Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 357

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
29.10.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri og staðgengill sveitarstjóra
Byggðarráð fundar með Jöfnunarsjóði kl.13:00. Öðrum sveitarstjórnarfulltrúum boðið að sitja fundinn ásamt hlutaðeigandi starfsfólki Dalabyggðar.

Því frestast upphaf byggðarráðsfundar um klukkustund frá útsendu fundarboði, eða til kl.14:00

Lagt er til að mál nr. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4) sem var dagskrárliður 1 á útsendri dagskrá verði tekinn af dagskrá.

Lagt er til að eftirfarandi málum verði bætt á dagskrá:

Máli nr. 2610013 - Húsnæði félagsstarfs í Dalabyggð, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 12.
Máli nr. 2610029 - Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki nr. 1002025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins), verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 13.
Máli nr. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 14.
Máli nr. 2610030 - Samkomulag um samnýtingu bílastæðis, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 15.

Önnur mál á dagskrá raðist í samræmi við það.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
Viðar Þór Ólafsson verkstjóri áhaldahúss kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 1.
1. 2609015 - Eftirlitsskýrsla vegna Guðrúnarlaugar
Rætt um viðbrögð við eftirlitsskýrslu Guðrúnarlaugar.
Huga þarf að merkingum og rennsli.
Verkefnastjóra og verkstjóra áhaldahúss falið að vinna málið áfram.
2. 2604012 - Fjallskil 2026
Farið yfir skýrslur fjallskilanefnda vegna haustsins 2026.
Skýrslur um fjallskil 2026 bárust frá fjallskilanefndum Skógarstrandar, Hvammssveitar, Laxárdals, Suðurdala, Fellsstrandar og Saurbæjar.

Byggðarráð þakkar fjallskilanefndum fyrir skýrslurnar.

Sveitarstjóra og starfsfólki falið að fara yfir fjármagn vegna viðhalds rétta í samræmi við upplýsingar í skýrslum nefndanna.
Sveitarstjóra falið að senda tilkynningar um álagningar vegna vangoldinna dagsverka í samræmi við upplýsingar í skýrslum nefndanna.
Ingibjörg Jóhannsdóttir, aðalbókari situr fundinn undir dagskrárlið 3.
3. 2610003 - Staða á viðskiptakröfum haust 2026
Farið yfir stöðu útistandandi krafna Dalabyggðar haustið 2026.
Tekið til umræðu útistandandi kröfur og næstu skref varðandi þær kröfur.
Sveitarstjóra og starfsfólki falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
4. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags
Minnisblað verkefnastjóra var tekið fyrir á síðasta fundi fræðslunefndar og er hér lagt fram fyrir byggðarráð.

Byggðarráð styður tillögu fræðslunefndar um að unnar verði reglur um viðmið varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags á grundvelli þeirra sjónarmiða og tillagna sem fram koma í framlögðu minnisblaði.
Kristján Ingi Arnarsson, verkefnastjóri umhverfis- og eignasviðs og Ingibjörg Jóhannsdóttir, aðalbókari sitja fundinn undir dagskrárlið 5.
5. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir stöðu á fjárhagsáætlunarvinnu. Drög að fjárfestingaráætlun lögð fram.
Farið yfir forsendur og fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2027-2030.

Byggðarráð leggur til að áætlun verði unnin áfram í samræmi við umræður á fundinum og verði tekin fyrir á auka fundi byggðarráðs 5. nóvember nk.
6. 2610026 - Beiðni um kaup á lyftustólum
Lögð fram beiðni vegna kaupa á lyftistólum fyrir Silfurtún.
Beiðni frá Silfurtúni um að keyptir verði lyftustólar fyrir heimilið.

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við hjúkrunarforstjóra.
7. 2610018 - Staða bílaflota BDRS
Farið yfir stöðuna vegna bilunar á dælubíl slökkviliðsins. Búið er að festa kaup á bíl til að leysa eldri bíl af hólmi en hann rúmast innan fjárheimilda ársins.
8. 2510013 - Íbúðir í Búðardal
Bríet hefur verið í samtali við Dalabyggð um frekari uppbyggingu íbúða í Búðardal. Staða mála kynnt.
Byggðarráð fagnar frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Búðardal.
9. 2511013 - Skipurit skrifstofu Dalabyggðar
Umræður um skipurit skrifstofu Dalabyggðar.
10. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027
Til afgreiðslu koma forsendur gjaldskráa Dalabyggðar fyrir árið 2027.
Á 273. fundi sveitarstjórnar var bókað að hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins yrðu að hámarki 2,5% fyrir árið 2027.

Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda á árinu 2027:

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutfall útsvars árið 2027 verði 14,97% og álagningarhlutfall fasteignaskatts eftirfarandi:

a) 0,60% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.

Álagningahlutfall fasteignaskatts á A-hluta er ákveðið með heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Byggðarráð áréttar að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða og álagningarhlutfallið verður tekið til endurskoðunar þegar að ári með það að markmiði að lækka það á ný.

Staðgreiðsluafsláttur fasteignagjalda verði líkt og á árinu 2026 eða 5%

Nú er það svo að elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og fráveitugjaldi, sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu og hafi ekki af því leigutekjur.
Upplýsingar Tryggingastofnunar (TR) um tekjuviðmið hafa ekki verið birtar þegar fyrirliggjandi gögn voru unnin og því lagt til við sveitarstjórn að viðmið fyrir afslátt ellilífeyrisþega og öryrkja verði birt á heimasíðu Dalabyggðar þegar tilkynnt er um álagningu fasteignagjalda 2027 ef viðmiðin verða ekki komin fyrir fund sveitarstjórnar í desember nk.

Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega getur þó að hámarki verið 85.000kr.- árið 2027.

Samþykkt samhljóða.


Í samræmi við bókun 273. fundar sveitarstjórnar þann 15.10.2026 muni gjaldskrár sem ekki hækka samkvæmt vísitölu eða öðrum lögbundnum viðmiðum, ekki hækka um meira en 2,5%

Samþykkt samhljóða.
11. 2610027 - Erindi vegna Dalabúðar - nýting og aðstaða
Erindi barst frá Þorgrími á Erpsstöðum vegna nýtingar og aðstöðu í Dalabúð.
Byggðarráð þakkar fyrir erindir og vísar því til menningamálanefndar sem er að skoða nýtingu menningarhúsa í eigu sveitarfélagsins.
Einar Björn Þorgrímsson, lýðheilsufulltrúi situr fundinn undir dagskrárlið 12.
12. 2610013 - Húsnæði félagsstarfs í Dalabyggð
Lýðheilsufulltrúi hefur verið að skoða möguleika á hentugu húsnæði fyrir félagsstarf í Dalabyggð. Minnisblað kynnt.
Lýðheilsufulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Kristján Ingi Arnarsson, verkefnastjóri umhverfis- og eignasviðs situr fundinn undir dagskrárlið 14.
14. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings
Uppfærður lóðarlegusamningur vegna Gunnarsbrautar 6, 370 Búðardal lagður fram.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka samtal við málsaðila um að gengið verði frá samningi í samræmi við umræður á fundinum, út frá þeim drögum sem liggja fyrir fundinum.
15. 2610030 - Samkomulag um samnýtingu bílastæðis
Lagt fram erindi og drög að viljayfirlýsingu frá Staðarfellssókn um samnýtingu bílasstæða við kirkjugarðinn á Staðarfelli.
Byggðarráð leggur til að Dalabyggð verði aðili að samkomulagi um nýtingu bílastæða við Staðarfellskirkju en ekki er um fjárhagslega skuldbindingu að ræða, aðeins afnotarétt.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
13. 2610029 - Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki nr. 1002025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins)
Staðgengill skilaði inn umsögn við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki sem var til umsagnar í Samráðsgátt. Umsagnarfrestur var til og með 27. október. Var umsögn í samræmi við fyrri umsögn Dalabyggðar við málið og leitað var álits og samþykkis sveitarstjórnar í tölvupósti.
Umsögn Dalabyggðar við drög að frumvarpi um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki.pdf
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald.pdf
16. 2610025 - Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
Í Samráðsgátt eru til umsagnar viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.
Settar eru fram tillögur að 30 mælikvörðum og skilgreindum viðmiðum sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma.
Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember nk.

Sveitarstjóra falið að klára umsögn og skila inn í samráðsgátt.
Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga - umræðuskjal.pdf
17. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 29. október nk.

Sveitarstjóra falið að skila inn umsögn sveitarfélagsins í samráðsgátt.
frumvarp-um-loftslagslog-þingskj201-202mal.pdf
Mál til kynningar
18. 2609029 - Fyrirhuguð niðurfelling Hjarðarholtsvegar af vegaskrá
Lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið hefur brugðist við tilkynningu, með umsögn um núverandi búsetu.
19. 2610004 - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Ketilsstaðavegur (5807-01) af vegaskrá
Lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið hefur brugðist við tilkynningu, með umsögn um núverandi búsetu.
20. 2610005 - Tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu Stóra-Holtsvegar (5978-01) st, 610-660 af vegaskrá
Lagt fram til kynningar. Sveitarfélagið hefur brugðist við tilkynningu, með umsögn um núverandi búsetu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta