Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 78

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
11.02.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Eyjólfur Ingvi Bjarnason formaður,
Ragnheiður Pálsdóttir varamaður,
Sigrún B Halldórsdóttir varamaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Jóna Björg Guðmundsdóttir Verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Jóna Björg Guðmundsdóttir, Verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2602007 - Félagsmál 2026
Farið yfir stöðu mála í málaflokknum.
Umrædd mál eru bundin trúnaði og því ekki frekar bókað hér.


Mál til kynningar
2. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu
Farið yfir stöðu mála varðandi barnavernd.
Framlengd undanþága Dalabyggðar til að vera sjálfstæð í málaflokknum er í gildi fram til 28.02.2026. Farið yfir stöðu mála í samskiptum við nærliggjandi barnaverndarþjónustur.
3. 2501029 - Skammtímadvöl barna
Verkefnastjóri fjölskyldumála kynnti stöðu mála og lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun.
Sveitarfélög á Vesturlandi; Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Hvalfjarðarsveit og Dalabyggð, hafa átt í samráði við Þroskahjálp á Vesturlandi um brýna þörf fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi. Með sameiginlegri viljayfirlýsingu, lýsa aðilar yfir vilja sínum til að vinna saman að framgangi verkefnisins með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum þeirra örugga og faglega þjónustu á svæðinu. Hér á eftir er rakin tímalína máls, frá því að samtalið hófst og fram til dagsins í dag.
Á fyrsta fundi stjórnenda velferðarþjónustu á Vesturlandi þann 20.11.2024 var þörfin fyrir skammtímadvöl á Vesturlandi rædd og bókað í fundargerð að stjórnendur hvers sveitarfélags myndu kortleggja þörfina á úrræðinu.
Á fundi stjórnenda þann 11.12.2024 var það bókað að hvert sveitarfélag myndi óska eftir að fá heimild frá sínu fagráði varðandi áframhaldandi samtal. Markmið samtalsins yrði að fara saman í uppbyggingu á skammtímadvöl á Vesturlandi.
Á fundi stjórnenda þann 08.01.2025 var bókað að stjórnendur væru að ræða við sín fagráð og fengið góðan meðbyr. Á fundinum var lagt upp með að allir stjórnendur væru komnir með heimild eða bókun þess efnis til áframhaldandi vinnslu verkefnisins fyrir næsta fund hópsins.
Þann 15.01.2025 er bókað á fundi félagsmálanefndar Dalabyggðar að nefndin fagni því að til skoðunar sé að koma á fót skammtímadvöl á Vesturlandi
Á fundi 12. febrúar 2025 var bókað að stjórnendur hefðu farið í greiningu á þörfinni í sínum sveitarfélögum og að umræða um skammtímavistun myndi halda áfram á næsta fundi. Á fundinum var einnig rætt um hvernig húsakostur kæmi til greina undir úrræði eins og skammtímavistun. Stjórnendur sammála um að vera með augun opin fyrir húsnæði á Vesturlandi.
Á fundi þann 10. mars 2025 var ákveðið að leggja upp með að stjórnendur verði búin að kortleggja stöðuna á sínu svæði og þörf fyrir skammtímavistun fyrir næsta fund.

Á þessum tímapunkti í ferlinu fóru stjórnendur jafnframt að ræða almennt möguleika á húsnæði á Vesturlandi sem gæti hentað undir skammtímadvöl, án þess að tekin væri formleg ákvörðun um tiltekið húsnæði. Í því samhengi bárust stjórnendum upplýsingar um að húsnæði á Holti gæti hugsanlega komið til skoðunar.

Þann 19. júní 2025 fóru stjórnendur í heimsókn í skammtímadvölina Móaflöt í Garðabæ. Þar tóku fulltrúar staðarins á móti hópnum og veittu mikilvæga innsýn í rekstur og fyrirkomulag sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni til 18 ára aldurs. Í kjölfar heimsóknarinnar var bókað að haft yrði samband við formann Þroskahjálpar á Vesturlandi með það að markmiði að óska eftir sameiginlegum fundi.

Þann 8. október 2025 var fundur með stjórnendum í velferðarþjónustu og formanni Þroskahjálpar á Vesturlandi þar sem skoðaðir voru möguleikar á samstarfi með Holt. Þar kom fram að Þroskahjálp á Vesturlandi hafði áhuga á samstarfi við sveitarfélögin á Vesturlandi. Fram kom í þessu samtali að aðrir aðilar hefðu einnig sýnt Holti áhuga og hefðu hug á að nýta húsnæðið fyrir svipaðan rekstur en Þroskahjálp hefði frekar hug á að koma á skammtímadvöl fyrir Vesturland. Þá lýsti Þroskahjálp vilja við að laga húsnæðið með það í huga að þar yrði skammtímadvöl fyrir börn og ungmenni á Vesturlandi sem mæti núgildandi kröfum. Bókað var að stjórnendur myndu kynna málið fyrir sínum fagráðum og að útbúin yrði viljayfirlýsing samhliða áframhaldandi samtali við Þroskahjálp.

Viljayfirlýsing sveitarfélaga við Þroskahjálp var lögð fyrir félagsmálanefnd Dalabyggðar þann 3. desember 2025. Félagsmálanefnd lýsti yfir ánægju með að þetta skref sé tekið og styður það að Dalabyggð verði aðili að viljayfirlýsingunni. Sama dag, þann 3. desember 2025 skrifaði Dalabyggð undir sameiginlega viljayfirlýsingu ásamt sveitarfélögum á Vesturlandi og var lagt til að verkefnahópur myndi skila niðurstöðum sínum fyrir 13. febrúar 2026.

Í kjölfar undirritunar hafa stjórnendur á Vesturlandi fundað nánast vikulega með það að markmiði að útfæra verkefnið nánar í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar. Vinnan hefur einkum snúið að mótun þjónustunnar og skilgreiningu helstu forsendna fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi.

Í þessari vinnu hefur verið lögð áhersla á að móta heildstæða skammtímadvöl sem uppfyllir gildandi lög og reglugerðir um málefni fatlaðs fólks, tryggir jafnt aðgengi barna og fjölskyldna óháð búsetu og byggir á faglegum gæðaviðmiðum. Þá er vinna hafin við að móta sameiginlega nálgun að framtíðarfyrirkomulagi reksturs, þar á meðal fjármögnun þjónustunnar á grundvelli fjölda þjónustuþega. Fundað var þann 27. janúar 2026 með stjórnendum í velferðarþjónustu og Þroskahjálp á Vesturlandi. Farið var yfir stöðu mála, teikningar af húsnæðinu kynntar og lagðar til þær breytingar sem stjórnendur telja nauðsynlegt að ráðast í.

Næstu skref í verkefninu eru að fara í vettvangsferð í Holt með fulltrúum Þroskahjálpar, SSV, fulltrúa frá skipulagssviðum sveitarfélaga. Skoða aftur aðstæður m.a með tilliti til aðgengismála.

Félagsmálanefnd bindur vonir við að skammtímavöl fyrir fötluð börn geti opnað sem fyrst á Vesturlandi.

Samþykkt samhljóða.

4. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð
Farið yfir stöðu farsældarmála í Dalabyggð.
Verkefnastjóri fjölskyldumála fór yfir stöðu mála.
5. 2411008 - Gott að eldast á Vesturlandi
Farið yfir stöðu verkefnisins.
Stofnað hefur verið MÓMA teymi (móttöku- og matsteymi) í Dalabyggð.
Í teyminu sitja fulltrúar frá Dalabyggð, HVE og Silfurtúni sem munu fara sameiginlega yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30 

Til bakaPrenta