| |
| 1. 2606022 - Skipun varaformanns og ritara | |
| Samþykkt samhljóða | | |
|
| 2. 2606023 - Fundartími félagsmálanefndar | |
| Samþykkt samhljóða | | |
|
| 3. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 | |
félagsmálanefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.
Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 4. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu | |
Félagsmálanefnd Dalabyggðar leggur til að við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.
Málinu vísað til sveitarstjórnar
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 6. 2506014 - Upplýsinga fundur um Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda | |
Félagsmálanefnd Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Félagsmálanefnd telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Sveitartjóra falið að koma áskorun á framfæri og málinu vísað til byggðarráðs Dalabyggðar til upplýsinga.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| |
| 5. 2606028 - Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins | |
Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og undirstrikar mikilvægi virks og öflugs öldungaráðs sem vettvangs samráðs og ráðgjafar í málefnum eldri borgara. Nefndin felur sveitarstjóra að hafa hliðsjón af erindinu í áframhaldandi vinnu.
Samþykkt samhljóða
| | |
|