| |
| 1. 2604022 - Hver vegur að heiman | |
| Fræðslunefnd þakkar Kristjáni fyrir góða yfirferð og tekur undir þau sjónarmið sem nefnd eru varðandi mikilvægi átthagafræðslu og annarra þátta varðandi sjálfsmynd íbúa og samfélagsins. Spennandi verður að sjá framvindu þessa verkefnis á næstu misserum. | | Hver vegur að heiman er vegurinn heim_samantekt..pdf | | |
|
| 2. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal | |
| Tilraunaverkefni það sem fékkst stuðningur við er nú á enda og ljóst að ekki er grundvöllur fyrir að svo stöddu að framhald verði á. | | |
|
Ísak Sigfússon lýðheilsufulltrúi sat fundinn undir lið 3 á dagskrá.
| | 3. 2603021 - Leikjanámskeið 2026 | |
Fram er komin hugmynd frá Eiríksstöðum varðandi utanumhald um sumar- og leikjanámskeið í sumar og vill fræðslunefnd lýsa ánægju sinni með þann áhuga sem þar birtist. Verið er að skoða með grundvöll þess samstarfs og kemur í ljós á næstu dögum hvert framhaldið verður.
Einnig rætt um stöðuna hvað vinnuskóla í sumar varðar. | | |
|
Starfandi skólastjóri, Guðrún G. Halldórsdóttir, sat fundinn undir lið 4.
| | 4. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 | |
Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála. Búið er að auglýsa laus störf kennara og er umsóknarfrestur opinn, verið er að skoða þörf fyrir auglýsingu um önnur störf. Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.
Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra að ganga frá því til birtingar. | | |
|
| 5. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025 | |
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála í fjarveru aðstoðarleikskólastjóra.
Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.
Vinna við námsvísi næsta skólaárs er á lokametrunum. Núna eru 28 börn á leikskólanum og útlit fyrir að óbreyttu að frá hausti verði þau 25. 5 börn færast í grunnskólanum af þeim sem nú eru á leikskólanum.
Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra að ganga frá því til birtingar. | | |
|