Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 351

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
18.06.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Staðgengill sveitarstjóra
Máli nr. 2410010, Brothættar byggðir DalaAuður bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 1.

Máli nr. 2606011, Fjárhagsáætlun 2026-2029 staða eftir 5 mánuði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 2.

Máli nr. 2606012, Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 3.

Máli nr. 2606010, Lausar lóðir í Búðardal - auglýsing bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 11.

Máli nr. 2606013, Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031 bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 13.

Áður boðaðir dagskrárliðir færist í samræmi við það.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
Kristján Meldal kemur sem gestur á fundinn undir dagskárlið 1.
1. 2410010 - Brothættar byggðir DalaAuður
Rætt um styrk DalaAuðs vegna vegglistaverka.
Rætt um verkefni Kristjáns í verkefninu "Vegurinn heim".

Samtal við byggðarráð um möguleg afnot af veggjum fyrir listaverk.
Undir dagskárlið 2 koma á fundinn: Magnína Kristjánsdóttir fjármálastjóri, Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi, Kristján Ingi Arnarsson umsjónarmaður framkvæmda, Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari.
2. 2606011 - Fjárhagsáætlun 2026-2029 staða eftir 5 mánuði
Farið yfir stöðu Dalabyggðar eftir fyrstu 5 mánuði ársins.
Fjárhagsstaða, launamál, greiðsluáætlun næstu vikna, rekstur íþróttamannvirkja, fjárfestingar, framkvæmdir og stöðu deilda.

Ingibjörg Jóhannsdóttir sat fundinn undir dagskrárlið 3.
3. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III
Farið yfir þá þætti sem taka þarf tillit til við gerð Viðauka III.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram með starfsfólki.
4. 2605018 - Kosning í nefndir skv. A-hluta 48. gr samþykkta Dalabyggðar
Skipun í fjallskilanefnd Suður-Dala
Lagt til að eftirtaldir verði skipaðir í fjallskilanefnd Suður-Dala:

Aðalmenn:
Valberg Sigfússon
Berghildur Pálmadóttir
Guðbrandur Þorkelsson
Svavar Magnús Jóhannsson
Sigurdís E. L. Sigursteinsdóttir

Varamenn:
Þorbjörn Jóelsson
Hörður Hjartarson

Samþykkt samhljóða.
5. 2604012 - Fjallskil 2026
Byggðarráð beinir því til fjallskilanefnda að ljúka undirbúningi vegna fjallskila fyrir fund sveitarstjórnar 13. ágúst vegna fjallskila haustið 2026.
Fjártölur verða sendar til fjallskilanefnda.

Byggðarráð ræðir stöðu fjallskilanefnda.

Sveitarstjóra falið að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.
6. 2605021 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 26
Farið yfir innkomna umsókn um lóð í Lækjarhvammi 26.
Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn.
7. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings
Farið yfir beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings.
Byggðarráð vísar málinu til Umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.
8. 2606009 - Tónlistarnám á Akureyri
Farið yfir beiðni varðandi tónlistarnám í öðru sveitarfélagi.
Byggðarráð veitir samþykki sitt fyrir tónlistarnámi utan lögheimilis.
9. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum
Farið yfir drög að reglum um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Dalabyggðar.
Reglur um auglýsingar eru samþykktar.
10. 2602017 - Starfsmannamál
Staða mála rædd.
Farið yfir stöðuna.
11. 2606010 - Lausar lóðir í Búðardal - auglýsing
Deiliskipulög fyrir Búðardal, annars vegar sunnan og hins vegar norðan Miðbrautar, voru staðfest í Bdeild fyrr á árinu. Áður hafa verið auglýstar skipulagðar lóðir í deiliskipulagi fyrir Hvamma og á iðnaðarsvæðinu á Iðjubraut. Samkvæmt reglum Dalabyggðar um úthlutun lóða þarf að auglýsa þær í fyrstu áður en hægt sé að úthluta þeim. Það á við um allar lausar lóðir í nýju deiliskipulögunum sem ná yfir gróna hluta þorpsins og stækkunarsvæðinu norður af Silfurtúni.

Eftirtaldar lóðir verði auglýstar:
Gunnarsbraut 9-11 og 17-19
Sunnubraut 18
Búðarbraut 3, 5, 7 og 9
Ægisbraut 5
Stekkjarhvammur 9a

Samþykkt samhljóða.
12. 2410029 - Samþykkt um gatnagerðargjöld í Dalabyggð
Rætt um möguleika á afslætti af gatnagerðargjöldum.
Sveitarstjórn getur ákveðið að veita afslátt af gatnagerðargjöldum fyrir ákveðnar lóðir, sjá síðustu málsgrein 6. gr. í samþykkt um gatnagerðargjald í Dalabyggð:

"Sveitarstjórn getur lækkað eða fellt niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, sbr. ákvæði 6. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Ákveði sveitarstjórn að nýta sér þessa heimild, skal hún gera um það sérstaka samþykkt þar sem fram komi hversu lengi heimild til lækkunar frá þessari gjaldskrá gildir, hvert sé tilefni lækkunarinnar með vísan til 1. mgr. 6. gr. laga nr. 153/2006 og aðrar þær málefnalegu ástæður sem búa að baki ákvörðuninni."

Lagt til að veittur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum á eftirtöldum lóðum:

Gunnarsbraut 9-11
Sunnubraut 18
Búðarbraut 3, 5, 7 og 9
Ægisbraut 5
Stekkjarhvammur 9a
Bakkahvammur 2

Umræddur afsláttur tekur yfir úthlutun á upptöldum lóðum sem úthlutað er á árinu 2026.

Tilefni lækkunar er að upptaldar lóðir standa við frágengnar götur.

Samþykkt samhljóða.
13. 2606013 - Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031
Lagt fram til kynningar.
Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031..pdf
Mál til kynningar
14. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Vakin er athygli Byggðarráðs á 9. dagskrárlið í fundargerð.
Byggðarráð tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga við dagskrárlið 9.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1000..pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:08 

Til bakaPrenta