| |
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari sat fundinn undir dagskrárlið 1.
| | 1. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III | |
Framlögð tillaga að Viðauka III (3) við fjárhagsáætlun ársins 2026
Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarlækkunar í A-sjóði:
Hækkun Jöfnunarsjóðsframlaga kr. 42.547.000
Hækkun launakostnaðar vegna fræðslumála kr. 26.037.000
Samtals kostnaðarlækkun í A-hluta 16.510.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.
Eignfærslur:
Breytingar á fjárfestingarliðum til kostnaðarlækkunar:
Samtals kr. 7.000.000 sem leiðir til hækkunar á áætluðu handbæru fé.
Einnig er í þessum viðauka leiðrétt upphafsstaða handbærts fjár þar sem útgönguspá 2025 sem unnið var útfrá var röng mv lokastöðu ársins 2025.
Byggðarráð samþykkir viðauka III við fjárhagsáætlun 2026 og vísar málinu til sveitarstjórnar. | | Viðauki_3.pdf | | |
|
| 2. 2608019 - Holt Skammtímadvöl á Vesturland | |
Byggðarráð samþykkir aðild Dalabyggðar að rekstri Skammtímadvalar á Vesturlandi og þá tillögu sem fyrir liggur að rekstrarformi og rekstrarfyrirkomulag skv. minnisblaði frá stjórnendum í velferðarþjónustu á Vesturlandi dags. 26.ágúst 2026.
Samþykkt samhljóða
Málinu vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar. | | Minnisblad_Holt_26_agust_2026 Leið 3 sveitastjórar..pdf | | |
|
| 3. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá | |
Byggðarráð veitir heimild landeiganda fyrir framkvæmdinni en bendir á að sækja þarf um formlegt framkvæmdarleyfi hjá skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins þegar fullnægjandi gögn liggja fyrir að meðtöldu leyfi Fiskistofu.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til sveitarstjórnar. | | |
|
| 4. 2609011 - Dalaveitur ársreikningur 2025 | |
Byggðarráð samþykkir framlagðan ársreikning fyrir Dalaveitur ehf.
| | Ársreikningur Dalaveitur 2025.pdf | | |
|