| |
| 1. 2607011 - Milliuppgjör eftir fimm fyrstu mánuði ársins | |
Til máls tók: Ingibjörg.
Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur byggðarráðs af þróun rekstrarins en telur jafnframt jákvætt að nú hafi verið unnið milliuppgjör sem veitir skýrari yfirsýn yfir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins á fyrri hluta ársins og gerir kleift að bregðast fyrr við frávikum frá áætlun. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fylgjast áfram náið með þróun rekstrar og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins, greina sérstaklega þá kostnaðarliði sem víkja frá áætlun og leggja reglulega fram upplýsingar um stöðu mála. Jafnframt er sveitarstjóra falið að greina áfram þróun rekstrarins og leggja fram tillögur að aðgerðum sem stuðlað geta að bættri rekstarniðurstöðu og auknum stöðugleika í fjármálum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 2. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Til máls tók: Ingibjörg
Vinnufundur sveitarstjórnar vegna vinnu við fjárhagsáætlun verður 3. september nk. Fram að honum vinnur starfsfólk áfram að stöðugreiningu og tillögum ásamt fastanefndum út frá einstaka málaflokkum. Verði m.a. horft til þjónustustefnu sveitarfélagsins sem unnin verður samhliða fjárhagsáætlun.
Samþykkt samhljóða. | | Dagsetningar vegna vinnu við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árin 2027 - 2030, samþ.pdf | | |
|
| 3. 2608006 - Skipun skipulagsfulltrúa | |
| Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 4. 2603023 - Umsókn um stofnun lóðar í landi Ólafsdals | |
Sveitarstjórn samþykkir stofnun lóðarinnar Ólafsdalseyrar úr landi Ólafsdals L137878 samkvæmt merkjalýsingu dags. 2. júlí 2026.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 5. 2608002 - Reglugerðarbreytingar vegna breytinga á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í samráðsgátt | |
| Til máls tók: Bjarnheiður | | Yfirlitsskjal yfir reglugerðarbreytingar_14_7_2026.pdf | | |
|
| 6. 2607007 - Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku | |
Drög að umsögn frá atvinnumálanefnd lögð fram til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða. | | Drög til samráðs - Stefna stjórnvalda um uppbyggignu flutningskerfis raforku..pdf | | |
|
| 7. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi | |
Til máls tók: Bjarnheiður.
Bjarnheiður leggur til að ef umsagnir undir dagskrárlið 6 og 7 verða samþykktar og sendar, verði innviðaáætlun Dalabyggðar send með.
Drög að umsögn frá atvinnumálanefnd lögð fram til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða. | | Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi_19.06.2026..pdf | | |
|
| 8. 2606020 - Hvítbók um byggðamál | |
Drög að umsögn frá atvinnumálanefnd lögð fram til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða. | | Hvítbók um byggðamál júní 2026..pdf | | |
|
| 9. 2604012 - Fjallskil 2026 | |
Lagt er til að fundargerðir og álagningarseðlar, fyrir fjallskiladeildir Skógarstrandar, Suðurdala, Hvammssveitar, Fellsstrandar, Laxárdals og Saurbæjar verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
Í ljósi þess að fundargerð og fjallskilaseðil fjallskilanefndar Skarðsstrandar vantar er lagt til að vísa afgreiðslu þeirra til byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 10. 2601018 - Umsagnarbeiðni breyting á gistileyfi | |
| Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við rekstrarleyfi með þeim fyrirvara að rekstraraðili hafi gert samning vegna sorphirðu. | | |
|
| |
| 11. 2605002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 351 | | Fundargerð framlögð | 11.1. 2410010 - Brothættar byggðir DalaAuður Rætt um verkefni Kristjáns í verkefninu "Vegurinn heim".
Samtal við byggðarráð um möguleg afnot af veggjum fyrir listaverk. | 11.2. 2606011 - Fjárhagsáætlun 2026-2029 staða eftir 5 mánuði | 11.3. 2606012 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki III Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram með starfsfólki. | 11.4. 2605018 - Kosning í nefndir skv. A-hluta 48. gr samþykkta Dalabyggðar Lagt til að eftirtaldir verði skipaðir í fjallskilanefnd Suður-Dala:
Aðalmenn: Valberg Sigfússon Berghildur Pálmadóttir Guðbrandur Þorkelsson Svavar Magnús Jóhannsson Sigurdís E. L. Sigursteinsdóttir
Varamenn: Þorbjörn Jóelsson Hörður Hjartarson
Samþykkt samhljóða.
