Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 272

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
10.09.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Guðbrandur Tumi Gíslason varaoddviti,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir aðalmaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Skjöldur Orri Skjaldarson aðalmaður,
Valdís Gunnarsdóttir varamaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Lagt til að málum nr. 2609011 - Dalaveitur ársreikningur 2025 og nr. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliðir 9 og 10.

Lagt til að fundargerð nr. 2609005F - Byggðarráð Dalabyggðar - 355. fundur verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 17.

Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III
Lagður fram viðauki III við fjárhagsáætlun 2026.

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 355:" Framlögð tillaga að Viðauka III (3) við fjárhagsáætlun ársins 2026

Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarlækkunar í A-sjóði:

Hækkun Jöfnunarsjóðsframlaga kr. 42.547.000

Hækkun launakostnaðar vegna fræðslumála kr. 26.037.000

Samtals kostnaðarlækkun í A-hluta 16.510.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.


Eignfærslur:

Breytingar á fjárfestingarliðum til kostnaðarlækkunar:

Samtals kr. 7.000.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.

Einnig er í þessum viðauka leiðrétt upphafsstaða handbærts fjár þar sem útgönguspá 2025 sem unnið var útfrá var röng mv lokastöðu ársins 2025.

Byggðarráð samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026 og vísar málinu til sveitarstjórnar."

Til máls tók: Lilja

Sveitarstjórn samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026.
Viðauki_3..pdf
2. 2608019 - Holt Skammtímadvöl á Vesturland
Lagt fram minnisblað vegna Holts skammtímadvalar á Vesturlandi dags. 26. ágúst 2026.

Afgreiðsla félagsmálanefndar frá fundi nefndarinnar nr. 80: " Hildigunni er þakkað fyrir yfirferðina. Nefnd og gestir ræða úrræðið og stöðu Dalabyggðar. Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og telur að brýn þörf sé til staðar. Málinu vísað til sveitarstjórnar."

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. 355:"Byggðarráð samþykkir aðild Dalabyggðar að rekstri Skammtímadvalar á Vesturlandi og þá tillögu sem fyrir liggur að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulag skv. minnisblaði frá stjórnendum í velferðarþjónustu á Vesturlandi dags. 26.ágúst 2026.

Samþykkt samhljóða

Málinu vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar."

Til máls tók: Lilja og Ingibjörg


Sveitarstjórn samþykkir aðild Dalabyggðar að rekstri skammtímadvalar á Vesturlandi skv. minnisblaði frá stjórnendum í velferðarþjónustu á Vesturlandi dags. 26.ágúst 2026.

Minnisblad_Holt_26_agust_2026 Leið 3 sveitastjórar..pdf
3. 2608018 - breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal
Afgreiðsla umhverfis og skipulagsnefndar frá fundi nr. 166: "

Erindi Orku náttúrurunnar (ON) dags. 28. Ágúst 2026, þar sem óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Vesturbraut 15, sem felst í að heimila hleðslustöð ásamt spennistöð. Lögun byggingareits er breytt til að gefa svigrúm fyrir hleðslustöð. Staðfangi lóðar er breytt í deiliskipulaginu úr Gunnarbraut 4 í Vesturbraut 15 í samræmi við núverandi skráningu í staðfangaskrá.
Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ)
Á móti einu atkvæði (VG)

Til máls tók: Valdís

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
4. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15
Afgreiðsla frá fundi umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 166: "Erindi Orku náttúrurunnar (ON) dags. 19. ágúst 2026 þar sem óskað er framkvæmdaleyfis fyrir jarðvegsskiptum og framkvæmdum vegna uppsetningar hleðslustöðvar.
Umsókn samþykkt með fyrirvara um gildistöku óverulegrar breytingar deiliskipulags á lóðinni, sbr. 5. mál á dagskrá fundar.
Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar samsvarandi deiliskipulagsbreyting hefur tekið gildi og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ)
Á móti einu atkvæði (VG)

Til máls tóku: Guðlaug, Lilja, Guðlaug (annað sinn), Lilja (annað sinn).

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og felur Skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar samsvarandi deiliskipulagsbreyting hefur tekið gildi og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.


