| |
| 1. 1801018 - Samgöngumál | |
Tillaga að bókun: Sveitarstjórn Dalabyggðar tekur undir áskorun annarra sveitarfélaga á Vesturlandi og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi þess efnis að samgönguyfirvöld bregðist þegar við ástandi Vesturlandvegar á Kjalarnesi og veiti auknu fjármagni til endurbóta vegarins og undirbúnings tvöföldunar. Jafnframt minnir sveitarstjórn Dalabyggðar á að yfir 70% vega í Dalabyggð eru enn með malarslitlagi, þar á meðal vegur um Skógarströnd sem þó er hluti af stofnvegakerfi landsins. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram vilji til að hraða uppbyggingu í vegamálum þar sem sérstaklega verði litið til ólíkrar stöðu svæða, ferðaþjónustu og öryggissjónarmiða. Sveitarstjórn hvetur til að samgönguyfirvöld hraði uppbyggingu malarvega og leggi þá bundnu slitlagi. Horft verði sérstaklega til svæða þar sem mikill hluti vega er en með malarslitlagi, öryggissjónarmiða og umferðaraukningar. Þar hljóta vegir í Dalabyggð að koma til skoðunar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 2. 1802025 - Opinber störf í Dalabyggð | |
Tillaga að bókun: Með lögum nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði sem tóku gildi 1. janúar 2015 var m.a. kveðið á um ný umdæmi sýslumanna þar sem t.d. eldri sýslumannsembætti á Vesturlandi runnu í embætti Sýslumannsins á Vesturlandi. Í skjölum ráðuneytisins frá þessum tíma kemur m.a. fram að leitast væri við að sem minnst röskun verði á skipulagi og starfsemi nýrra sýslumannsembætta og að tryggð verði áframhaldandi öflug þjónusta m.a. með því að tryggja að starfsemi verði áfram það sem hún var fyrir við setningu laganna. Sett var reglugerð nr. 1151/2014 þar sem m.a. kemur fram að útibú skuli vera í Búðardal. Í umsögn byggðarráðs Dalabyggðar um drög að reglugerðinni var ,,þess krafist að starfsstöðin í Búðardal verði sýsluskrifstofa eins og áður enda hefur ítrekað verið lofað að ekki verði um skerðingu á þjónustu að ræða við breytingarnar." Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur vissan skilning á því að auka þurfi rekstrarafgang ríkissjóðs en mótmælir því að til þess þurfi ríkisvaldið að ganga á bak orða sinna á svo augljósan hátt og ná inn hagræðingu með því að skera svo gróflega niður opinber störf í sveitarfélaginu. Í aðgerðaráætlun sveitarstjórnar vegna íbúaþróunar sem samþykkt var í september 2017 og kynnt hefur verið alþingismönnum og ráðuneytum er m.a. lögð áhersla á nauðsyn þess að efla opinberar stofnanir í Dalabyggð með fjölgun starfa um 2-3. Góð aðstaða og húsnæði er fyrir hendi til að færa verkefni t.d. til skrifstofu Sýslumannsembættisins í Búðardal. Það eru því sár vonbrigði að upplifa þennan niðurskurð hjá útibúi Sýslumannsins í Búðardal skömmu eftir sameiningu embættanna sem kynnt var sem aðgerð til styrkingar en hefur þveröfug áhrif í Dalabyggð.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 3. 1802005 - Viljayfirlýsing stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. | |
Lagt til að félögum sem njóta styrkja frá Dalabyggð verði send tilmæli um að taka samþykkt stjórnar sambandsins til greina.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 4. 1802019 - Samningur um sýningarhönnun | |
Lagt til að sveitarstjórn heimili sveitarstjóra að undirrita samninginn.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 5. 1802026 - Styrkur vegna kvikmyndagerðar | |
Lagt til að erindið verði samþykkt en gert verði ráð fyrir að umsækjandi standi straum af rekstrarkostnaði s.s. ræstingu og rafmagnskostnaði.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 6. 1802016 - Þörf fyrir þriggja fasa rafmagn | |
Lagt til að umsjónarmanni framkvæmda verði falið að taka til umbeðnar upplýsingar í samráði við byggingarfulltrúa og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 7. 1802027 - Sala á Laugum og Sælingsdalstungu - Ósk um umsögn | |
Til máls tók: Eyjólfur, Lögð fram tillaga: Sveitarstjóra falið að taka saman drög að svarbréfi til ráðuneytisins og bera undir sveitarstjórn.
Samþykkt með sex atkvæðum. Einn situr hjá (EIB)
Eyjólfur leggur til að bréf ráðuneytisins og svarbréf Dalabyggðar verði birt á vef Dalabyggðar.
Samþykkt í einu hljóði.
Eyjólfur lagði fram bókun: Ég tel stjórnsýsluna kringum söluferlið ekki nógu skýra og er núna mótfallinn sölu eigna á þeim forsendum sem hún var afgreidd á 157. fundi sveitarstjórnar 16. janúar sl., þó ég hafi veitt hlutleysi mitt þar. Eins velti ég fyrir mér umboði okkar sveitarstjórnarmanna, hvert er okkar bakland þegar ræða þarf stór mál. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum var kjörsókn rúm 56% í sveitarfélaginu og viðhaft persónukjör. Síðast þegar var viðhöfð listakosning árið 2006 var kjörsókn 85% og 88% árið 2002, einnig listakosning þá. Þetta er minn 20 sveitarstjórnarfundur á kjörtímabilinu 2014-2018 sem fyrsti varamaður í sveitarstjórn. Einu sinni á kjörtímabilinu hafa allir aðal- og varamenn verið boðaðir saman á fund, í júní 2014, þar sem óskað er eftir að allir mæti en aldrei síðan að ég best veit. Aðal- og varamenn voru aldrei boðaðir saman til að ræða sölu eigna sveitarfélagsins. Sennilega stærsta mál sem hefur verið afgreitt af sveitarstjórn á síðari árum. Ég hef síðustu vikur skynjað talsverða ólgu í samfélaginu vegna þessa máls og tel að betra upplýsingaflæði hefði verið farsælla fyrir afgreiðslu þess. Ef væri viðhöfð listakosning hefði bakland listans væntanlega rætt saman eða ég geri ráð fyrir því. Þá væri væntanlega víðtækari sátt um málsmeðferðina. Af þeim sökum velti ég fyrir mér umboði okkar þó svo við séum löglega kjörin miðað við gildandi lög um kjör sveitarstjórnarmanna.
| | |
|
| |
| 8. 1708016 - Aðalskipulag Dalabyggðar 2004-2016 Breyting | |
Tillaga: Sveitarstjórn vísar athugasemdum nefndarinnar við tillögur er varða íbúðarsvæði í Búðardal til umræðu um nýtt aðalskipulag þar sem ekki er um að ræða atriði sem tengjast aðalskipulagsbreytingu.
Samþykkt í einu hljóði.
Lagt til að tillaga nefndarinnar verði samþykkt að öðru leyti.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 9. 1802012 - Vindorkugarður - gagnaver | |
Lagt til að tillaga nefndarinnar verði samþykkt.
Samþykkt í einu hljóði.
Sveitarstjóra verði falið að svara erindi atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 10. 1606029 - Viðmiðunarlaun sveitarstjórnarmanna | |
Lagt til að frá upphafi nýs kjörtímabils verði greitt skv. launaflokki 122 með 6% álagi skv. samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SDS.
Samþykkt í einu hljóði.
Lagt til að sveitarstjórn samþykki fyrirliggjandi reglur með áorðnum breytingum.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 11. 1512012 - Brunavarnaáætlun | |
Lögð fram tillaga: Slökkviliðsstjóra og umsjónarmanni framkvæmda (eldvarnareftirlitsmanni) falið að gera drög að endurnýjun brunavarnaráætlunar og leggja fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 12. 1709024 - Húsnæðisáætlun | Fulltrúar Íbúðalánasjóðs komu til fundar við sveitarstjórn fyrr í dag og kynntu reglur sjóðsins um stofnframlög og hugsanlegar breytingar á þeim. Til kynningar. | | |
|
| 13. 1611005 - Tjaldsvæði - rekstur | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn felur ferðamálafulltrúa að bjóða út reksturinn og samþykkir hækkun gjaldskrár.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 14. 1708010 - Héraðsbókasafn | |
Lögð fram tillaga: Sveitarstjórn samþykki tillögu nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 15. 1802002 - Frumvörp til umsagnar | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 16. 1711013 - Samþykkt um stjórn Dalabyggðar | |
Lagt til að afgreiðslu verði frestað til næsta fundar sveitarstjórnar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| |
| 17. 1801002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 198 | |
Til máls tók: Eyþór. Á fundinum var fjallað um húsnæðisáætlun, framkvæmdir, umsóknir um stöðu íþrótta- og tómstundafulltrúa, úthlutun íbúða aldraðra o. fl.
Lagt til að sveitarstjórn staðfesti fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
| 18. 1711011F - Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar - 64 | |
Á fundinum var m.a. fjallað um áfangastaðaáætlun DMP, rekstur tjaldsvæðis og kynningarmál.
Lagt til að sveitarstjórn staðfesti fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 19. 1802001F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 13 | |
Á fundunum var m.a. fjallað um stöðu hjúkrunarforstjóra og gæðahandbók Silfurtúns. Stjórn þakkaði Kristínu S. Þórarinsdóttur vel unnin störf og óskaði henni velfarnaðar.
Lagt til að sveitarstjórn staðfesti fundargerðina og taki undir þakkir til Kristínar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 20. 1801004F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 79 | |
Til máls tók: Eyjólfur Oddviti leggur til að sveitarstjórn staðfesti afgreiðslu nefndarinnar varðandi stofnun og stækkun lóða í landi Lauga og Sælingsdalstungu og breytingu á að deiliskipulagi fyrir Ólafsdal.
Samþykkt með sex atkvæðum. Einn er á móti (EIB).
Eyjólfur leggur fram bókun: Á 151. fundi sveitarstjórnar, 19. september sl. ákvað sveitarstjórn að skoða fleiri kosti varðandi sölu Lauga og eftir atvikum annarra eigna. Á 152. fundi sveitarstjórnar, 24 október sl. var sveitarstjóra heimilað að kanna fleiri kosti við sölu eigna. Þremur dögum seinna kemur fyrsta tilboð í eignir á Laugum. Í dag er sveitarstjórn Dalabyggðar að afgreiða stofnun lóða á Laugum og lóð um vatnsból á Svínadal svo hægt sé að ganga frá kaupsamningi ef ég skil hlutina rétt. Ég sat hjá við afgreiðslu málsins í umhverfis- og skipulagsnefnd þar sem ég tel þetta óeðlilega stjórnsýslu af hálfu stjórnsýslustigs sem sveitarfélag er. Eðlilegra hefði verið að ganga frá málum varðandi stofnun lóða og fleira í október og auglýsa svo eignir í stað þess að fara í þann tilboðsleik sem var loks afgreiddur á 157. fundi sveitarstjórnar 16. janúar sl. Ýmislegt varðandi stjórnsýslu sölu eigna sveitarfélagsins væri skiljanlegt ef um væri að ræða sölu eigna innan einkahlutafélags en svo er ekki - Dalabyggð er opinbert stjórnsýslustig og þar gilda ákveðnar leikreglur.
| | |
|
| 21. 1801011 - Fundargerðir Eiríksstaðanefndar | |
Lagt til að sveitarstjórn staðfesti fundargerðirnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
| 22. 1802003 - Fundargerð 856. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga | | Fundargerð 856. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar. | | |
|
| |
| 23. 1604019 - Leigusamningur Leifsbúð | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 24. 1801014 - 20. ársfundur Umhverfisstofnunar - Samantekt | Samantekt umræðna frá 20. fundi Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa lögð fram til kynningar.
| | Samantekt umræðna frá 20. ársfundi Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa.pdf | | |
|
| 25. 1802014 - Sveitarstjórnarkosningar 2018 | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 26. 1801004 - Skýrsla sveitarstjóra | Sveitarstjóri flytur skýrslu sína.
| | |
|