| |
| 1. 1902028 - Skrifstofuhúsnæði | |
Tóku til máls: Ólafur K. Ólafsson, Ragnheiður.
Sveitarstjóra falið að ganga til samninga við Sýslumanninn á Vesturlandi um að starfsmaður embættisins fái starfsaðstöðu á skrifstofu Dalabyggðar. Samningurinn verði lagður fyrir byggðarráð til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða. | | Berglind Lilja Þorbergsdóttir sviðsstjóri hjá Sýslumanninum á Vesturlandi sat fundinn undir dagskrárlið 1..
| |
|
| 2. 1903006 - Ársreikningur Dalabyggðar 2018 - fyrri umræða | |
Haraldur Ö. Reynisson endurskoðandi kynnti ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2018 á og fór yfir endurskoðunarskýrslu.
Til máls tóku: Einar Jón, Haraldur, Kristján. Fyrir liggur til fyrri umræðu ársreikningur Dalabyggðar fyrir árið 2018 undirritaður af byggðarráði og sveitarstjóra. Einnig liggur fyrir sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrsla. Rekstrartekjur Dalabyggðar á árinu 2018 voru fyrir A og B-hluta 930,5 millj. kr. en rekstrargjöld 828,6 millj. kr. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 68,6 millj. kr. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 19,8 millj. kr og rekstrarniðurstaða jákvæð um 49,4 millj. kr. Í A hluta voru rekstrartekjur 774,0 millj. kr., rekstrargjöld 675,6 millj. kr. og fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld 2,5 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 81,0 millj. kr. Fastafjármunir A og B hluta voru í árslok 1.176,3 millj. kr., veltufjármunir 224,2 millj. kr. og eignir alls um 1.400,5 millj. kr. Langtímaskuldir voru 367,6 millj. kr. skammtímaskuldir 182,7 millj. kr og skuldir og skuldbindingar alls um 644,5 millj. kr. Fyrir A hluta var veltufé frá rekstri um 112 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 36,5 millj. kr. Fyrir A og B hluta var veltufé frá rekstri 100,5 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 9,5 millj. kr.
Veltufjárhlutfall A og B hluta var 1,23, eiginfjárhlutfall 0,54, skuldahlutfall 69,3% og skuldaviðmið 32%. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 131,5 millj. kr. Tekin voru ný langtímalán á árinu 132,1 millj. kr, þar af eru 82,1 millj.kr. vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð. Handbært fé í ársbyrjun var 141,8 millj. kr. en í árslok 135,8 millj. kr. Oddviti bar upp bókun um ársreikning. Samþykkt samhljóða.
Oddviti lagði til að ársreikningi 2018 verði vísað til síðari umræðu.
Samþykkt í einu hljóði.
Ársreikningurinn verður birtur á vef og íbúar hvattir til að senda inn fyrirspurnir varðandi hann sem teknar yrðu fyrir við síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar. | | Ársreikningur Dalabyggðar - 2018 - Endanlegt.pdf | | Dalabyggð sundurliðunarbók 2018.pdf | | Dalabyggð Endurskoðunarskýrsla 2018-14.mars-2019.pdf | | |
|
| 3. 1809013 - Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð | |
Tóku til máls: Einar Jón, Kristján, Eyjólfur. Tillaga um að samningum við fasteignasala verði slitið. Samþykkt með 4 atkvæðum, (RP, ÞJS, EB, SHS) þrír sitja hjá (SHJ, PJ, EJG) Tillaga um að farið verði í viðræður við meðeiganda sveitarfélagsins að Laugum um fyrirkomulagið varðandi heita vatnið. Tók til máls. Einar Jón. Tillagan samþykkt samhljóða.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að framkomnum kröfum Arnarlóns ehf verði hafnað og lögmanni Dalabyggðar falið að svara bréfi fyrirtækisins. Tóku til máls: Einar Jón, Ragnheiður, Pálmi. Pálmi leggur til að fresta tillögunni. Tillagan féll á jöfnun atkvæðum, einn sat hjá (SHS), þrír á móti (EB,RP,ÞJS), þrír samþykkja (PJ, EJG, SHJ). Tillaga Byggðarráðs lögð fram. Samþykkt með þremur atkvæðum (EB, RP, ÞJS), tveir á móti (EJG, PJ), tveir sátu hjá (SHJ, SHS).
| | Bréf til lögmanns Dalabyggðar_040319.pdf | | |
|
| 4. 1903009 - Beiðni um styrk til foreldrafélags Auðarskóla | |
Til máls tóku: Sveitarstjóri.
Sveitarstjóri leggur fram eftirfarandi tillögu: Foreldrafélagi Auðarskóla verði veittur styrkur að upphæð kr. 400.000 í samræmi við fjárhagsáætlun. Áður en styrkurinn verður greiddur leggi Foreldrafélag Auðarskóla fram siðareglur í samræmi við samþykkt 166. fundar sveitarstjórnar frá 18. október 2018, 16. dagskrárlið. Samþykkt samhljóða. | | Umsókn um styrk frá Foreldrafélagi Auðarskóla.pdf | | |
|
| 5. 1810018 - Ungmennaráð Dalabyggðar | |
Skipan ungmennaráðs staðfest. Samþykkt samhljóða. | | |
|
|
| 7. 1902021 - Dalaveitur - Framkvæmdir 2019 | |
Tók til máls: Kristján,
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 8. 1807008 - Aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir í húsnæði Dalabyggðar | |
Tóku til máls: Ragnheiður, Einar Jón, Svana, Eyjólfur,
Lögð fram eftirfarandi tillaga Ragnheiðar: Tillaga um að umræðu um aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir í húsnæði Dalabyggðar verði vísað frá þar sem lög nr. 85/2007 5.gr. eru svo vítæk að illmögulegt er að framfylgja aldurstakmarki.
Tillagan felld með fjórum atkvæðum (EJG, SHJ, PJ, ÞJS), tveir samþykkir (RP, SHS), einn situr hjá (EB).
Lögð fram tillaga félagsmálanefndar
Samþykkt með 4 atkvæðum (SHJ, PJ, EJG, ÞJS), gegn tveimur (SHS, RP), einn sat hjá (EB). | | Tölvupóstur frá umboðsmanni barna - 18_02_2019.pdf | | Erindi til sveitarstjórnar_Jón Egill Jóhannsson 09_03_2019.pdf | | umsagnir - Kvenfélagið Fjóla - Ungmennafélagið Ólafur Pá - UDN.pdf | | Umsögn ungmennaráðs.pdf | | Minnisblað - 1807008 - 18 ára aldurstakmark.pdf | | sveitastjórnarbréf 2_ Sigurdís Katla Jónsdóttir.pdf | | Tölvupóstur frá umboðsmanni barna - 11_02_2019.pdf | | Tölvupóstur frá umboðsmanni barna - 26_02_2019.pdf | | |
|
|
| 10. 1811005 - Breyting á aðalskipulagi vegna áætlaðs vindorkugarðs í landi Hróðnýjarstaða. | |
Tillaga um að bæta við nafn í málaskrá í landi Hróðnýjarsstaða. Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða. | | Hróðnýjarstaðir, skipulagslýsing.pdf | | ASK_svæði, tillaga - 418ha.pdf | | |
|
| 11. 1902040 - Umsókn um stofnun vegsvæðis úr landi jarðarinnar Hvoll 137860 | |
| Samþykkt samhljóða. | | Umsókn um stofnun vegsvæðis úr landi jarðarinnar Hvoll 137860.pdf | | |
|
| 12. 1903002 - Rekstur Silfurtúns 2019 | |
Tillaga um að sveitarstjórn óski eftir fundi með stjórn Fellsenda varðandi samstarf.
