Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 87

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
09.11.2018 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Bjarnheiður Jóhannsdóttir ritari,
Ragnheiður Pálsdóttir varaformaður,
Vilhjálmur Arnórsson aðalmaður,
Jón Egill Jónsson aðalmaður,
Kristján Sturluson embættismaður,
Bogi Kristinsson Magnusen .
Fundargerð ritaði: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Ritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1811005 - Breyting á aðalskipulagi vegna áætlaðs vindorkugarðs
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að heimila að vinna við breytingar á aðalskipulagi vegna vindorkugarðs á Hróðnýjarstöðum geti hafist.
Nefndin bendir á að þetta er aðeins fyrsta skrefið í ferli breytinga.
2. 1811006 - Aðalskipulag - drög - Ós á Skógarströnd
Nefndin telur að um sé að ræða óverulega breytingu á aðalskipulagi, sem hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för mér sér, hefur ekki áhrif á stórt svæði, né hafi mikil áhrif á einstaka aðila. Nefndin samþykkir erindið í samræmi við 2. málsgrein 36. greinar skipulagslaga.
3. 1809032 - Laxárdalsvegur - umsókn um framkvæmdaleyfi
Nefndin samþykkir erindið og heimilar efnistöku í námu A við Leiðólfsstaði og námu B við Selhöfða. Náma C er ekki inni í aðalskipulagi og því ekki hægt að veita heimild til efnistöku þar. Nefndin hvetur til náins samráðs um framkvæmdir Vegagerðarinnar á skipulagsstigi.
4. 1810009 - Umsagnarbeiðni - Dalahyttur
Beiðni um umsögn á breytingu úr "flokki II gististaður án veitinga" í "flokk III gististaður með veitingum þó ekki áfengisveitingum"
Nefndin gerir ekki athugasemdir við breytingar á rekstarleyfi.
5. 1709023 - Umsókn um lóð að Vesturbraut, 370 Búðardal
Borist hefur ítrekuð umsókn frá Skeljungi um lóð undir sjálfsagfreiðslustöð.
Nefndin felur sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa að ræða við Skeljung.
6. 1810029 - Umsókn um leyfi til að leggja lögn út í sjó
Nefndin samþykkir erindið, með því skilyrði að haft verði samráð við skipulagsfulltrúa um lengd og legu lagnarinnar.
7. 1810028 - Tillaga um endurskoðað aðalskipulag Eyja- og Miklaholtshrepps
Nefndin gerir ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.
8. 1810003 - Fjárhagsáætlun 2019 - 2022
Sveitarstjórn vísar fjárhagsáætlun 2019-2022 til umræðu í nefndum.
Áætlunin kynnt.
9. 1810032 - Fjárhagsáætlun HeV 2019
Heilbrigðiseftirlit Vesturland hefur sent fjárhagsáætlun ársins 2019 til sveitarfélaga á starfssvæði þess.
Nefndin leggur til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt.
10. 1805012 - Umsókn um uppsetningu á 3 möstrum
Niðurstaða frá síðasta fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar: Nefndin tekur jákvætt í erindið en kallar eftir betri gögnum: Uppdrætti með nákvæmri staðsetningu vegaslóða og mastra, ásamt því að gögn séu á íslensku.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi (rannsóknarleyfi) til tveggja ára.
11. 1811004 - Landfræðileg upplýsingagögn sveitarfélaga
Skipulagsfulltrúa er falið að svara erindinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:15 

Til bakaPrenta