| 11.5. 2604012 - Fjallskil 2026 Sveitarstjóra falið að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum. | 11.6. 2605021 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 26 Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn. | 11.7. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings Byggðarráð vísar málinu til Umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | 11.8. 2606009 - Tónlistarnám á Akureyri Byggðarráð veitir samþykki sitt fyrir tónlistarnámi utan lögheimilis. | 11.9. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Reglur um auglýsingar eru samþykktar. | 11.10. 2602017 - Starfsmannamál Farið yfir stöðuna. | 11.11. 2606010 - Lausar lóðir í Búðardal - auglýsing Deiliskipulög fyrir Búðardal, annars vegar sunnan og hins vegar norðan Miðbrautar, voru staðfest í Bdeild fyrr á árinu. Áður hafa verið auglýstar skipulagðar lóðir í deiliskipulagi fyrir Hvamma og á iðnaðarsvæðinu á Iðjubraut. Samkvæmt reglum Dalabyggðar um úthlutun lóða þarf að auglýsa þær í fyrstu áður en hægt sé að úthluta þeim. Það á við um allar lausar lóðir í nýju deiliskipulögunum sem ná yfir gróna hluta þorpsins og stækkunarsvæðinu norður af Silfurtúni.
Eftirtaldar lóðir verði auglýstar: Gunnarsbraut 9-11 og 17-19 Sunnubraut 18 Búðarbraut 3, 5, 7 og 9 Ægisbraut 5 Stekkjarhvammur 9a
Samþykkt samhljóða. | 11.12. 2410029 - Samþykkt um gatnagerðargjöld í Dalabyggð Sveitarstjórn getur ákveðið að veita afslátt af gatnagerðargjöldum fyrir ákveðnar lóðir, sjá síðustu málsgrein 6. gr. í samþykkt um gatnagerðargjald í Dalabyggð:
"Sveitarstjórn getur lækkað eða fellt niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, sbr. ákvæði 6. gr. laga um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Ákveði sveitarstjórn að nýta sér þessa heimild, skal hún gera um það sérstaka samþykkt þar sem fram komi hversu lengi heimild til lækkunar frá þessari gjaldskrá gildir, hvert sé tilefni lækkunarinnar með vísan til 1. mgr. 6. gr. laga nr. 153/2006 og aðrar þær málefnalegu ástæður sem búa að baki ákvörðuninni."
Lagt til að veittur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjöldum á eftirtöldum lóðum:
Gunnarsbraut 9-11 Sunnubraut 18 Búðarbraut 3, 5, 7 og 9 Ægisbraut 5 Stekkjarhvammur 9a Bakkahvammur 2
Umræddur afsláttur tekur yfir úthlutun á upptöldum lóðum sem úthlutað er á árinu 2026.
Tilefni lækkunar er að upptaldar lóðir standa við frágengnar götur.
Samþykkt samhljóða. | 11.13. 2606013 - Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031 Lagt fram til kynningar. | 11.14. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026 Byggðarráð tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga við dagskrárlið 9. | | |
|
| 12. 2606004F - Byggðarráð Dalabyggðar - 352 | | Fundargerð framlögð | 12.1. 2606032 - Ráðning skólastjóra Byggðarráð staðfestir ráðningu og ráðningarsamning við Katrínu Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.2. 2601012 - Auðarskóli, málefni Tónlistarskóla 2026 Byggðarráð fagnar því að tekinn hafi verið í notkun glæsilegur nýr flygill og þakkar öllum sem áttu þátt í söfnun fyrir hljóðfærinu fyrir þeirra framlag. Taka þarf ákvörðun um hvernig ráðstöfun á eldri flygli verður háttað til framtíðar og í því skyni mun byggðarráð taka samtal við stjórnendur Auðarskóla. | 12.3. 2606021 - Umsókn um lóð Lækjarhvammur 24 Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Lækjarhvammur 24 til Guðbrandar Jóns Jónssonar og Hafdísar Ingu Melsted Ásgeirsdóttur.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| 12.4. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Byggðarráð samþykkir uppfærðar reglur um auglýsingar á skjám í íþróttamiðstöð og felur sveitarstjóra að birta reglurnar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.5. 2506014 - Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda Byggðarráð tekur undir bókun félagsmálanefndar og ítrekar mikilvægi þess að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti sér áfram í málinu en um er að ræða mikið hagsmunamál sem getur haft töluverð áhrif á afkomu sveitarfélaga.
Samþykkt samhljóða | 12.6. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu Byggðarráð felur sveitarstjóra að hefja formlegt samtal um samstarf við Barnaverndarþjónustu Vesturlands vegna samstarfs um rekstur barnaverndarþjónustu.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| 12.7. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026 Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.8. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.9. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd Byggðarráð staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.10. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 20242025 Byggðaráð samþykkir framlagðan viðauka við verksamning á milli sveitarfélagsins og Eyktar vegna byggingu Íþróttamiðstöðvar. Umræddir verkliðir rúmast innan fjárheimilda ársins.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.11. 2602034 - Styrkvegir 2026 Viðar fer yfir tillögu að skiptingu styrkvegafés. Kr. 4.000.000 fengust í styrkvegi 2026.
| 12.12. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 Breytingar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar vegna sameiningar á nefndum teknar til fyrri umræðu.
Sveitarstjóra falið að uppfæra samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar til samræmis við umræður á fundi og samþykktunum vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í leyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða | 12.13. 2607004 - Fundartími byggðarráðs og kosning varaformanns Byggðarráð staðfestir að fundir byggðarráðs skuli fara fram fjórða fimmtudag í mánuði kl. 13:00 og að varaformaður byggðarráðs til eins árs verði Ingveldur Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða | 12.14. 2606003F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 165 Fundargerð framlögð | 12.15. 2606006F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152 Fundargerð framlögð | 12.16. 2606007F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 79 Fundargerð framlögð | 12.17. 2606009F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 50 Fundargerð framlögð | 12.18. 2606005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 58 Fundargerð framlögð | | |
|
| 13. 2607004F - Byggðarráð Dalabyggðar - 353 | | Fundargerð framlögð | 13.1. 2607011 - Milliuppgjör eftir fimm fyrstu mánuði ársins Lögð fram drög að milliuppgjöri fyrir fyrstu fimm mánuði ársins. Ekki hefur áður verið unnið milliuppgjör fyrir Dalabyggð og því ekki til viðmiðunartölur áranna á undan heldur notast við áætlaðar niðurstöðutölur árins. Um er að ræða gróft mat á stöðunni við lok fyrstu fimm mánaðanna. Í fjárhagsáætlun fyrir árið er gert ráð fyrir halla upp á tæplega 22,3 milljónir á A hluta sveitarsjóðs við árslok. Helstu niðurstöður benda til þess að hallareksturinn verði töluvert meiri á yfirstandandi ári en gert var ráð fyrir í áætlun. Helstu skýringar eru þróun verðlags, aukinn launakostnaður, seinkun á áætluðum tekjum en rekstur sveitarfélagsins er þannig samansettur að útgjöld stærri liða eru oft þyngri fyrri hluta ársins.
Þegar fjárhagsáætlun var unnin var lagt upp með 3,6% verðbólgu þvert á áætlun en verðbólgan stendur í dag í um 5% sem hefur þau áhrif að viðbótarkostnaður vegna þessar liðar eru tæplega 30 milljónir sem af er ári.
Samþykkt samhljóða | 13.2. 2607001 - Umsókn um lóð Stekkjarhvammur 9.a Byggðarráð úthlutar lóðinni Stekkjarhvammi 9a, Búðardal til Elvars Hallgrímssonar kt. 040659-3749 á grundvelli reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða frá 20. september 2016.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| 13.3. 2607003 - Umsókn um lóð Búðarbraut 9 Lóðinni Búðarbraut 9, Búðardal er úthlutað til Bogu Kristínar Thorlacius kt. 120875-3459 með þeim fyrirvara að ekki er verið að veita leyfi fyrir færslu á húsi frá Vesturbraut 6. Úthlutun fer fram á grundvelli reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða frá 20. september 2016. Lóðarhafi verður að beina þeim hluta erindisins sem snýr að tilfærslu á húsi til byggingarfulltrúa Dalabyggðar.
Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Samþykkt samhljóða
| 13.4. 2208004 - Vegamál Staða vega í sveitarfélaginu rædd. Sveitarstjóri hefur sent fyrirspurn á Vegagerðina og kallað eftir stöðu á útboði vegna Vestafjarðarvegar frá Erpstöðum að Haukadalsá. Samkvæmt svörum frá svæðisstjóra Vegagerðinnar á Vestursvæði þá verður ekki farið í útboð á þessum kafla fyrr en í ágúst úr þessu. Einnig kom fram að til stendur að fara í lagfæringar í haust á illa förnum vegkafla í Saurbænum en búið er að færa til fjármagn úr öðrum verkefnum til að bregðast við ástandi á þeim vegi.
