Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 269

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
13.05.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt er til að mál nr. 2503006, Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 4.

Lagt er til að mál nr.2602006, Mötuneyti Auðarskóla, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 6.

Lagt er til að mál nr. 2405006, Húsnæði viðbragðsaðila - viljayfirlýsing, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 7.

Lagt er til að mál nr. 2604005F, fundargerð byggðarráðs Dalabyggðar frá fundi nr. 350 verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 10.

Lagt er til að mál nr. 2604001F, fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar Dalabyggðar frá fundi nr. 164 verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 12.

Lagt er til að mál nr. 2605014, Staða húsnæðisuppbyggingar í Dalabyggð verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 21.

Lagt er til að mál nr. 2605013, Kjörtímabilið 2022 - 2026, verði bætt á dagskrá og verði mál nr. 23.

Aðrir liðir færist til skv. framangreindu.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II
Á 350. fundi byggðarráðs var tillaga að viðauka II við fjárhagsáætlun 2026 samþykkt og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
Áhrif Viðauka II á fjárhagsáætlun ársins 2026 eru að kostnaður í A-sjóði hækkar um 2,1 m.kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé og samtals eignfærslur hækka um 62,6 m.kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé.
Rekstrarafkoma ársins 2026 er áætluð m.t.t. Viðauka II neikvæð sem nemur 18,5 m.kr.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu að Viðauka II samhljóða.

Til máls tóku: Bjarki og Skúli
Viðauki_2_v2..pdf
2. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun
Framlagðar nýjar reglur um garðslátt elli- og örorkulífeyrisþega í Dalabyggð. Byggðarráð samþykkti framkomna tillögu á 349. fundi sínum og vísaði til staðfestingar í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.

Til máls tók: Bjarki
3. 2604010 - Gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026
Framlögð tillaga að uppfærðri gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og slökkviliðs Dalabyggðar fyrir árið 2026. Byggðarráð samþykkti framkomna tillögu á 349. fundi sínum og vísaði til staðfestingar í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu að uppfærðri gjaldskrá samhljóða.

Til máls tók: Bjarki
4. 2503006 - Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar
Á 349. fundi byggðarráðs var fjallað um verðskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal og eftirfarandi bókað:

"Kristján Ingi kynnti stöðu mála. Byggðarráð þakkar Kristjáni Inga fyrir yfirferðina og fól honum og sveitarstjóra að útfæra tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal fyrir fund sveitarstjórnar 13. maí n.k."

Er hér framlögð tillaga að gjaldskrá söfnunarstöðvar til umræðu í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar í Búðardal.

Til máls tók: Bjarki
5. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð
Byggðarráð vísaði fyrirliggjandi samkomulagi til staðfestingar í sveitarstjórn á 349. fundi sínum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samkomulag.

6. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Byggðarráð vísaði fyrirliggjandi samkomulagi með áorðnum breytingum til staðfestingar í sveitarstjórn á 350. fundi sínum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samkomulag.
7. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila - viljayfirlýsing
Framlögð til staðfestingar í sveitarstjórn fyrirliggjandi viljayfirlýsing Dalabyggðar við Björgunarsveitina Ósk um aðstöðu fyrir slökkvilið Dalabyggðar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að viljayfirlýsingu.

Til máls tók: Bjarki
8. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun
Umhverfis- og skipulagsnefnd tók tillögu að aðalskipulagsbreytingu til afgreiðslu að afloknu auglýsingaferli sem lauk þann 11.maí sl. á 164. fundi sínum. Bókun umhverfis- og skipulagsnefndar er svohljóðandi; "Tillaga að aðalskipulagsbreytingu v.Hvannármiðlunar hefur verið í auglýsingaferli sem lauk þann 11. maí sl. og er hér lögð fram til endanlegrar afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar.
Samþykkt með lagfæringum eftir athugasemdir umsagnaraðila, með 1. mgr 32. greinar Skipulagslaga til hliðsjónar og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn" og er hér með lögð fram til staðfestingar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta samþykkt umhverfis- og skipulagsnefndar um aðalskipulagsbreytingu.

Til máls tók: Guðlaug
Samantekt umsagna við auglýsta tillögu og viðbrögð.pdf
Bréf Skipulagsstofnunar v.breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsmiðlunar, Hvanná..pdf
Fundargerðir til kynningar
9. 2604002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 349
9.1. 2604010 - Gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026
Framlögð tillaga að uppfærðri gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar.
9.2. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12
Framlagt erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12.
Byggðarráð þakkar framkomið erindi.
Erindið rætt og vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar.
9.3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Rætt um hlutverk og skyldur Dalabyggðar varðandi undirbúning og utanumhald í tengslum við almyrkva í ljósi þeirra atriða sem rædd voru á síðasta fundi byggðarráðs.
Framlagt minnisblað um stöðu mála.
Byggðarráð tekur jafnframt undir bókun atvinnumálanefndar þar sem nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu.
9.4. 2604011 - Laun vinnuskóla 2026
Lögð fram tillaga að launum fyrir vinnuskóla Dalabyggðar sumarið 2026 og farið yfir skipulag starfsins í sumar.
Hækkun pr. tíma er 3,5% fyrir árið 2026.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að hækkun launataxta vinnuskóla.

Ljóst er að ákveðin óvissa er uppi varðandi vinnuskóla Dalabyggðar í sumar í ljósi þess að ekki hafa neinar umsóknir um umsjón skólans borist, er það áhyggjuefni og ljóst að mál þurfa að skýrast á allra næstu dögum.
9.5. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun
Framlagt minnisblað um endurskoðun fyrirkomulags vegna garðsláttar elli- og örorkulífeyrisþega.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar.
9.6. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð
Sveitarstjóri kynnti stöðu viðræðna við verktaka og kynnti drög að viðauka við núverandi samning.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með áorðnum viðauka og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
9.7. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Sveitarstjóri kynnti stöðu viðræðna við verktaka.
9.8. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti
Rætt um stöðu máls í sambandi við uppgjör og útgáfu afsals.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
9.9. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur
Rætt um stöðu máls í ljósi umræðna og samskipta við fulltrúa hóps sem lýst hefur vilja til að koma að rekstri Félagsheimilisins Tjarnarlundar.
Það er ljóst að ekki verður aðhafst frekar á því kjörtímabili sem senn er á enda varðandi rekstrar- og eignarhald á Félagsheimilinu Tjarnarlundi.
9.10. 2604020 - Umsókn um undanþágu vegna fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi
Framlögð umsókn um undanþágu vegna fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni um undanþágu um fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi.
9.11. 2604023 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
9.12. 2604026 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Framlögð umsókn um styrk vegna greiðslu fasteignaskatts.
Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka.
9.13. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal
Farið yfir stöðu mála með fulltrúum Byggðastofnunar sem komu inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.
Byggðarráð þakkar fulltrúum Byggðastofnunar fyrir fundinn.
9.14. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila
Farið yfir stöðu mála og framkomið erindi frá Björgunarsveitinni Ósk.
Byggðarráð þakkar framkomið erindi, samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við bréfritara og fá fram frekari upplýsingar um m.a. aðgengi og innra skipulag húsnæðis þess sem um ræðir.
9.15. 2503006 - Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar
Rætt um verðskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal.
Kristján Ingi kynnti stöðu mála. Byggðarráð þakkar Kristjáni Inga fyrir yfirferðina og fól honum og sveitarstjóra að útfæra tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal fyrir fund sveitarstjórnar 13. maí n.k.
9.16. 2504018 - Afskriftabeiðnir
Kynnt beiðni Sýslumannsembættisins varðandi afskriftir krafna.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni.
9.17. 2604025 - Ósk um að taka í fóstur lóðina Stekkjarhvammur 3
Framlagt erindi þess efnis að fá að taka í fóstur lóðina að Stekkjarhvammi 3.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að umsækjendur fái að taka lóðina í fóstur og verði þau afnot framlag sveitarfélagsins að þessu jákvæða verkefni.
9.18. 2602017 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
9.19. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II - rekstur á fyrsta ársfjórðungi
Rætt um gerð Viðauka II við Fjárhagsáætlun 2026.
Einnig rætt um stöðu á rekstri á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026.
Rætt um stöðuna á rekstri og hvað þurfi að taka tillit til við gerð Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026.

Varðandi framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs þá er ljóst að bæta þarf í vegna lokafrágangs við Íþróttamiðstöð og vegna hitaveituframkvæmda á Laugum. Samþykkt að vísa til gerðar Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026.
10. 2604005F - Byggðarráð Dalabyggðar - 350
Til máls tók: Einar
10.1. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II
Framlögð tillaga að Viðauka II við fjárhags- og framkvæmdaáætlun Dalabyggðar árið 2026.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framkomna tillögu að Viðauka II og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
10.2. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti
Rætt um stöðu máls í sambandi við uppgjör og útgáfu afsals.
10.3. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila
Farið yfir stöðu mála og framkomið erindi frá Björgunarsveitinni Ósk en í kjölfar 349. fundar byggðarráðs hefur sveitarstjóri átt fund með forsvarsmönnum Björgunarsveitarinnar og slökkviliðsstjóra um þá kosti sem eru í stöðunni.
Sveitarstjóra falið að taka málið áfram í anda umræðu á fundinum.
10.4. 2603004 - Útboð tæming á rotþróm 2026-2028
Sveitarstjóri sagði frá framkomnum tilboðum í tæmingu rotþróa í kjölfar útboðs fyrir árin 2026 til 2028.
10.5. 2605006 - Rarik, umsóknir um lóðir fyrir veitumannvirki 2026
Rarik sækir um tvær lóðir vegna veitumannvirkja í Búðardal. Ásuhvamm 1a vegna lokahúss fyrir hitaveitu sem að auki yrði áningarstaður með fróðlegum upplýsingum. Miðbraut 4 fyrir spennistöð, sem er flutningur á núverandi spenni úr húsnæði Rarik að Miðbraut 6.
Byggðarráð samþykkir úthlutun beggja lóðanna, þ.e. Ásuhvamms 1a og Miðbrautar 4.
10.6. 2605009 - Umsókn um lóð Iðjubraut
Framlögð umsókn um lóð við Iðjubraut.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir umsókn um lóð með fyrirvara um þörf á deiliskipulagsbreytingu sem lögð verður fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd á næsta fundi.
10.7. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla
Kynnt drög að samningi um framlengingu samnings við verktaka vegna mötuneytis Auðarskóla.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með áorðnum breytingum og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
10.8. 2602017 - Starfsmannamál
Rætt um starfsmannamál.
Farið yfir stöðu mála.
Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málum í anda umræðu á fundinum.

Þuríður vék af fundi undir hluta af þessum lið.
11. 2604004F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 150
Til máls tók: Ingibjörg
11.1. 2604022 - Hver vegur að heiman
Inn á fundinn kemur Kristján Meldal verkefnastjóri frá SSV og kynnir verkefnið "Hver vegur að heiman" sem er samstarfsverkefni Dalabyggðar og SSV með stuðningi frá Byggðastofnun.
Fræðslunefnd þakkar Kristjáni fyrir góða yfirferð og tekur undir þau sjónarmið sem nefnd eru varðandi mikilvægi átthagafræðslu og annarra þátta varðandi sjálfsmynd íbúa og samfélagsins. Spennandi verður að sjá framvindu þessa verkefnis á næstu misserum.
11.2. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal
Farið yfir stöðu mála varðandi akstur framhaldsskólanema úr Búðardal.
Tilraunaverkefni það sem fékkst stuðningur við er nú á enda og ljóst að ekki er grundvöllur fyrir að svo stöddu að framhald verði á.
11.3. 2603021 - Leikjanámskeið 2026
Rætt um stöðu mála í kjölfar þess að auglýsing fór í loftið þar sem auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að halda utan um sumar- og leikjanámskeið.
Fram er komin hugmynd frá Eiríksstöðum varðandi utanumhald um sumar- og leikjanámskeið í sumar og vill fræðslunefnd lýsa ánægju sinni með þann áhuga sem þar birtist. Verið er að skoða með grundvöll þess samstarfs og kemur í ljós á næstu dögum hvert framhaldið verður.

Einnig rætt um stöðuna hvað vinnuskóla í sumar varðar.
11.4. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026
Farið yfir stöðu mála í grunnskólanum.
Skóladagatal næsta skólaárs lagt fram til staðfestingar.
Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála. Búið er að auglýsa laus störf kennara og er umsóknarfrestur opinn, verið er að skoða þörf fyrir auglýsingu um önnur störf.
Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.

Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra að ganga frá því til birtingar.
11.5. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025
Farið yfir stöðu mála í leikskólanum.
Skóladagatal næsta skólaárs lagt fram til staðfestingar.
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála í fjarveru aðstoðarleikskólastjóra.

Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.

Vinna við námsvísi næsta skólaárs er á lokametrunum.
Núna eru 28 börn á leikskólanum og útlit fyrir að óbreyttu að frá hausti verði þau 25. 5 börn færast í grunnskólanum af þeim sem nú eru á leikskólanum.

Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra að ganga frá því til birtingar.
12. 2604001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 164
12.1. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu v.Hvannármiðlunar hefur verið í auglýsingaferli sem lauk þann 11. maí sl. og er hér lögð fram til endanlegrar afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar.
Samþykkt með lagfæringum eftir athugasemdir umsagnaraðila, með 1. mgr 32. greinar Skipulagslaga til hliðsjónar og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
12.2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi
Framlögð umsókn um byggingarleyfi í ljósi uppfærðrar tillögu að afstöðu lokahúss þar sem gangstétt við Ásuhvamm hefur verið færð vestan við götu. Bílastæðum hefur einnig verið fækkað.
Samþykkt með fyrirvara um lok grenndarkynningar og samþykkt Vegagerðarinnar.
12.3. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal - Iðjubraut
Rætt um gildandi deiliskipulag við Iðjubraut í Búðardal og mögulega þörf á lítilsháttar endurskoðun.
Nefndin samþykkir að fela skipulagsfulltrúa, í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir og umræður á fundinum, að gera óverulega deiliskipulagsbreytingu og kynna áformin fyrir RARIK, fyrir næsta fund nefndarinnar.
12.4. 2604008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Álftafirði
Framlögð umsókn frá Vegagerðinni um efnistöku og efnisvinnslu.
Samþykkt samhljóða.
12.5. 2602010 - Umsókn um stofnun lögbýlis
Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi umsókn um stofnun lögbýlis.
Frestað vegna ónógra gagna, skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
12.6. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12
Vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd af 349. fundi byggðarráðs.
Nefndin þakkar erindið. Leggur hún til að farið verði í þarfagreiningu og yfirferð lóðaleigusamninga, með það að markmiði að bæta úr.
12.7. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15
Framlögð til kynningar gögn vegna fyrirhugaðrar hleðslustöðvar við Vesturbraut 15.
Nefndin leggst ekki gegn áformunum.
12.8. 2604007 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í Dalakoti
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í Dalakoti.
Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna.
12.9. 2605011 - Umsókn um byggingarleyfi að Lyngbrekku
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á fjósi.
Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna og gæta samræmis við lög um dýravelferð.
12.10. 2604018 - Umsókn um stofnun lóðar að Háafelli
Framlögð umsókn um stofnun lóðar að Háafelli.
Nefndin samþykkir framlagða umsókn.
12.11. 2604017 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 gámum á Vesturbraut 15
Framlögð umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 gámum á Vesturbraut 15.
Nefndin samþykkir stöðu gáma til eins árs, í samræmi við reglur.
12.12. 2604016 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi að Hömrum
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi að Hömrum.
Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna.
12.13. 2603003 - Refa og minnkaveiði 2026-2028
Kynnt staða mála.
12.14. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Framlagt til kynningar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd minnisblað verkefnastjóra um hlutverk og skyldur sveitarfélagsins varðandi undirbúning og utanumhald í tengslum við almyrkva á sólu þann 12. ágúst n.k.
13. 2510005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 57
13.1. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Verkefnastjóri fer yfir stöðu mála og fundi sem hafa verið haldnir.
Búið að funda með Rauða krossinum í Dölum og Reykhólasveit, Björgunarsveitinni Ósk og Slysavarnadeild Dalasýslu.
Teknar saman spurningar og ábendingar nefndarmanna til Vegagerðarinnar.
Erindi til viðbragðsaðila ítrekuð varðandi mönnun og þörf. Það má ekki vanmeta fyrirfram aðsókn vegna atburðarins í Dalabyggð.
Nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu.
13.2. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal
Farið yfir stöðu mála.
Farið yfir stöðuna m.a. þær upplýsingar sem fram koma í frétt frá 24. mars sl. á vef Dalabyggðar.
Nefndin ítrekar við áhugasama aðila sem vilja tryggja sér bil í tilvonandi atvinnuhúsnæði að hafa samband sem fyrst við verkefnastjóra Byggðastofnunar, Rúnar Þór Guðbrandsson, í síma 861-4000 eða með tölvupósti á runar@dugandi.is
13.3. 2603015 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2026
Þróun atvinnuleysis 2025 og staðan fyrstu mánuði 2026.

Janúar, febrúar og mars hafa 8 einstaklingar verið atvinnulausir að jafnaði hvern mánuð í Dalabyggð. Þar af 4 langtímaatvinnulausir.

Janúar - Atvinnuleysi jókst og fór úr 4,4% í 4,9% á landinu sem heild. Atvinnuleysi hækkaði mest á Vesturlandi, fór úr 3,6% í 4,1%. Atvinnulausum fjölgaði heilt yfir í janúar en þróunin var misjöfn eftir atvinnugreinum, mest var hún í ferðaþjónustu. Alls komu inn 168 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í janúar, þar af 17 á Vesturlandi.

Febrúar - Atvinnuleysi stóð í stað og var 4,9% á landinu sem heild. Atvinnuleysi lækkaði mest á Vesturlandi og fór úr 4,1% í 3,7%. Alls komu inn 285 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í febrúar, þar af 5 á Vesturlandi.

Mars - Atvinnuleysi lækkaði og var 4,8% á landinu sem heild. Atvinnuleysi hækkaði lítillega á höfuðborgarsvæðinu. Á Vesturlandi lækkaði það úr 3,7% í 3,2%. Alls komu inn 361 nýtt starf sem auglýst voru í vinnumiðlun hjá Vinnumálastofnun í mars, þar af 10 á Vesturlandi.
Lagt fram til kynningar.

Verkefnastjóra falið að miðla lausum störfum í Dalabyggð til Vinnumálastofnunar.
13.4. 2604021 - Óstaðbundin störf viðhorf, væntingar og búseta - skýrsla
Gefin hefur verið út skýrsla sem Rannsóknarsetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum vann fyrir SSV um óstaðbundin störf og hvort þetta sé tækifæri til íbúafjölgunar og atvinnusóknar á landsbyggðinni.
Haldinn var kynningarfundur í morgun og upptöku frá honum má nálgast hér: https://www.youtube.com/watch?v=LSrGWiR8MK0
Lagt fram til kynningar.
14. 2603006F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 49
14.1. 2511011 - Bæjarhátíð 2026
Farið yfir stöðu á undirbúningi hátíðarinnar með verkefnastjóra hennar.
Rætt um hugmyndir og mögulega viðburði á hátíðarhöldunum í sumar.
Fyrstu drög að dagskrá er samblanda atriða og dagskárliða fyrir breiðan hóp.
Unnið áfram að skipulagi.
14.2. 2604006 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026
Gefið hefur verið út að barnamenningarhátíðin BARNÓ - BEST MEST VEST fer fram í október 2026.
Nefndin upplýst um að BARNÓ verði í haust. Undirbúningur verði hafinn eftir sumarið.
15. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 996..pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 997..pdf
16. 2601006 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2026
Fundur-242..pdf
17. 2605007 - Aðalfundur menningar og framfarasjóðs Dalasýslu
Mál til kynningar
18. 2604014 - Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna 2026
19. 2605004 - Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku
Raforkueftirlit_SSKS_jöfnunargjald_alþingi_april2026..pdf
20. 2605008 - Ársfundur Brák íbúðarfélags hses
Fundargerð Ársfundar 2025 - Brák íbúðafélag hses 28.04.2026..pdf
21. 2605014 - Staða húsnæðisuppbyggingar í Dalabyggð
Meðfylgjandi er yfirlit frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála.

Í bréfinu er meðal annars fjallað um niðurstöður árlegrar samantektar HMS á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga, stöðu íbúðauppbyggingar og lóðaúthlutunar, auk þess sem vakin er athygli á þeim verkefnum sem nýkjörnar sveitarstjórnir standa frammi fyrir að loknum sveitarstjórnarkosningum. Þar á meðal er vísað til skyldu sveitarstjórna til að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag og, eftir atvikum, svæðisskipulag í ljósi landskipulagsstefnu og annarra stefnumarkandi forsendna.

HMS hyggst á næstu misserum funda með sveitarstjórnum um land allt til að ræða stöðu og áskoranir í húsnæðis- og skipulagsmálum og hvernig stofnunin getur stutt sveitarfélögin í þeirri vinnu.

HMS yfirlit - Dalabyggð.pdf
22. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026
Til máls tók: Bjarki
269. fundur 13. maí 2026.pdf
23. 2605013 - Kjörtímabilið 2022 - 2026
Rifjuð upp ýmis þau verkefni stór og smá sem hafa verið á borði sveitarstjórnar á kjörtímabilinu sem nú er senn á enda.
Til máls tóku: Einar, Skúli (2), Garðar, Þuríður, Eyjólfur; Guðlaug, Bjarki og Ingibjörg.

Sveitarstjórn þakkar gott samstarf við starfsfólk, nefndarfólk og aðra þá sem að málum hafa komið með einum eða öðrum hætti á kjörtímabilinu.

Framtíðin í Dölum er björt !
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta