Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 359

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
26.11.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Sindri Geir Sigurðarson aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri og staðgengill sveitarstjóra
Lagt er til að máli nr. 2611011 - Nafnasamkeppni íþróttamiðstöðvar, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 4.

Lagt er til að máli nr. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4), verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 5.

Lagt er til að máli nr. 2603012 - Afskriftarbeiðni, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 6.

Lagt til til að máli nr. 2611031 - Beiðni um umsögn vegna smásölu á skoteldum, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 8.

Lagt til að máli nr. 2611030 - Mentor-erindi frá Sambandinu, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 9.

Önnur mál raðist í samræmi við það.

Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir stöðu á vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og fjárheimildum áranna 2028 - 2030.
Á 274. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var Fjárhagsáætlun 2027-2030 vísað til seinni umræðu.

Farið yfir stöðu mála og þær breytingar sem orðið hafa í kjölfar vinnu á milli umræðna og íbúafunda sem haldnir voru þann 17. nóvember s.l.

Byggðaráð þakkar starfsmönnum Dalabyggðar fyrir þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í fjárhagsáætlun.

Byggðaráð samþykkir að beina fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árin 2027-2030 til seinni umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar, með áorðnum breytingum á rekstri er varða hækkun fasteignagjaldsprósentu á C-hluta.
2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027
Tekin eru til umfjöllunar drög að gjaldskrá Fjósa sem sveitarstjórn vísaði til byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir gjaldskrá Fjósa fyrir árið 2027 með áorðnum breytingum, ásamt því að bætt sé við að ferðavagnar séu mældir með beisli og vísar til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Gjaldskrá - Fjósar 2027 - uppfærsla.pdf
3. 2410019 - Samstarfssamningur við Foreldrafélag Auðarskóla 2025-27
Lagt fram erindi frá Foreldrafélagi Auðarskóla vegna samstarfssamnings.
Frá 155. fundi fræðslunefndar:

"7. 2611027 - Foreldrafélag Auðarskóla
Fulltrúar frá stjórn foreldrafélagsins koma á fund og fara yfir starf foreldrafélagsins á yfistandandi skólaári.
Rætt um samstarfssamning foreldrafélags Auðarskóla við Dalabyggð.

Horft verði til þess að styðja betur við foreldrafélagið faglega, svo það geti aukið sína þjónustu við börn, foreldra og starfsfólk skólans.
Unnið verður að fyrstu drögum að uppfærðum samningi þar sem m.a. verður horft til þess að skýra frekar hlutverk og skyldur foreldrafélagsins. Fundað verði með starfsfólki skrifstofu sveitarfélagsins og Auðarskóla."


Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og tekur undir bókun fræðslunefndar.
4. 2611011 - Nafnasamkeppni íþróttamiðstöðvar
Lagðar eru fram tillögur sem hafa borist í nafnasamkeppni.
1. Dalurinn og Dalalaug
2. Íþróttamiðstöðin Katlar og Katlar
3. Hvammur og Hvammslaug
4. Undrahöllin og Auðarlaug
5. Króin og Stían

Lagt er til að ofangreindar tillögur verði lagðar fyrir íbúa og kosið á milli þeirra.
Lýðheilsufulltrúa falið að vinna málið áfram.
5. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4)
Viðauki IV við fjáragsáætlun 2026 lagður fram.
Viðauki IV við fjárhagsáætlun Dalabyggðar ber með sér m.a. breytingar á málaflokkum til samræmis við nýlegar reglugerðarbreytingar og innri færslur.

Helstu breytingar eru:

Nýr málaflokkur 01 Þjónusta við fatlaða - hækkar rekstrarkostnaður um kr. 23.338.000,-
Eldri málaflokkur 02 Félagsþjónusta - lækkar rekstrarkostnaður um kr. 23.338.000,-
Eldri málaflokkur 03 Heilbrigðiseftirlit - fellur niður og lækkar rekstrarkostnaður um kr. 825.000,-
Málaflokkur 08 Úrgangsmál - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 500.000,-
Málaflokkur 09 Skipulags- og byggingarmál verður Skipulags og samgöngumál - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 4.705.000
Málaflokkur 10 Umferðar- og samgöngumál - fellur niður og lækkar rekstrarkostnaður um kr. 6.645.000,-
Málaflokkur 11 Atvinnu- og menningarmál - fellur niður og lækkar rekstrarkostnaður um kr. 23.887.000
Málaflokkur 13 Atvinnumál - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 23.062.000,-

Til viðbótar er bætti við rekstrarkostnaði í eftirtöldum málaflokkum
Málaflokkur 07 Brunamál og almannavarnir - rekstrarkostnaður hækka um kr. 490.000,-
Eignarsjóður - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 600.000,-

Samtals kostnaður í A-sjóðs lækkar kr. 350.000,- til hækkunar á handbæru fé.

Fráveita - rekstrarkostnaður hækkar um kr. 350.000,-

Samtals kostnaður í B-sjóðs hækkar kr. 350.000,- til lækkunar á handbæru fé.

Samtals kostnaður A- og B-sjóðs hækkar um kr. 0,-


Eignfærslur

Íþróttamannvirki hækkar um kr. 8.100.000,-
Íþróttamannvirki lækkar um kr. 8.100.000,- v. styrkja
Leikskólinn hækkar um kr. 1.000.000,-
Grunnskólinn lækkar um kr. 6.000.000,-
Gatnagerð lækkar um kr. 1.000.000,-
Slökkvibúnaður lækkar um kr. 490.000,-
Götulýsing hækkar um kr. 490.000,-
Fráveita hreinsistöð hækkar um kr. 1.000.000,-
Fráveita stofnlagnir hækka um kr. 5.000.000,-

Samtals eignfærslur kr. 0

Viðauki_5_v4.pdf
6. 2603012 - Afskriftarbeiðni
Kynnt beiðni Sýslumannsembættisins varðandi afskriftir krafna.
Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni og vísar til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
7. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 313. mál: Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 26. nóvember.

Verkefnastjóra falið að skila inn umsögn við málið í samræmi við umræður á fundinum.
0365-stefnumotandi-byggdaaaetlun_27-41.pdf
Sindri Geir Sigurðsson víkur af fundi undir dagskrárlið 8.
8. 2611031 - Beiðni um umsögn vegna smásölu á skoteldum
Lögð er fram umsagnarbeiðni Björgunarsveitarinnar Óskar vegna smásölu skotelda.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við leyfi til sölu skotelda.

Samþykkt samhljóða.
Sindri Geir kemur aftur inn á fundinn.
Mál til kynningar
9. 2611030 - Mentor-erindi frá Sambandinu
Lagt fram svar við erindi Dalabyggðar til InfoMentor.
Svar barst frá InfoMentor og er málið komið í ferli gagnvart Auðarskóla.
Mentor23.11.26.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:16 

Til bakaPrenta