| |
Linda Guðmundsdóttir sat fundinn undir lið 1.
| 1. 2404001 - DalaAuður - staða mála | |
Fræðslunefnd þakkar Lindu fyrir góða yfirferð. | | |
|
Herdís Erna Gunnarsdóttir sat fundinn undir liðum 2 og 3.
| 2. 2308003 - Auðarskóli málefni grunnskóla 2023-2024 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála. Viðgerðum við sundlaug Auðarskóla/Dalabúðar er lokið og sundkennsla hafin. Farið yfir stöðu starfsmannamála og er auglýsing um laus störf í loftinu núna, umsóknarfrestur til 15. apríl n.k. Einnig var farið yfir dagskrá og skipulag skólastarfsins fram að vori. | | |
|
3. 2308004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2023-2024 | |
Skólastjóri fór yfir stöðu mála. Auglýsing um laus störf í leikskólanum er í loftinu núna og er umsóknarfrestur til 15. apríl. Góður gangur er í framfylgni námsvísa og þeirra verkefna sem á dagskrá eru tengd því. Skólastjóri vakti athygli á að aðstoðarleikskólastjóri flytji erindi á ráðstefnu Ásgarðs sem haldinn verður í Hofi á Akureyri n.k. föstudag.
| | |
|
4. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 | |
Formaður starfshópsins fór yfir stöðu mála. | | Svanhvít Lilja Viðarsdóttir vék af fundi að loknum umræðum um lið 4.
| |
|
5. 2301027 - Skólaakstur 2024-2027 | |
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála. | | |
|
6. 2208010 - Tómstundir í Dalabyggð | |
Formaður Undra kynnti að búið er að manna umsjón tómstundastarfs í Búðardal n.k. sumar, n.t.t. frá 4. júní til og með 28. júní. Fræðslunefnd fagnar þessu góða frumkvæði Íþróttafélagsins Undra. | | |
|
7. 2401041 - Ungmennaráð 2024 | |
Fræðslunefnd leggur til að ungmennaráð fundi með sveitarstjórn á reglubundnum fundardegi sveitarstjórnar í júní, n.t.t. þann 13. júní. Tómstundafulltrúa falið að undirbúa fundinn í samráði við ungmennaráð. | | |
|
8. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal í MB | |
| |
|