Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 161

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
04.02.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Björn Henry Kristjánsson aðalmaður,
Sigrún B Halldórsdóttir aðalmaður,
Viðar Þór Ólafsson varaformaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Grettir Örn Ásmundsson byggingarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601014 - Fjölnytja- og landgræðsluskógrækt á lögbýlinu Vígholtsstöðum L137591
Framlagt bréf til sveitarfélagsins varðandi heimild til að fara í fjölnytja- og landgræðsluskógrækt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur farið yfir erindið. Skógræktaráformin samræmast stefnu og skilyrðum Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 um skógrækt á landbúnaðarsvæðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að ræktunaráætlun verði kynnt henni áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út.

2. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun
Tillaga að breytingu Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 vegna vatnsmiðlunar í Hvanná lögð fram til afgreiðslu skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Vinnslutillaga var kynnt frá 17. nóvember til 8. desember 2025. Umsagnir bárust frá 6 aðilum um vinnslutillöguna; Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, Náttúrufræðistofnun og Hestamannafélaginu Glaði. Brugðist hefur verið við ábendingum úr umsögnunum í endanlegri breytingartillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar og senda hana til athugunar Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
3. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd
Framlögð tillaga að deiliskipulagi Tungu að lokinni auglýsingu sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 18. Desember 2025 með athugasemdarfresti til 29. Janúar 2026. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Skilmálar um veitukerfi voru lagfærðir með hliðsjón af umsögn heilbrigðiseftirlitsins. Umsögn Minjastofnunar kallaði ekki á lagfæringar á tillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna og fela skipulagsfulltrúa að senda hana til yfirferðar Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. Skipulagslaga.
Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjóri og Gunnar Þór Haraldsson frá Íslenska Gámafélaginu mættu til fundarins undir liðum 4 og 5.
4. 2601022 - Úrgangsþjónusta - hreinsunarátak 2026
Umræða um fyrirkomulag hreinsunarátaks 2026. Söfnun á timbri og brotajárni í dreifbýli þar sem markmiðið er meðal annars að bæta aðgengi íbúa sem búa fjær söfnunarstöðinni í Búðardal að losunarílátum fyrir þessa flokka.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að viðhafa samskonar verklag og var viðhaft sumarið 2025.
5. 2503006 - Úrgangsþjónusta - útboð 2025
Umræða um fyrirkomulag söfnunar á rúlluplasti sem var undanskilin í útboði úrgangsþjónustu. Íslenska gámafélagið er tilbúið að sjá um þjónustuna áfram með sama sniði á sama verði.
Fram kom í samtali nefndarinnar við fulltrúa Íslenska Gámafélagsins að mikilvægt er að leggja aukna áherslu á við bændur að þeir flokki rúlluplast eftir litum og æskilegt sé að minnka notkun á svörtu plasti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að viðhaft verði samskonar verklag varðandi söfnun rúlluplasts og viðhaft hefur verið undanfarin ár.
6. 2601003 - Umsókn um 10 stöðuleyfi að Fellsenda (hjúkrunarheimili)
Framlögð umsókn um stöðuleyfi fyrir gámaeiningar við hjúkrunarheimilið Fellsenda.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs sbr.reglugerð þar um .
7. 2512007 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir starfsmannahús í landi Kvennabrekku/við Árblik/
Framlögð umsókn um byggingarleyfi í landi Kvennabrekku/við Árblik.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur byggingarfulltrúa að afgreiða umsóknina.
8. 2602001 - Umsókn um breytingu innandyra í Íþróttamiðstöðinni
Framlögð umsókn um breytingu innandyra í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45 

Til bakaPrenta