Samþykkt með 5 atkvæðum (BJ, IÞS, GTG, IG, SOS) og á móti 2 (GK, VG).
5. 2609004 - Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lengingu sjóvarnar við Ægisbraut, Búðardal
Vegagerðin sækir um framkvæmdarleyfi vegna lengingar á sjóvörn við Ægisbraut um rúma 70m til suðurs.
Umsókn samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Til máls tók: Guðbrandur Tumi.

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og felur Skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdarleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar
Afgreiðsla fræðslunefndar frá fundi nr. 152: "Rætt um núverandi reglur og mögulega útfærslu. Fræðslunefnd leggur það til við sveitarstjórn að horft sé til lögbundinna verkefna og jafnræðis. Því leggur nefndin til að reglur Dalabyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum verði afnumdar en styrkur til tónlistarnáms utan lögheimilissveitarfélags hjá framhaldsskólanemum verði styrktækur gegnum frístundastyrk sveitarfélagsins skv. þeim viðmiðum sem þar koma fram. Málinu vísað til sveitarstjórnar."
Til máls tóku: Bjarnheiður og Ingibjörg.

Sveitarstjórn samþykkir að felldar verði úr gildi reglur Dalabyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum frá 2020.
9. 2609011 - Dalaveitur ársreikningur 2025
Lagður fram til formlegrar afgreiðslu ársreikningur Dalaveitna ehf. fyrir árið 2025 en skv. ákvörðun sveitarstjórnar fer byggðarráð með stjórn Dalaveitna ehf. Tap varð á rekstri félagins á árinu 2025 að fjárhæð 3,3 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi (Árið 2024 var hagnaður að fjárhæð 29,9 millj. kr.) og eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 17,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi (Árið 2024 var eigið fé félagsins neikvætt um 13,7 millj. kr.). Vísað er til ársreikningsins varðandi ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.

Afgreiðsla frá fundi byggðarráðs nr. 355:"Byggðarráð samþykkir framlagðan ársreikning fyrir Dalaveitur ehf."

Framlagt til kynningar.
Ársreikningur Dalaveitur 2025.pdf
10. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá
Veiðifélag Laxár áformar áformar byggingu teljaraþreps í Laxá, rétt ofan við brú. Framkvæmdin er í leyfisferli hjá Fiskistofu, en óskað er eftir leyfi Dalabyggðar sem landeiganda.

Afgreiðsla byggðarráðs frá fundi nr. x: " Byggðarráð veitir heimild landeiganda fyrir framkvæmdinni en bendir á að sækja þarf um formlegt framkvæmdarleyfi hjá skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir að meðtöldu leyfi Fiskistofu."

Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu byggðarráðs og veitir heimild Dalabyggðar sem landeigandi með þeim fyrirvara að skipulagsfulltrúi gefi út framkvæmdarleyfi.
Fundargerð
11. 2608001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 354
Fundagerð framlögð.
11.1. 2604012 - Fjallskil 2026
Lögð fram fundargerð og álagningarseðill fjallskilanefndar Skarðsstrandar.
Fyrir liggur fjallskilaseðill og fundargerð fjallskilanefndar Skarðsstrandar.

Fundargerð og álagningarseðill samþykkt.
11.2. 2602031 - Vatnsveita
Borist hefur erindi um tengingu við vatnsveitu utan núverandi lagnaleiðar.
Sveitarstjóra falið að taka samtal við aðila máls og starfsfólk taki saman gögn vegna vatnsveitunnar í samræmi við umræður á fundinum.
11.3. 2608009 - Skólavist barna utan lögheimilissveitarfélags
Sveitarstjóra og skólastjóra falið að skoða stöðu málaflokksins hjá sveitarfélaginu.

Farið yfir þær umsóknir sem hafa borist og niðurstaða skráð í trúnaðarbók. Sveitarstjóra falið að svara erindum.

Samþykkt samhljóða

11.4. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir stöðu og undirbúning vinnu vegna fjárhagsáætlunar.
Rætt um dagskrá vinnufundar sveitarstjórnar 3. september nk. og þær deildir sem þarf að skoða sérstaklega í komandi vinnu.
11.5. 2608010 - Starfsmannamál
Farið yfir stöðu á starfsmannamálum
Staða mála rædd.
11.6. 2606009 - Tónlistarnám á Akureyri
Lögð fram umsókn nemanda á framhaldsskólastigi um styrk til greiðslu skólagjalda vegna tónlistarnáms.
Byggðarráð veitir samþykki sitt fyrir tónlistarnámi utan lögheimilis í samræmi við framlagða umsókn. Reglurnar eru í heild sinni til endurskoðunar hjá fræðslunefnd Dalabyggðar.

