| |
| 1. 1803012 - Ársreikningur 2017 | |
Til máls tók: Sveinn Fyrir liggur til fyrri umræðu ársreikningur Dalabyggðar fyrir árið 2017 undirritaður af byggðarráði og sveitarstjóra. Einnig liggur fyrir sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrsla. Rekstrartekjur Dalabyggðar á árinu 2017 voru fyrir A og B-hluta 895,9 millj. kr. en rekstrargjöld 796,7 millj. kr. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 70,7 millj. kr. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu 9,8 millj. kr og rekstrarniðurstaða jákvæð um 61,3 millj. kr. Í A hluta voru rekstrartekjur 751,0 millj. kr., rekstrargjöld 656,4 millj. kr. og fjármagnstekjur umfram fjármagnsgjöld 4,7 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 80,4 millj. kr. Fastafjármunir A og B hluta voru í árslok 944,6 millj. kr., veltufjármunir 245,4 millj. kr. og eignir alls um 1.189 millj. kr. Langtímaskuldir voru 244,6 millj. kr., skammtímaskuldir 191,3 millj. kr., lífeyrisskuldbinding 90,2 millj. kr. og skuldir og skuldbindingar alls því um 526,2 millj. kr. Fyrir A hluta var veltufé frá rekstri 91,1 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 127,2 millj. kr. Fyrir A og B hluta var veltufé frá rekstri 84,4 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 129,1 millj. kr.
Veltufjárhlutfall A og B hluta var 1,28, eiginfjárhlutfall 0,56, skuldahlutfall 59% og skuldaviðmið 48%. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 65,6 millj. kr. Ekki voru tekin voru ný langtímalán á árinu 2017. Handbært fé í ársbyrjun var 93,9 millj. kr. en í árslok 141,8 millj. kr. Oddviti lagði til að ársreikningi 2017 verði vísað til síðari umræðu.
Samþykkt í einu hljóði.
Gert er ráð fyrir að ársreikningurinn verði kynntur á íbúafundi 10. apríl nk. og verði til síðari umræðu 17. apríl nk. | | |
|
| 2. 1709010 - Ísland ljóstengt 2018 | |
Tillaga: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að undirrita samninginn. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að styrkurinn, kr. 50.949.000,- renni til Dalaveitna ehf. vegna framkvæmda við ljósleiðara.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 3. 1711030 - Ísland ljóstengt 2018 - Sérstakur byggðastyrkur | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að undirrita samning um sérstakan byggðastyrk. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að styrkurinn renni til Dalaveitna ehf. vegna framkvæmda við ljósleiðara.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
| 4. 1712015 - Áfangastaðaáætlun DMP | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn gerir athugasemdir við hve knappur tími er gefinn til umsagnar. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórn skili athugasemdum og umsögn fyrir 28. mars en verkefnaskráin hefur enn ekki borist. Næsti fundur sveitarstjórnar verður 17. apríl nk.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 5. 1801010 - Ólafsdalur 2 - lögbýlisskráning | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við að Ólafsdalur 2, landnr. 223772 verið skráð sem lögbýlisjörð.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 6. 1712010 - Sameining almannavarnanefnda á Vesturlandi | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að skipuð verði sameiginleg almannavarnanefnd á Vesturlandi í samræmi við fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að undirrita samkomulagið f.h. Dalabyggðar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 7. 1512012 - Brunavarnaáætlun | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir að láta vinna sameiginlega brunavarnaáætlun fyrir Dalabyggð, Reykhólahrepp og Strandabyggð með fyrirvara um samþykki hinna sveitarfélaganna. Sveitarstjórn samþykkir að fela Kristjáni Inga Arnarssyni tæknifræðingi að gera drög að áætluninni með aðstoð slökkviliðsstjóra Dalabyggðar og í samvinnu við slökkviliðsstjóra Reykhólahrepps og Strandabyggðar og Mannvirkjastofnun. Gert verði ráð fyrir að fyrstu drög áætlunarinnar verði lögð fyrir fundi sveitarstjórna í maí 2018.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 8. 1803013 - Aðalskipulag 2017-2029 | |
Til máls tóku: Valdís, Eyþór, Sveinn, Þorkell Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn samþykkir tillögu byggðarráðs og felur sveitarstjóra að óska eftir kostnaðarþátttöku Skipulagsstofnunar.
Samþykkt með fimm atkvæðum, einn á móti (VG). | | |
|
| 9. 1712011 - Sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að Dalabyggð taki þátt í gerð sameiginlegrar lögregusamþykktar fyrir Vesturland á grunni fyrirliggjandi draga og felur sveitarstjóra að vinna að frumvarpi til lögreglusamþykktar f.h. Dalabyggðar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 10. 1803017 - Byggðaáætlun 2018 - 2024 | |
Til máls tóku: Valdís Lögð fram tillaga að bókun: Sveitarstjórn Dalabyggðar lýsir yfir ánægju með margt sem fram kemur í þingsályktunartillögunni svo sem grunnmarkmið um að jafna aðgengi að þjónustu, jafna tækifæri til atvinnu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 11. 1803006 - Mál frá Alþingi til umsagnar | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 12. 1803014 - Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá - Björg | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 13. 1802018 - Deiliskipulag Hvammar | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 14. 1711013 - Samþykkt um stjórn Dalabyggðar | |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög með eftirfarandi breytingum: - í atvinnumálanefnd verði 5 fulltrúar og 3 fulltrúar í menningarmálanefnd. - gert verði ráð fyrir að almannavarnanefnd geti verið sameiginleg með öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi.
Samþykkt með fimm atkvæðum, einn var á móti (VG). í einu hljóði.
Valdís óskar eftir að bókað verði að hún telji að fækka hefði árr sveitarstjórnarfulltrúum í 5.
| | 21 Samþykkt um stjórn Dalabyggðar 2018 Drog-2.pdf | | 21 Breyting á samþykkt um stjórn Dalabyggðar 2018.pdf | | |
|
| 15. 1802016 - Þörf fyrir þriggja fasa rafmagn | |
Fyrir liggur yfirlit sem umsjónarmaður framkvæmda hefur tekið saman.
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda starfshópnum upplýsingar í samræmi við yfirlitið.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
| 16. 1802003F - Byggðarráð Dalabyggðar - 199 | |
Til máls tók: Eyþór Á fundinum var m.a. fjallað um framkvæmdir, húsnæðisáætlun, aðalskipulag, umsóknir um íbúðir aldraðra og umsóknir um stöðu bókavarðar.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 17. 1801003F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 84 | |
Á fundinum gerði skólastjóri grein fyrir skólastarfinu rætt um skóladagatöl næsta skólaárs. Nefndin samþykkti tillögu skólastjóra þess efnis að íþróttakennsla fari fram í Dalabúð á næsta skólaári.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 18. 1708007 - Fundargerð 15. fundar fjallskilanefndar Suður-Dala 2017 og greinargerð um fjallskil 2017 | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 19. 1803001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 80 | |
Á fundinum var m.a. fjallað um skráningu nýrra fasteigna, deiliskipulag og skógræktaráætlanir.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 20. 1803002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 200 | |
Á fundinum kynnti Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2017 og byggðarráð og sveitarstjóri undirrituðu reikninginn. Þá var samþykkt úthlutun íbúða fyrir aldraða.
Tillaga: Oddviti lagði til að sveitarstjórn staðfesti fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
| 21. 1802003 - Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 857 | |
| Fundargerð lögð fram til kynningar. | | |
|
| |
| 22. 1803007 - Handbók um íbúalýðræði | |
Til máls tóku: Valdís Sveitarstjórnarmenn, núverandi og tilvonandi eru hvattir til að kynna sér handbókina.
Til kynningar. | | |
|
| 23. 1801004 - Skýrsla sveitarstjóra | Sveitarstjóri flutti skýrslu sína.
| | |
|