| |
Carolin Baare Schmidt og Skjöldur Orri Skjaldarson voru gestir á fundinum undir dagskrárlið 1.
| 1. 2301016 - Tjaldsvæðið í Búðardal 2023 | |
Carolin og Skjöldur fara yfir rekstur síðasta ár og áætlanir 2024.
Sorpflokkun gesta ekki sú besta þó merkt ílát séu til staðar, fólk virðist gleyma sér þegar það er í fríi. Skilar sér í kostnaði og vinnu. Stefnt að því að endurnýja tenglahús á tjaldsvæðinu fyrir sumarið og unnið að áætlun fyrir drenun. Rekstraraðilar vinna að betra skipulagi á tjaldsvæðinu með tilliti til gróðurs, vegar, gönguleiða á svæðinu, brunavarna o.s.frv.
Ábending til sveitarfélagsins varðandi fjölda aðila sem gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum, tjaldvögnum og öðrum ferðabílum utan tjaldsvæða í Dalabyggð, m.a. á almennum bílastæðum, við veiðistaði meðfram ám o.s.frv. Í lögreglusamþykkt fyrir Dalabyggð segir: "Eigi má gista í tjöldum, húsbílum, hjólhýsum eða tjaldvögnum á almannafæri í þéttbýli utan sérmerktra svæða."
Nefndin þakkar Carolin og Skildi fyrir komuna. | | |
|
2. 2402009 - Þróunarverkefni í Dalabyggð 2024 | |
Nefndin skoði umræðuefni og kynningar fyrir komandi kaffispjall í Nýsköpunarsetrinu með tilliti til þróunarverkefna í sveitarfélaginu. Rætt um hugmyndir fyrir afþreyingarmöguleika, framleiðslu matvæla í héraðinu, möguleika ferðaþjónustunnar og fleira. Tækifærin til staðar og fjöldi hugmynda. Ýmsir möguleikar hafa opnast til uppbyggingar á þessu sviði m.a. með DalaAuði, eflingu nýsköpunar á öllum skólastigum og styrkingu ímyndar Dalanna. | | |
|
3. 2404009 - Forgangsröðun fjarskiptamála í Dalabyggð | |
Farið yfir það sem komið er inn í skýrsluna og nefndin vinnur áfram að forgangsröðun fjarskiptamála. | | |
|
4. 2404014 - Forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð | |
Í forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð kemur fram: "Forgangsröðun þessi verði uppfærð árlega þar sem hún er borin undir íbúa á opnum fundi, ásamt því að fá umfjöllun atvinnumálanefndar. Að uppfærslu lokinni verði hún tekin fyrir hjá sveitarstjórn Dalabyggðar og send fyrrnefndum aðilum að nýju." Lagt til að opinn fundur verði haldinn þriðjudaginn 4. júní 2024, öll velkomin.
| Forgangsröðun_samþykkt_2023.pdf | | |
|
| |
5. 2401029 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2024 | |
Lagt fram til kynningar. | februar-2024-skyrsla.pdf | mars-2024-skyrsla.pdf | | |
|