Til bakaPrenta
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 57

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
27.04.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Garðar Freyr Vilhjálmsson formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Sigurður Ólafsson varamaður,
Jón Magnús Katarínusson varamaður,
Einar Jón Geirsson varamaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri ,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Lagt til að máli 2604021 - Óstaðbundin störf viðhorf, væntingar og búseta - skýrsla, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 4.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
Bjarnheiður Jóhannsdóttir kom sem áheyrnarfulltrúi undir dagskrárlið 1 í gegnum fjarfundabúnað.
1. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Verkefnastjóri fer yfir stöðu mála og fundi sem hafa verið haldnir.
Búið að funda með Rauða krossinum í Dölum og Reykhólasveit, Björgunarsveitinni Ósk og Slysavarnadeild Dalasýslu.
Teknar saman spurningar og ábendingar nefndarmanna til Vegagerðarinnar.
Erindi til viðbragðsaðila ítrekuð varðandi mönnun og þörf. Það má ekki vanmeta fyrirfram aðsókn vegna atburðarins í Dalabyggð.
Nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu.
2. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðuna m.a. þær upplýsingar sem fram koma í frétt frá 24. mars sl. á vef Dalabyggðar.
Nefndin ítrekar við áhugasama aðila sem vilja tryggja sér bil í tilvonandi atvinnuhúsnæði að hafa samband sem fyrst við verkefnastjóra Byggðastofnunar, Rúnar Þór Guðbrandsson, í síma 861-4000 eða með tölvupósti á runar@dugandi.is
Mál til kynningar
3. 2603015 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2026
Þróun atvinnuleysis 2025 og staðan fyrstu mánuði 2026.

Janúar, febrúar og mars hafa 8 einstaklingar verið atvinnulausir að jafnaði hvern mánuð í Dalabyggð. Þar af 4 langtímaatvinnulausir.

Janúar - Atvinnuleysi jókst og fór úr 4,4% í 4,9% á landinu sem heild. Atvinnuleysi hækkaði mest á Vesturlandi, fór úr 3,6% í 4,1%. Atvinnulausum fjölgaði heilt yfir í janúar en þróunin var misjöfn eftir atvinnugreinum, mest var hún í ferðaþjónustu. Alls komu inn 168 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í janúar, þar af 17 á Vesturlandi.

Febrúar - Atvinnuleysi stóð í stað og var 4,9% á landinu sem heild. Atvinnuleysi lækkaði mest á Vesturlandi og fór úr 4,1% í 3,7%. Alls komu inn 285 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í febrúar, þar af 5 á Vesturlandi.

Mars - Atvinnuleysi lækkaði og var 4,8% á landinu sem heild. Atvinnuleysi hækkaði lítillega á höfuðborgarsvæðinu. Á Vesturlandi lækkaði það úr 3,7% í 3,2%. Alls komu inn 361 nýtt starf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í mars, þar af 10 á Vesturlandi.

Lagt fram til kynningar.

Verkefnastjóra falið að miðla lausum störfum í Dalabyggð til Vinnumálastofnunar.
Atvinnuleysistölur ?25.pdf
4. 2604021 - Óstaðbundin störf viðhorf, væntingar og búseta - skýrsla
Gefin hefur verið út skýrsla sem Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum vann fyrir SSV um óstaðbundin störf og hvort þetta sé tækifæri til íbúafjölgunar og atvinnusóknar á landsbyggðinni.
Haldinn var kynningarfundur í morgun og upptöku frá honum má nálgast hér: https://www.youtube.com/watch?v=LSrGWiR8MK0

Lagt fram til kynningar.
Lokaskyrsla-ostadbundin-storf-final-2.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20 

Til bakaPrenta