Til bakaPrenta
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 62

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
09.11.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Bjarnheiður Jóhannsdóttir formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Guðmundur Sveinn Bæringsson aðalmaður,
Linda Guðmundsdóttir aðalmaður,
Steinþór Logi Arnarsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, 
Mál nr. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030 kemur inn á starfssvið atvinnumálanefndar og menningarmálanefndar þar sem hluti eigna Dalabyggðar fellur undir erindisbréf atvinnumálanefndar og aðrar undir erindisbréf menningarmálanefndar.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608017 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð
Unnið að uppfærslu innviðaskýrslu.
Nefndin fór yfir núverandi skýrslu á fundinum. Að mestu leyti stendur hún fyrir sínu, en afla þarf upplýsinga og uppfæra miðað við núverandi stöðu. Formanni falið að fara yfir og lagfæra minni háttar atriði, en nefndin leggur til að starfsmönnum sveitarféalgsins verði falið að afla uppfærslugagna.

Nefndin mun vinna áfram áherslupunkta sem nýtast sveitarstjóra og sveitarstjórn við hagsmunagæslu og kynningu á stöðu innviða.
Innviðaáætlun_Dalabyggðar_haust2025..pdf
2. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030
Rætt um umræður af opnum fundi 8. október sl.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að rekstur Vínlandsseturs verði auglýstur laus til umsóknar sem fyrst. Leggur nefndin til að verkefnastjóra og formanni nefndarinnar verði falið að móta auglýsinguna.
Mál til kynningar
3. 2603015 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2026
Farið yfir tölfræði frá Vinnumálastofnun um atvinnuleysi á Vesturlandi.
vinnumarkadur_atvinnuleysi_VMST_september2026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta