| |
| 1. 1609021 - Sala eigna | |
Til máls tóku: Sigurður Bjarni, Eyjólfur, Valdís.
Lagt til að sveitarstjórn staðfesti fyrirliggjandi samkomulag og að sveitarstjóra og oddvita verði heimilað að undirrita kaupsamning.
Samþykkt með 5 atkvæðum. Tveir sitja hjá (EIB, VG) | | |
|
| 2. 1801006 - Samkomulag um uppgjör við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga | |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís. Tillaga: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um uppgjör við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga og að kröfur sjóðsins verði greiddar á eindaga. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn greiða kr. 36.193.317 með handbæru fé en tekið verði lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga kr. 80.908.900 til að greiða framlag í Lífeyrisaukasjóð. Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun vegna áranna 2018-2021 til að mæta þessum skuldbindingum sem samkomulagið felur í sér og útgáfu skuldabréfa. Sveitarstjóra falið að útfæra viðauka í samstarfi við KPMG endurskoðun og afgreiða hann í takt við sveitarstjórnarlög og fjármálareglur sveitarfélaga.
Samþykkt með 6 atkvæðum. Einn situr hjá (VG) Tillaga: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 81.000.000, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála lánstilboðs sem liggur fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögununar uppgjörs lífeyrisskuldbindinga við lífeyrisjóðinn Brú sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Sveini Pálssyni, kt. 101261-2209, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Dalabyggðar að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Samþykkt með 6 atkvæðum. einn situr hjá (VG).
| | |
|
| 3. 1708004 - Ný persónuverndarlöggjöf | |
Tillaga: Sveitarstjórn felur Valdísi Einarsdóttur safnastjóra að taka að sér störf persónuverndarfulltrúa. Starfshlutfall verði 10% þar til annað verður ákveðið. Ferðamálafulltrúi tekur við umsjón dalir.is þegar nýr vefur verður kominn í notkun.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
| 4. 1708016 - Aðalskipulag Dalabyggðar - breytingartillaga | |
Til máls tók: Sveinn Í skipulags- og matslýsingu sem auglýst var 1. desember 2017 er einnig fjallað um breytingar á aðalskipulagi vegna vindorkugarðs, iðnaðarlóðar fyrir gagnaver, fjölgun íbúðarlóða í Búðardal, stækkun verslunar- og þjónustusvæðis, frístundasvæði í landi Hlíðar í Hörðudal og stækkun byggðalínu. Þessi atriði eru enn til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 5. 1703010 - Íþróttamannvirki í Búðardal | |
Tillaga: Sveitarstjórn samþykkti tillögu byggðarráðs.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 6. 1712021 - Jarðir sem tilheyra verndarsvæði Breiðafjarðar - Yfirlit | |
Til máls tók: Eyjólfur,
Tillaga: Sveitarstjórn felur byggingarfulltrúa að taka saman yfirlit yfir þær jarðir í Dalabyggð sem liggja innan verndarsvæðis Breiðafjarðar, að hluta til eða að öllu leyti.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 7. 1712015 - Áfangastaðaáætlun DMP | |
Tillaga að bókun: Sveitarsjórn vekur athygli á að fundir sveitarstjórnar eru að jafnaði þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Samkvæmt áætlun verkefnisstjórnar má gera ráð fyrir að sveitarstjórn Dalabyggðar taki áætlunina til afgreiðslu 15. maí 2018. Sveitarstjórn óskar eftir að verkefnisstjóri kynni drög að áætluninni fyrir sveitarstjórn 20. febrúar nk.
Samþykkt einu hljóði. | | Erindi vegna Áfangastaðaáætlunar DMP á Vesturlandi.pdf | | |
|
| 8. 1711013 - Samþykkt um stjórn Dalabyggðar - Endurskoðun fyrri umræða. | |
Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir óbreyttum fjölda sveitarstjórnarfulltrúa og að áfram skuli starfrækt byggðarráð. Gert er ráð fyrr að fundir færist á fimmtudaga, sveitarstjórn komi saman annan fimmtudag mánaðar og byggðarráð fjórða. Gert er ráð fyrir að skipta upp menningar- og ferðamálanefnd í atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd.
Tillaga: Vísað til síðari umræðu.
Samþykkt einu hljóði. | | |
|
| 9. 1801003 - Íbúafundur | |
Tillaga: Boðað verði til íbúafundar í Dalabúð miðvikudaginn 24. janúar nk. kl 20:00. Á dagskrá verði eftirfarandi: 1. Fjárhagsáætlun, sala eigna, uppbygging íþróttamannvirkja í Búðardal, Vínlandssetur, húsnæðisáætlun 2. Ljósleiðaraverkefni 3. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi, íbúðalóðir, parhús, raðhús, smáhýsi, vindorkugarður, gagnaver. 4. Kaffihlé 5. Fyrirspurnir og umræður
Samþykkt einu hljóði. | | |
|
| 10. 1801007 - Reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt. | |
Til máls tók: Eyjólfur Fyrr í dag var gefin út reglugerð um breytingu á fyrrnefndri reglugerð þar sem kveðið er á um að viðbótargreiðsla vegna svæðisbundins stuðnings árið 2018 skuli skiptast á milli framleiðenda sem voru rétthafar svæðisbundins stuðnings á árinu 2017 samkvæmt ákvæðum þágildandi reglugerðar um stuðning við sauðfjárrækt. Þetta er örlítið skref í sanngirnisátt en ekki nægjanlegt.
Tillaga að bókun: Sveitarstjórn Dalabyggðar hvetur til þess að skilyrði fyrir svæðisbundinn stuðning skv. reglugerð 1183/2017 verði endurskoðuð, með það í huga að mismuna ekki framleiðendum á grunni vegalengdar til Reykjavíkur, sem sækja grunnþjónustu á sama stað líkt og gildir um sauðfjárbændur í Dalabyggð.
Samþykkt einu hljóði. | | |
|
| 11. 1712016 - Hóll 1 í Hörðudal - Skógrækt | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Samþykkt i einu hljóði.
| | |
|
| 12. 1711024 - Bíldhóll á Skógarströnd - Skógrækt | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Samþykkt i einu hljóði.
| | |
|
| 13. 1801001 - Trappa ehf - Framkvæmda- og umsýslugjald | |
Til máls tóku: Sigurður Bjarni, Sveinn Þjónusta talmeinafræðinga varðandi málþroskafrávik barna er hluti af heilbrigðiskerfinu og fellur undir ríkið. Þjónusta Tröppu hefur gert gert kleyft að veita þjónustuna að einhverju leyti í heimabyggð og þar með sparað forráðamönnum barna ferðakostnað o.fl.
Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinna og felur sveitarstjóra að uppfæra gjaldskrá Auðarskóla þannig að við bætist liður: Tengigjald vegna þjónustu Tröppu kr. 1.590 pr. kennslustund.
Samþykkti einu hljóði. | | |
|
| |
| 14. 1801001F - Dalaveitur ehf - Fundargerð 4. fundar | |
Til máls tók: Sveinn
Fundargerð lögð fram til kynningar. | | |
|
| 15. 1712001F - Byggðarráð Dalabyggðar - Fundargerð 197. fundar | |
Á fundinum var samþykkt að halda áfram samstarfi Dalabyggðar og UDN og auglýsa eftir íþrótta- og tómstundafulltrúa í 80- 100% starf. Einng var samþykkt að halda áfram samstarfi við sjónvarpsstöðuna N4 um framleiðslu þáttanna Að vestan. Þá var fjallað um húsnæðisáætlun og framkvæmdir ársins þar á meðal íþróttamannvirki og Vínlandssetur.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð byggðarráðs.
Samþykkt i einu hljóði. | | |
|
| 16. 1711009F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - Fundargerð 78. fundar | |
Á fundinum var m.a. fjallað um breytingu á aðalskipulagi og skógræktarsamninga.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| 17. 1711001F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - Fundargerð 83. fundar | |
Á fundinum var m.a fjallað um íþrótta- og tómstundastarf, skólastarf Auðarskóla og samstarf við Tröppu ehf.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
| 18. 1712014 - Fundargerð samstarfsnefndar lögreglu og sveitarfélaga á Vesturlandi | |
Á fundinum var m.a. fjallað um sameiginlega almannavarnanefnd á Vesturlandi og rými fyrir aðgerðastórn í húsi lögreglunnar í Borgarnesi.
Minnispunktar frá fundinum lagðir fram til kynningar. | | |
|
| 19. 1702004 - Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerð 855. fundar | | Fundargerð 855. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar. | | |
|
| 20. 1702018 - Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - Fundargerð 134. fundar | | Fundargerð 134. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga Vesturlandi lögð fram til kynningar. | | |
|
| |
| 21. 1801005 - Skýrsla um stöðu landsbyggða í Evrópu | Skýrsla um stöðu landsbyggða í Evrópu lögð fram til kynningar.
| | |
|
| 22. 1801004 - Skýrsla sveitarstjóra | Síðustu vikur hafa einkennst af nokkrum verkefnum auk þess sem lögbundin leyfi um jól og áramót gáfu færi á að gleyma sömu verkefnum tímabundið. Tilboð og samningar vegna sölu Lauga og Sælingsdalstungu hafa tekið til sín og hef ég átt fundi með fasteinasala, tilboðsgjafa sem og meðeiganda Dalabyggðar af jörðinni Laugum. Unnið er að frágangi kaupsamninga á grunni samkomulags sem sveitarstjórn staðfesti fyrr á fundinum. Dalabyggð keypti eignarhlut ríkisins á árinu 2013 eftir samningaviðræður sem höfðu staðið mánuðum saman. Þá var hafist handa við endurgerð deiliskipulags og lauk þeirri vinnu með staðfestingu skipulagsins í júní 2016. Þá var hægt að hefjast handa fyrir alvöru að selja eignirnar en sveitarstjórn hefur haft þá stefnu að selja eignirnar á Laugum og byggja upp íþróttamannvirki við Auðarskóla með það að leiðarljósi að mannvirkin nýist betur til skóla- og frístundastarfs við hlið annarra skólamannvirkja. Vel hefur gengið að afla framlaga til uppbyggingar Vínlandsseturs í Leifsbúð og er búið að tryggja yfir 80 millj kr. til verksins. Betur má ef duga skal en óhætt er að horfa björtum augum fram á veginn hvað varðar þetta verkefni sem vonast er til að það komist í höfn á árinu 2019. Ég varð þess heiður aðnjótandi að vera boðinn í nýársmóttöku til forsetahjónanna á Bessastöðum. Ég flutti þeim kveðju Dalamanna og þakkir fyrir heimsókn þeirra hjóna í Dali í desemberbyrjun. Forsetahjónin báðu mig fyrir góðar kveðjur og þakkir til sveitarstjórnar og íbúa Dalabyggðar og er þeim hér með komið á framfæri. Framundan er íbúafundur, álagning fasteignagjalda, undirbúningur vegna íþróttamannvirkja og vinna við húsnæðisáætlun svo eitthvað sé nefnt. Amen eftir efninu. | | |
|