Samþykkt samhljóða.
Tillaga um að óska eftir tveimur hvílarinnlagnarrýmum og einu dagrými.
Samþykkt samhljóða. | | Minnisblað - 1903002 - fundur með heilbrigðisráðherra.pdf | | |
|
| 13. 1712010 - Sameinuð almannavarnanefnd á Vesturlandi | |
Tillaga um viðauka. Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 14. 1902032 - Umsókn í styrkvegasjóð 2019 | |
| Samþykkt samhljóða. | | Styrkvegir í Dalabyggð 2019.pdf | | |
|
| 15. 1901043 - Skólaakstur 2019 - 2022 | |
Tóku til máls: Kristján, Einar Jón,
Málið lagt fram til kynningar. | | |
|
| 16. 1903018 - Breyting á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013 | |
Tók til máls: Ragnheiður,
Ragnheiður leggur fram eftirfarandi bókun. Mótmæli því að styrkja almenningsrétt til að ferðast um eignarlönd í byggð. Ef af því yrði væri verið að bjóða almenning inn á athafnasvæði sem gæti haft í för með sér alvarlegar afleiðingar af ýmsu tagi, td. Slys af völdum búfjár, opin hlið, átroðning á viðkvæm landsvæði og margt fleira.
Oddviti leggur fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjórn felur sveitarstjóra í samráði við oddvita að gera umsögn f.h. Dalabyggðar vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum 60/2013 um náttúruvernd.“ Tillagan samþykkt samhljóða. | | Breyting á lögum um náttúruvernd - samráðsgátt.pdf | | Frumvarp til breytinga á lögum um náttúruvernd.pdf | | |
|
| |
| 17. 1902001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 219 | Tók til máls: Ragnheiður,
Ragnheiður kom með eftirfarandi bókun: 20.1901005-Mál til Alþingi til umsagnar- 2019 lögð fram sex erindi til umsagnar frá nefndarsviði alþingis. Alþingi gefur of stuttan tíma til umsagnar til að það náist að afgreiða mál í nefndum og sveitarstjórn.
Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| 18. 1902010F - Byggðarráð Dalabyggðar - 220 | | Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| 19. 1901002F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 8 | | Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| 20. 1902009F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 9 | | Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| 22. 1902002F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 22 | | Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| 23. 1902003F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 90 | | Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| 24. 1902004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 91 | | Fundargerðin samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
| 25. 1902027 - Dalaveitur - fundargerðir stjórnar 2019 | |
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. | | Dalaveitur ehf 16.pdf | | |
|
| 26. 1903016 - Fundargerðir ungmennaráðs 2019 | |
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. | | 1. fundur ungmennaráðs.pdf | | |
|
| 27. 1902003 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019 | |
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. | | |
|
| 28. 1903011 - Fundargerðir Sorpurðunar Vesturlands 2019 | | Fundargerðin lögð fram til kynningar. | | |
|
| 29. 1902025 - Fundargerð aðalfundar Veiðifélags Laxár í Hvammssveit 2. mars 2019 | | Lögð fram til kynningar. | | fundargerð aðalfundar 2019 - ársreikningur 2018 - bændadagar - samningur um leigu - til birtingar.pdf | | |
|
| |
| 21. 1903010 - Aðalfundur SSV 03.04.2019 | |
| Lögð fram til kynningar. | | Fundarboð á aðalfund SSV 03.04.2019.pdf | | |
|
| 30. 1903014 - Fundarboð - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2019 | | Lögð fram til kynningar. | | Tölvupóstur 11_03_2019.pdf | | Fundarboð - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 29_03_2019.pdf | | |
|
| 31. 1901014 - Skýrsla frá sveitarstjóra. | Lögð fram til kynningar. Til máls tók: Kristján. | | Minnisblað - 1901014 - skýrsla sveitarstjóra mars 2019.pdf | | |
|