Byggðarráð fagnar því að ráðast eigi í lagfæringar á vegkafla í Saurbæ en ítrekar mikilvægi þess að staðið verði við útboð á Vestfjarðavegi um Miðdali. Mikill umferðaþungi ásamt þungaflutningum er á umræddum vegakafla og er hann mikilvæg tenging við Vestfirði. Í kjölfar aukins umferðarþunga hefur ástand vegarins hríðversnað með tilheyrandi slysahættu. | 13.5. 2607010 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands Farið yfir stöðu og rekstur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og næstu skref varðandi undirbúning og framkvæmd á breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits. Verið er að afla gagna og upplýsinga í samvinnu með öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi og SSV til að varpa skýrara ljósi á stöðuna vegna óvissu um umfang þeirra verkefna sem eftir sitja hjá sveitarfélögunum, hvernig staðið verður að starfsmannamálum, frágangi búnaðar og skjala og öðrum skuldbindingum. | 13.6. 2607006 - Vatnaáætlun Íslands 2028-2033 Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um áætlanir og verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18. gr.laga um stjórn vatnamála.
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða | 13.7. 2607008 - Erindi frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga Lagt fram | 13.8. 2606033 - Fundarboð á aðalfund Dalagistingar Fundargerð aðalfundar framlögð. Ekki var unnt að klára að staðfesta ársreikning þar sem fyrirliggur að hann mun taka breytingum en ákveðnar forsendur tengdar söluhagnaði á fasteignum liggja ekki fyrir að svo stöddu. Í ljósi þess var ákveðið að boða til auka aðalfundar í haust til að samþykkja ársreikning félagsins. | 13.9. 2605023 - Aðalfundur Veiðifélags Laxár í Hvammssveit 2026 Aðalfundargerð Veiðifélags Laxár í Hvammsveit framlögð. | | |
|
| 14. 2606003F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 165 | | Fundargerð framlögð | 14.1. 2606014 - Skipun varaformanns og ritara 2026 - 2030 Samþykkt samhljóða | 14.2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi við Ásuhvamm 1a Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi Rarik var samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 12. maí 2026. Umsóknin var grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010 fyrir íbúum Brekkuhvamms 12, sbr. tölvupóst dags. 8. maí 2026. Brugðist hefur verið við athugasemdum Vegagerðarinnar og byggingarfulltrúa falið að afgreiða umsóknina.
Samþykkt samhljóða | 14.3. 2606015 - Fundartími Umhverfis- skipulagsnefndar 2026-2030 Umhverfis- og skipulagsnefnd ákveður að fundir nefndarinnar skulu fara fram 1. miðvikudag hvers mánaðar kl. 16:00.
Samþykkt samhljóða | 14.4. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings Farið yfir stöðu málsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram á grundvelli gildandi deiliskipulags.
Samþykkt samhljóða | 14.5. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd Tillagan hefur verið lagfærð og skilmálar heimila nú aðeins eitt frístundahús á hverjum byggingarreit í samræmi við aðalskipulag, bætt var við umfjöllun um umhverfisáhrif og framsetning gagna lagfærð sbr. afgreiðslu HMS 5. mars 2026.
Samþykkt samhljóða | 14.6. 2606016 - Deiliskipulag Iðjubrautar - óveruleg breyting 2026 Tillagan víkur ekki verulega frá skilmálum gildandi deiliskipulags hvað varðar notkun, byggingarmagn og yfirbragð og fellur undir málsmeðferð um óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða | 14.7. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir breytingartillöguna og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða | 14.8. 2606018 - Umsókn um byggingarleyfi að Haukabrekku C, frístundahús og bílskúr Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að byggingarfulltrúi vinni málið áfram.
| | |
|
| 15. 2606005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 58 | | Fundargerð framlögð | 15.1. 2606030 - Kosning varaformanns og ritara Fram kom tillaga um Jón Egil Jóhannsson sem varaformann og Lindu Guðmundsdóttur sem ritara nefndarinnar.
Samþykkt samhljóða. | 15.2. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030 Áherslur ræddar, tengsl og stuðning við atvinnulífið, óstaðbundin störf og komandi uppfærslu á innviðaskýrslu, sem stoðtæki við atvinnulífið. Einnig rætt um húsnæðismál bæði fyrir fólk og fyrirtæki.
Sérstaklega var talað um landbúnað og umhverfi hans, nýliðun, stuðning og lagaumhverfi. Einnig aðeins um verslun sem þjónar atvinnurekstri í Dölunum. | 15.3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 Nefndin fagnar frumkvæði sveitafélagsins og hvetur íbúa og fyrirtæki til að vera vel byrg og undirbúin undir álag og umferð. | 15.4. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi Nefndin hyggst vinna málið áfram. | 15.5. 2606020 - Hvítbók um byggðamál Nefndin hyggst vinna málið áfram. | | |
|
| 16. 2606006F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 152 | | Fundargerð framlögð | 16.1. 2606025 - Skipun varaformanns og ritara Samþykkt samhljóða | 16.2. 2606026 - Fundartími fræðslunefndar Samþykkt samhljóða | 16.3. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu Fræðslunefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.
Málinu vísað til sveitarstjórnar
Samþykkt samhljóða | 16.4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 Fræðslunefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.
Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.
Samþykkt samhljóða | 16.5. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Fræðslunefnd samþykkir framlögð drög að uppfærðum reglum og vísar málinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða
| 16.6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar Fræðslunefnd felur sveitarstjóra að endurskoða reglur til samræmis við umræður á fundi og leggja aftur fyrir fræðslunefnd.
Samþykkt samhljóða | 16.7. 2606032 - Ráðning skólastjóra Fræðslunefnd fagnar ráðningu Katrínar Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla og telur hana vel til starfans fallna í ljósi reynslu og þekkingar á skólastarfinu. Nefndin óskar Katrínu velfarnaðar í starfi.
| 16.8. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 Starfandi skólastjóri fór yfir skólastarf síðasta vetrar og þau verkefni sem eru framundan áður en kennsla hefst í haust. Ljóst er að endurnýja þarf búnað í grunnskóladeild m.a. borð og stóla í kennslustofur, kaupa sófasett og vinna ákveðna þarfagreiningu á húsbúnaði og nýtingu rýma.
Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnin verði þarfagreining í grunnskóladeild í samráði við skólastjóra í haust þar sem m.a verður farið yfir búnaðarþörf og aðbúnað. Að horft verði til þeirrar vinnu við fjáhagsáætlunargerð í haust.
| | |
|
| 17. 2606007F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 79 | | Fundargerð framlögð | 17.1. 2606022 - Skipun varaformanns og ritara Samþykkt samhljóða | 17.2. 2606023 - Fundartími félagsmálanefndar Samþykkt samhljóða | 17.3. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 félagsmálanefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.
Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.
Samþykkt samhljóða | 17.4. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu Félagsmálanefnd Dalabyggðar leggur til að við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.
Málinu vísað til sveitarstjórnar
Samþykkt samhljóða | 17.5. 2606028 - Erindi til nýkjörinna sveitarstjórna landsins Félagsmálanefnd tekur jákvætt í erindið og undirstrikar mikilvægi virks og öflugs öldungaráðs sem vettvangs samráðs og ráðgjafar í málefnum eldri borgara. Nefndin felur sveitarstjóra að hafa hliðsjón af erindinu í áframhaldandi vinnu.
Samþykkt samhljóða
| 17.6. 2506014 - Upplýsinga fundur um Samkomulag um þjónusutu við börn með fjölþættan vanda Félagsmálanefnd Dalabyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Félagsmálanefnd telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Sveitartjóra falið að koma áskorun á framfæri og málinu vísað til byggðarráðs Dalabyggðar til upplýsinga.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 18. 2606009F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 50 | | Fundargerð framlögð | 18.1. 2511011 - Bæjarhátíð 2026 Samtal við verkefnisstjóra hátíðarinnar og yfirferð á lausum endum. | | |
|
| 19. 2607002F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 59 | | Fundargerð framlögð | 19.1. 2503014 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð Nefndin leggur til að innviðaáætlun verði uppfærð í takti við núverandi ástand innviða og nýja Samgönguáætlun. | 19.2. 2607007 - Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar. | 19.3. 2606019 - Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar. | 19.4. 2606020 - Hvítbók um byggðamál Nefndin hefur unnið að tillögu að umsögn og felur sveitarstjórn að taka afstöðu til hennar. | | |
|