metin verði möguleg samlegðaráhrif vindorkuveranna á umhverfið. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að bæði verkefnin eru staðsett nálægt tveimur aðskildum tengivirkjum og þá hefur Landsnet hafið undirbúning á aukinni flutningsgetu kerfisins í framtíðinni. Því er ekkert sem bendir til þess að nálægð þessarra tveggja vindorkuvera muni hafa áhrif á möguleika í orkuflutningi. Með tilliti til umhverfisáhrifa þessara verkefna þá mun í umhverfisskýrslu með aðalskipulagsbreytingunum verða skoðuð áhrif á umhverfisþætti. Auk þess mun breytingin á aðalskipulaginu gangast undir umhverfismat áætlana. Í áliti Skipulagsstofnunar kemur ennfremur fram að standi vilji sveitarfélagsins til að halda áfram með breytingu á gildandi aðalskipulagi, bendir stofnunin á nokkur atriði sem þurfi að hafa til skoðunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að farið verður eftir ábendingum Skipulagsstofnunnar ef sú leið verður farin. Umsagnir bárust auk þess frá Landgræðslunni, Strandabyggð, Húnaþingi vestra, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun. Tekið verður tillit til ábendinga þessarra stofnanna við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ráðist verði í breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Sólheimum. Samþykkt samhljóða. ______________________________________________________________
Samþykkt samhljóða. | | Tölvupóstur frá UAR vegna vindorku og rammaáætlunar 15_10_2019.pdf | | Minnisblað til ráðherra vegna vindorku.pdf | | Minnisblað - 1902037 - fundur sveitarstjórnar með Quadran.pdf | | Quadran_svör við umsögnum_Sólheimar.pdf | | UmsögnNáttúrufræðistofnunSólheima.pdf | | UmsögnfráSkipulagsstofnunLýsing_Hróðnýjarstaðir og Sólheimar, vindorkuver.pdf | | Umsögn Umhverfisstofnunnar.pdf | | Umsögn frá Húnaþingi vestra.pdf | | Umsögn - Sólheimar, Landgræðslan.pdf | | UmsögnfraStrandabyggd.pdf | | Kynning_Vindorkugardur_Dalabyggd.pdf | | Kynning_Vindorkugardur_Solheimar_Dalabyggd.pdf | | Figure 1.1_Project Location.pdf | | Kynning_Vindorkugardur_Dalabyggd.pdf | | |
|
| |
| 12. 1910012F - Byggðarráð Dalabyggðar - 236 | Til máls tóku: Einar, Skúli Fundargerð samþykkt samhljóða. | | |
|
| 13. 1910004F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 27 | | Fundargerð samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
| 14. 1902027 - Dalaveitur - fundargerðir stjórnar 2019 | |
| |
|
| 15. 1812008 - Fundargerðir Minningarsjóðs hjónanna Ólafs Finnssonar og Guðrúnar Tómasdóttur frá Fellsenda 2018 | |
| Fundargerð 17.10.2019 - 2.pdf | | |
|
|
| 17. 1805007 - Fundargerðir Öldungaráðs 2018 - 2022 | |
| Fundargerð 9 fundar 5 nóv 2019.pdf | | |
|
| |
| 18. 1911008 - Fráveita í Búðardal, landlagnir. | |
| Til máls tók: Kristján | | Fundargerð frá opnun tilboða.pdf | | |
|
|
| 20. 1909009 - Trúnaðarbók sveitarstjórnar | | Fært í trúnaðarbók vegna persónuverndar. | | |
|