Til bakaPrenta
Byggðarráð Dalabyggðar - 353

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
21.07.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir varamaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2607011 - Milliuppgjör eftir fimm fyrstu mánuði ársins
Tekin til umræðu staða fjármála sveitarfélagsins eftir fyrstu fimm mánuði ársins.
Lögð fram drög að milliuppgjöri fyrir fyrstu fimm mánuði ársins. Ekki hefur áður verið unnið milliuppgjör fyrir Dalabyggð og því ekki til viðmiðunartölur áranna á undan heldur notast við áætlaðar niðurstöðutölur árins. Um er að ræða gróft mat á stöðunni við lok fyrstu fimm mánaðanna. Í fjárhagsáætlun fyrir árið er gert ráð fyrir halla upp á tæplega 22,3 milljónir á A hluta sveitarsjóðs við árslok. Helstu niðurstöður benda til þess að hallareksturinn verði töluvert meiri á yfirstandandi ári en gert var ráð fyrir í áætlun. Helstu skýringar eru þróun verðlags, aukinn launakostnaður, seinkun á áætluðum tekjum en rekstur sveitarfélagsins er þannig samansettur að útgjöld stærri liða eru oft þyngri fyrri hluta ársins.

Þegar fjárhagsáætlun var unnin var lagt upp með 3,6% verðbólgu þvert á áætlun en verðbólgan stendur í dag í um 5% sem hefur þau áhrif að viðbótarkostnaður vegna þessar liðar eru tæplega 30 milljónir sem af er ári.

Samþykkt samhljóða
2. 2607001 - Umsókn um lóð Stekkjarhvammur 9.a
Lögð fram umsókn Elvars Hallgrímssonar um lóðina Stekkjarhvammur 9.a.
Byggðarráð úthlutar lóðinni Stekkjarhvammi 9a, Búðardal til Elvars Hallgrímssonar kt. 040659-3749 á grundvelli reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða frá 20. september 2016.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða

3. 2607003 - Umsókn um lóð Búðarbraut 9
Lögð fram umsókn Bogu Kristínar Thoralcius um lóðina Búðarbraut 9.
Lóðinni Búðarbraut 9, Búðardal er úthlutað til Bogu Kristínar Thorlacius kt. 120875-3459 með þeim fyrirvara að ekki er verið að veita leyfi fyrir færslu á húsi frá Vesturbraut 6. Úthlutun fer fram á grundvelli reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða frá 20. september 2016.
Lóðarhafi verður að beina þeim hluta erindisins sem snýr að tilfærslu á húsi til byggingarfulltrúa Dalabyggðar.

Byggðarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi sveitarstjórnar sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samþykkt samhljóða

4. 2208004 - Vegamál
Farið yfir stöðu á vegamálum í sveitarfélaginu.
Staða vega í sveitarfélaginu rædd. Sveitarstjóri hefur sent fyrirspurn á Vegagerðina og kallað eftir stöðu á útboði vegna Vestafjarðarvegar frá Erpstöðum að Haukadalsá. Samkvæmt svörum frá svæðisstjóra Vegagerðinnar á Vestursvæði þá verður ekki farið í útboð á þessum kafla fyrr en í ágúst úr þessu. Einnig kom fram að til stendur að fara í lagfæringar í haust á illa förnum vegkafla í Saurbænum en búið er að færa til fjármagn úr öðrum verkefnum til að bregðast við ástandi á þeim vegi.

Byggðarráð fagnar því að ráðast eigi í lagfæringar á vegkafla í Saurbæ en ítrekar mikilvægi þess að staðið verði við útboð á Vestfjarðavegi um Miðdali. Mikill umferðaþungi ásamt þungaflutningum er á umræddum vegakafla og er hann mikilvæg tenging við Vestfirði. Í kjölfar aukins umferðarþunga hefur ástand vegarins hríðversnað með tilheyrandi slysahættu.
5. 2607010 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
Til umræðu er framtíðarfyrirkomulag Heilbrigðiseftirlits Vesturlands í kjölfar samþykktra lagabreytinga um tilfærslu eftirlitsverkefna frá sveitarfélögum til ríkisstofnana. Breytingarnar eru áformaðar frá 1. janúar 2027 og fela í sér verulegar breytingar á starfsemi núverandi heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga.
Farið yfir stöðu og rekstur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og næstu skref varðandi undirbúning og framkvæmd á breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits. Verið er að afla gagna og upplýsinga í samvinnu með öðrum sveitarfélögum á Vesturlandi og SSV til að varpa skýrara ljósi á stöðuna vegna óvissu um umfang þeirra verkefna sem eftir sitja hjá sveitarfélögunum, hvernig staðið verður að starfsmannamálum, frágangi búnaðar og skjala og öðrum skuldbindingum.
6. 2607006 - Vatnaáætlun Íslands 2028-2033
Lagt fram erindi frá Umhverfis- og orkustofnun sem vinnur nú að endurskoðun vatnaáætlunar samkvæmt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála.
Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir upplýsingum um áætlanir og verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18. gr.laga um stjórn vatnamála.

Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða
Fundargerðir til kynningar
8. 2606033 - Fundarboð á aðalfund Dalagistingar
Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Dalagistingar sem fram fór 7. júlí sl.
Fundargerð aðalfundar framlögð. Ekki var unnt að klára að staðfesta ársreikning þar sem fyrirliggur að hann mun taka breytingum en ákveðnar forsendur tengdar söluhagnaði á fasteignum liggja ekki fyrir að svo stöddu. Í ljósi þess var ákveðið að boða til auka aðalfundar í haust til að samþykkja ársreikning félagsins.
Aðalfundargerð.pdf
Mál til kynningar
7. 2607008 - Erindi frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga
Lagt fram til kynningar að beiðni Sambands íslenskra sveitarfélaga kynning á starfssemi Samtaka Orkusveitarfélaga, þar sem kynnt er m.a. starfssemi, hlutverk og áherslur.
Eins er farið yfir stöðu máls varðandi skattlagningu orkumannvirkja. Skattlagning orkumannvirkja hefur verið eitt helsta hagsmunamál samtakanna um árabil og nú stefnir í að málið komi til meðferðar á Alþingi á komandi vetri.

Lagt fram
Orkusveitarfélög_kynning til sveitarfélaga.pdf
Skattlagning orkumannvirkja.pdf
9. 2605023 - Aðalfundur Veiðifélags Laxár í Hvammssveit 2026
Framlögð fundargerð aðalfundar Veiðifélags Laxár í Hvammssveit.
Aðalfundargerð Veiðifélags Laxár í Hvammsveit framlögð.
Aðalfundargerð, ársreikningur og bændadagar.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30 

Til bakaPrenta