Samþykkt samhljóða


12. 2607001F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 51
Fundagerð framlögð.
12.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir þann tímaramma sem ætlaður er til undirbúnings og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2027 til 2030. Einnig kynntar þær forsendur sem Samband íslenskra sveitarfélaga leggur upp með í þeirri vinnu sem framundan er.

Fastanefndum Dalabyggðar er falið að yfirfara sína málaflokka í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Skoða vel og ræða bæði útgjöld og innkomu tengda þeim deildum sem falla undir svið deildanna. Tillögum nefnda verði skilað til starfsmanna, til úrvinnslu.
Hlutverk félagsheimilanna verði skoðað á næstu mánuðum. Stefnt að kaffispjalli með íbúum vegna málsins.

Rætt um hátíðarhöld á vegum sveitarfélagsins. Stefnt að kaffispjalli þar sem verið rætt hvort halda eigi hátíðunum áfram.
12.2. 2511011 - Bæjarhátíð 2026
Uppgjör á bæjarhátíð rætt.
Nefndin þakkar íbúum fyrir þátttöku á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal 2026 og þeim aðilum sem stóðu fyrir viðburðum fyrir framtakið.
12.3. 2604006 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026
Drög að dagskrá rædd, hvatning til íbúa, félaga og fyrirtækja til að taka þátt.
Hátíðin rædd.
13. 2607002F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 59
Fundagerð framlögð.
13.1. 2503014 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð
Rætt um uppfærslu
Nefndin leggur til að innviðaáætlun verði uppfærð í takti við núverandi ástand innviða og nýja Samgönguáætlun.
13.2. 2607007 - Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett í samráð drög að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Samkvæmt 39.gr.a. í raforkulögum skal endurskoða stefnu þessa á fjögurra ára fresti. Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi og skilgreina þau markmið sem flutningsfyrirtækinu er ætlað að vinna að. Leggja línur um forgangsröðun og til hvaða sjónarmiða eigi að líta þegar fjölþætt markmið stangast á.
Stefna þessi hefur víðtæk áhrif, meðal annars á loftslagsskuldbindingar, atvinnustefnu, byggðastefnu og orkuöflunarstefnu.
Óskað er eftir því að athugasemdir við drögin berist eigi síðar en 19. ágúst nk.
Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar.
13.3. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi
Innviðaráðuneytið undirbýr gerð grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Með forsamráði er óskað eftir sjónarmiðum um hvaða viðfangsefni, álitaefni, áskoranir og tækifæri grænbókin eigi að fjalla um.
Umsagnarfrestur til og með 21. ágúst 2026.

Á síðasta fundi atvinnumálanefndar var ákveðið að vinna málið áfram.
Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar.
13.4. 2606020 - Hvítbók um byggðamál
Í hvítbók um byggðamál eru kynnt drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.
Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Á síðasta fundi atvinnumálanefndar var ákveðið að vinna málið áfram.
Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar.
14. 2606008F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 166
Fundagerð framlögð.
14.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Farið yfir þann tímaramma sem ætlaður er til undirbúnings og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Dalabyggðar fyrir árin 2027 til 2030. Einnig kynntar þær forsendur sem Samband íslenskra sveitarfélaga leggur upp með í þeirri vinnu sem framundan er.

Fastanefndum Dalabyggðar er falið að yfirfara sína málaflokka í tengslum við fjárhagsáætlunargerð. Skoða vel og ræða bæði útgjöld og innkomu tengda þeim deildum sem falla undir svið deildanna. Tillögum nefnda verði skilað til starfsmanna, til úrvinnslu.
Nefndin fór yfir stöðu málaflokka sem falla undir hana. Sveitarstjóra falið að vinna málin áfram í samræmi við umræður á fundinum.
14.2. 2607006 - Vatnaáætlun Íslands 2028-2033
Afgreiðsla fundar byggðarráðs Dalabyggðar frá fundi nr. 353: "Lagt fram erindi frá Umhverfis- og orkustofnun sem vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála.
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um áætlanir og verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18. gr.laga um stjórn vatnamála.

Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða"
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu út frá gildandi aðalskipulagi og þeim framkvæmdum sem mögulega eru í farvatninu í Dalabyggð.
14.3. 2602034 - Styrkvegir 2026
Lagt fram yfirlit um úthlutun fjármagns til styrkvega í Dalabyggð fyrir árið 2026.
Nefndin felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.
14.4. 2608016 - Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Framlagt erindi frá Samtökum um dýraverð á Íslandi þar sem samtökin hvetja til þess að tekin sé afstaða til loðdýraræktar í aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Erindi fram lagt. Nefndin þakkar erindið.
14.5. 2608018 - breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal
Erindi Orku náttúrurunnar (ON) dags. 28. Ágúst 2026, þar sem óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Vesturbraut 15, sem felst í að heimila hleðslustöð ásamt spennistöð. Lögun byggingareits er breytt til að gefa svigrúm fyrir hleðslustöð. Staðfangi lóðar er breytt í deiliskipulaginu úr Gunnarbraut 4 í Vesturbraut 15 í samræmi við núverandi skráningu í staðfangaskrá.
Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ)
Á móti einu atkvæði (VG)
14.6. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15
Erindi Orku náttúrurunnar (ON) dags. 19. ágúst 2026 þar sem óskað er framkvæmdaleyfis fyrir jarðvegsskiptum og framkvæmdum vegna uppsetningar hleðslustöðvar.
Umsókn samþykkt með fyrirvara um gildistöku óverulegrar breytingar deiliskipulags á lóðinni, sbr. 5. mál á dagskrá fundar.
Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þegar samsvarandi deiliskipulagsbreyting hefur tekið gildi og jákvæð umsögn Vegagerðarinnar liggur fyrir.

Samþykkt með fjórum atkvæðum (PÓ, GTG, SPH og BJ)
Á móti einu atkvæði (VG)
14.7. 2608002 - Reglugerðarbreytingar vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í samráðsgátt
Alþingi samþykkti nýlega frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með lögunum eru heilbrigðisnefndir lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.
Fyrir liggur að ábyrgð og framkvæmd nokkurra verkefna heilbrigðiseftirlita muni færast til sveitarfélaga.
Nefndin ræddi málið.
14.8. 2608015 - Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt í landi Kolsstaða
Erindi landeiganda Kristján E. Karlssonar dags. 12. ágúst 2026, þar sem sótt er um framkvædmaleyfi fyrir skógrækt á 11.7 hektörum á jörðinni Kolsstöðum (L137944). Umsókn fylgir hnitsett afmörkun svæðisins.
Afla þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands/minjavarðar Vesturlands.
Einnig þarf að afla umsagnar heilbrigðiseftirlits Vesturlands þar sem skógræktarsvæðið er á skilgreindu grannsvæði vatnsverndar skv. Aðalskipulag Dalabyggðar 2020-2032.

Afgreiðslu frestað.
14.9. 2608021 - Tjaldsvæðið í Búðardal 2026
Rætt um skipulag tjaldsvæðisins í Búðardal.
Nefndin felur starfsmönnum sveitarfélagsins að vinna málið áfram.
14.10. 2608022 - Úrgangsþjónusta 2026 - fyrirspurnir og umræður
Vorið 2026 tók í gildi nýr verksamningur við Gámafélags Íslands um úrgangsþjónustu. Fyrirskomulag framkvæmdar var mikið til óbreytt frá fyrri samning að innheimtu fyrir gjaldskyldan úrgang á söfnunarstað undanskilinni.
Rekstur grenndarstöðva fyrir frístundahús gengur misjafnlega, sérstaklega á sumrin þegar notkun er mikil. Meðal áskorana þar er losun á öðru en heimilisúrgangi og nýting annarra (t.d. heimila og fyrirtækja/rekstraraðila) á aðstöðunni.
Umræða um fyrirkomulag og svigrúm til þróunar, m.a. út frá gerð fjárhagsáætlunar.
Nefndin ræddi málið.
14.11. 2609005 - Göngustígur frá Gunnarsbraut að Brekkuskógi
Lagt fram erindi frá Skógræktarfélagi Dalabyggðar um lagningu göngustígs frá Gunnarsbraut að göngustíg við Brekkuskóg.
Nefndin tekur vel í erindið og felur starfsmönnum Dalabyggðar að vinna áfram að útfærslu. Það verður framlag Dalabyggðar til verkefnisins.
14.12. 2609004 - Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lengingu sjóvarnar við Ægisbraut, Búðardal
Vegagerðin sækir um framkvæmdarleyfi vegna lengingar á sjóvörn við Ægisbraut um rúma 70m til suðurs.
Umsókn samþykkt. Skipulagsfulltrúa falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
15. 2607003F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 80
Fundagerð framlögð.
16. 2606001F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152
Fundagerð framlögð.
17. 2609005F - Byggðarráð Dalabyggðar - 355
Fundargerð framlögð.
17.1. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III
Lagður fram viðauki III við fjárhagsáætlun 2026.
Framlögð tillaga að Viðauka III (3) við fjárhagsáætlun ársins 2026

Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarlækkunar í A-sjóði:

Hækkun Jöfnunarsjóðsframlaga kr. 42.547.000

Hækkun launakostnaðar vegna fræðslumála kr. 26.037.000

Samtals kostnaðarlækkun í A-hluta 16.510.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.


Eignfærslur:

Breytingar á fjárfestingarliðum til kostnaðarlækkunar:

Samtals kr. 7.000.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.

Einnig er í þessum viðauka leiðrétt upphafsstaða handbærts fjár þar sem útgönguspá 2025 sem unnið var útfrá var röng mv lokastöðu ársins 2025.

Byggðarráð samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026 og vísar málinu til sveitarstjórnar.
17.2. 2608019 - Holt Skammtímadvöl á Vesturland
Lagt fram minnisblað vegna Holts skammtímadvalar á Vesturlandi dags. 26. ágúst 2026.

Afgreiðsla félagsmálanefndar frá fundi nefndarinnar nr. 80: " Hildigunni er þakkað fyrir yfirferðina. Nefnd og gestir ræða úrræðið og stöðu Dalabyggðar. Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og telur að brýn þörf sé til staðar. Málinu vísað til sveitarstjórnar."
Byggðarráð samþykkir aðild Dalabyggðar að rekstri Skammtímadvalar á Vesturlandi og þá tillögu sem fyrir liggur að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulag skv. minnisblaði frá stjórnendum í velferðarþjónustu á Vesturlandi dags. 26.ágúst 2026.

Samþykkt samhljóða

Málinu vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar.
17.3. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá
Veiðifélag Laxár áformar áformar byggingu teljaraþreps í Laxá, rétt ofan við brú. Framkvæmdin er í leyfisferli hjá Fiskistofu, en óskað er eftir leyfi Dalabyggðar sem landeiganda.

Byggðarráð veitir heimild landeiganda fyrir framkvæmdinni en bendir á að sækja þarf um formlegt framkvæmdarleyfi hjá skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir að meðtöldu leyfi Fiskistofu.

Samþykkt samhljóða.

Málinu vísað til sveitarstjórnar.
17.4. 2609011 - Dalaveitur ársreikningur 2025
Lagður fram til formlegrar afgreiðslu ársreikningur Dalaveitna ehf. fyrir árið 2025 en skv. ákvörðun sveitarstjórnar fer byggðarráð með stjórn Dalaveitna ehf. Tap varð á rekstri félagins á árinu 2025 að fjárhæð 3,3 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi (Árið 2024 var hagnaður að fjárhæð 29,9 millj. kr.) og eigið fé félagsins í árslok var neikvætt um 17,0 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi (Árið 2024 var eigið fé félagsins neikvætt um 13,7 millj. kr.). Vísað er til ársreikningsins varðandi ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum.
Byggðarráð samþykkir framlagðan ársreikning fyrir Dalaveitur ehf.

Mál til kynningar
7. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá fundi nr. 1001.
Framlagt til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1001..pdf
8. 2609009 - Fundarboð á Haustþing SSV 2026
Framlagt fundarboð og dagskrá á haustþing SSV sem fram fer á Hótel Varmalandi í Borgarbyggð miðvikudaginn 14. og 15. október.
Framlagt til kynningar.
2026 Dagskrá.pdf
2026 Fundarboð undirritað.pdf
18. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026
Sveitarstjóri flytur skýrslu sveitarstjóra
Til máls tók: Lilja.
Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar færist um viku vegna Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna og verður því fimmtudaginn 15. október kl.16:00

Fundargerð yfirfarin, prentuð og undirrituð til staðfestingar.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta