Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 166

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
02.09.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Guðbrandur Tumi Gíslason formaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir aðalmaður,
Sigrún B Halldórsdóttir aðalmaður,
Pálmi Ólafsson aðalmaður,
Valdís Gunnarsdóttir aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Kristján Ingi Arnarsson embættismaður, Hlynur Torfi Torfason Skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri
Borin var upp sú tillgaga að færa umræður um fjármál aftast í málaskránna, sem var samþykkt. Einnig var borið upp að bæta tveimur málum á dagskrá, sem var einnig samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir þann tímaramma sem ætlaður er til undirbúnings og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2027 til 2030. Einnig kynntar þær forsendur sem Samband íslenskra sveitarfélaga leggur upp með í þeirri vinnu sem framundan er.

Fastanefndum Dalabyggðar er falið að yfirfara sína málaflokka í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Skoða vel og ræða bæði útgjöld og innkomu tengda þeim deildum sem falla undir svið deildanna. Tillögum nefnda verði skilað til starfsmanna, til úrvinnslu.

Nefndin fór yfir stöðu málaflokka sem falla undir hana. Sveitarstjóra falið að vinna málin áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Dagsetningar vegna vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027 - 2030, samþ.pdf
2. 2607006 - Vatnaáætlun Íslands 2028-2033
Afgreiðsla fundar byggðarráðs Dalabyggðar frá fundi nr. 353: "Lagt fram erindi frá Umhverfis- og orkustofnun sem vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála.
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um áætlanir og verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18. gr.laga um stjórn vatnamála.

Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða"

Nefndin felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu út frá gildandi aðalskipulagi og þeim framkvæmdum sem mögulega eru í farvatninu í Dalabyggð.
3. 2602034 - Styrkvegir 2026
Lagt fram yfirlit um úthlutun fjármagns til styrkvega í Dalabyggð fyrir árið 2026.
Nefndin felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.
4. 2608016 - Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Framlagt erindi frá Samtökum um dýraverð á Íslandi þar sem samtökin hvetja til þess að tekin sé afstaða til loðdýraræktar í aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Erindi fram lagt. Nefndin þakkar erindið.
hvatningsveitaf.loð.pdf
5. 2608018 - breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal
Erindi Orku náttúrurunnar (ON) dags. 28. Ágúst 2026, þar sem óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Vesturbraut 15, sem felst í að heimila hleðslustöð ásamt spennistöð. Lögun byggingareits er breytt til að gefa svigrúm fyrir hleðslustöð. Staðfangi lóðar er breytt í deiliskipulaginu úr Gunnarbraut 4 í Vesturbraut 15 í samræmi við núverandi skráningu í staðfangaskrá.
Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ)
Á móti einu atkvæði (VG)
6. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15
Erindi Orku náttúrurunnar (ON) dags. 19. ágúst 2026 þar sem óskað er framkvæmdaleyfis fyrir jarðvegsskiptum og framkvæmdum vegna uppsetningar hleðslustöðvar.
Umsókn samþykkt með fyrirvara um gildistöku óverulegrar breytingar deiliskipulags á lóðinni, sbr. 5. mál á dagskrá fundar.
Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar samsvarandi deiliskipulagsbreyting hefur tekið gildi og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ)
Á móti einu atkvæði (VG)
8. 2608015 - Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt í landi Kolsstaða
Erindi landeiganda Kristján E. Karlssonar dags. 12. ágúst 2026, þar sem sótt er um framkvædmaleyfi fyrir skógrækt á 11.7 hektörum á jörðinni Kolsstöðum (L137944). Umsókn fylgir hnitsett afmörkun svæðisins.
Afla þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands/minjavarðar Vesturlands.
Einnig þarf að afla umsagnar heilbrigðiseftirlits Vesturlands þar sem skógræktarsvæðið er á skilgreindu grannsvæði vatnsverndar skv. Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032.

Afgreiðslu frestað.
9. 2608021 - Tjaldsvæðið í Búðardal 2026
Rætt um skipulag tjaldsvæðisins í Búðardal.
Nefndin felur starfsmönnum sveitarfélagsins að vinna málið áfram.
11. 2609005 - Göngustígur frá Gunnarsbraut að Brekkuskógi
Lagt fram erindi frá Skógræktarfélagi Dalabyggðar um lagningu göngustígs frá Gunnarsbraut að göngustíg við Brekkuskóg.
Nefndin tekur vel í erindið og felur starfsmönnum Dalabyggðar að vinna áfram að útfærslu. Það verður framlag Dalabyggðar til verkefnisins.
12. 2609004 - Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lengingu sjóvarnar við Ægisbraut, Búðardal
Vegagerðin sækir um framkvæmdarleyfi vegna lengingar á sjóvörn við Ægisbraut um rúma 70m til suðurs.
Umsókn samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Mál til kynningar
7. 2608002 - Reglugerðarbreytingar vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í samráðsgátt
Alþingi samþykkti nýlega frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með lögunum eru heilbrigðisnefndir lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.
Fyrir liggur að ábyrgð og framkvæmd nokkurra verkefna heilbrigðiseftirlita muni færast til sveitarfélaga.

Nefndin ræddi málið.
Yfirlitsskjal yfir reglugerðarbreytingar_14_7_2026.pdf
10. 2608022 - Úrgangsþjónusta 2026 - fyrirspurnir og umræður
Vorið 2026 tók í gildi nýr verksamningur við Gámafélags Íslands um úrgangsþjónustu. Fyrirskomulag framkvæmdar var mikið til óbreytt frá fyrri samning að innheimtu fyrir gjaldskyldan úrgang á söfnunarstað undanskilinni.
Rekstur grenndarstöðva fyrir frístundahús gengur misjafnlega, sérstaklega á sumrin þegar notkun er mikil. Meðal áskorana þar er losun á öðru en heimilisúrgangi og nýting annarra (t.d. heimila og fyrirtækja/rekstraraðila) á aðstöðunni.
Umræða um fyrirkomulag og svigrúm til þróunar, m.a. út frá gerð fjárhagsáætlunar.

Nefndin ræddi málið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30 

Til bakaPrenta