| |
| 1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Lagt til að leggja fram áætlun með áorðnum breytingum fyrir fyrri umræðu hjá sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Íbúar eru minntir á íbúafundi til kynningar á fjárhagsáætlun 2027-2030 þann 17. nóvember kl.17:00 og kl.20:00, nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.
| | Fjárhagsáætlun 2027-2030 - fyrri umræða 12.okt 2026.pdf | | |
|
| 2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 | |
Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda á árinu 2027 var samþykkt á síðasta fundi byggðarráðs.
Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- framkvæmda- skipulags- og þjónustugjöld kemur til afgreiðslu þegar tengd vísitala liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá söfnun og eyðing dýraleifa :
Lagt er til að gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá félagsheimila:
Lagt er til að gjaldskrá félagsheimila (Dalabúð og Tjarnarlundur) 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Þó hækkar ekki gjald fyrir afnot af vottuðu eldhúsi, leiga skjávarpa eða trygging fyrir lán á búnaði úr húsi.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir litla matvælavinnslu í Tjarnarlundi:
Lagt er til að gjaldskrái fyrir litla matvælavinnslu í Tjarnarlundi verði óbreytt 2027.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Fjósum :
Leiga tekur breytingum byggingarvísitölu í september ár hvert, (grunnur 2009). Byggingarvísitala í september 2026 er 206,9.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fráveitu:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir gæludýrahald í Dalabyggð:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir gæludýrahald í Dalabyggð taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá hafna:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir hafnir Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Héraðsbókasafns Dalasýslu:
Lagt er til að árskort á Héraðsbókasafn Dalasýslu 2027 kosti ekkert frá 1. janúar til 31. desember 2027. Lagt er til að sektargjald hækki um 1 krónu og millilánasafn um 100 krónur, sem er í raun 2,5% hækkun en þó rúnað af.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar:
Lagt er til að gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar 2027, þ.e. kostnaður vegna prentunar og ljósritunar, taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Dalaveitna:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir hitaveitu á Laugum í Sælingsdal 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá beitar- og ræktunarlands:
Lagt er til að gjaldskrá beitar- og ræktunarlands í eigu Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarstofu - Nýsköpunarseturs:
Lagt er til að gjaldskrá standi að mestu óbreytt, þ.e. hækki ekki. Þó verði bætt við sér flokki fyrir leigu á lokaðri skrifstofu, skilmálum og forgangsröðun þar að lútandi.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarskóla:
Byggðarráð hefur yfirfarið tillögu frá 154. fundi Fræðslunefndar varðandi gjaldskrá Auðarskóla og gerir eftirfarandi tillögu: Lagt er til að gjaldskrá Auðarskóla hækki ekki fyrir árið 2027, líkt og Fræðslunefnd lagði til. Jafnframt er lagt til að afsláttum sé breytt á eftirfarandi hátt: - Systkinaafsláttur af dvalargjaldi leikskóla verði 30% fyrir annað barn, 75% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn. Hæsti afsláttur gildi fyrir yngsta barn. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börn. - 25% sérstakur afsláttur af dvalargjaldi á leikskóla og grunnvistgjaldi lengdrar viðveru fyrir einstaklinga með heildartekjur undir 6.000.000 kr.- eða hjón/sambúðarfólk undir 9.000.000 kr.- skv. skattaframtali. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börn. Dalabyggð setur sér verklagsreglur varðandi umsóknir um sérstakan afslátt.
Með þessum afslætti er verið að grípa alla tekjulága foreldra, óháð aðstæðum eða ástæðum og þannig er jafnræðis gætt til muna m.v. fyrra fyrirkomulag. Aðrir afslættir falla niður frá og með gildistöku þessarar gjaldskrár. Auk þess eru samræmdar upplýsingar milli gjaldskrár, reglna og eyðublaða er varða leikskólavist.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna sorphirðu:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Slökkviliðs:
Lögð er til breyting á gjaldskrá Slökkviliðs Dalabyggðar 2027, að hún verði ekki tengd neysluvísitölu áfram, hún taki því mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar:
Lagt er til að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar taki eftirfarandi breytingum: Verð vegna barna, þ.e. undir 18 ára taki ekki breytingum 2027. Verð vegna leigu á sal taki ekki breytingum 2027 en tekin verði út möguleiki á hálfum sal þar sem ekki er til búnaður til að skipta upp salnum, að svo stöddu. Í stað þess verði boðið upp á klst leigu og svo hálfan dag í öllum salnum. Almennt verð og vegna 67 ára og eldri hækki í sléttum tölum þar sem alla jafna er tekið mið af 2,5%
Þó eru einstaka liðir sem munu hækka meira m.t.t. reksturs íþróttamiðstöðvar þetta fyrsta rekstrarár. Lagt er upp með ofangreindar hækkanir, í þeirri von að ekki þurfi að hækka gjaldskrá á næsta ári. Enda eigum við, eftir þær, að vera á svipuðum stað og aðrar íþróttamiðstöðvar sem bjóða upp á sömu þjónustu og gæði.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vatnsveitu:
Lagt er til að gjaldskrá Vatnsveitu Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Jafnframt komi inn ákvæði er varða tengingar við vatnsveitu á svæðum þar sem aðal- og dreifiæðar eru ekki til staðar eða aðstæður óvenjulegar sem og áskilnaður um lokun á heimtaug við sérstakar aðstæður.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2011020 - Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð | |
| Farið yfir stöðu málsins og rædd framtíðaraform sveitarfélagsins. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundi. | | |
|
| 4. 2611007 - Erindi til byggðarráðs - gatnagerðargjöld | |
Sl. sumar ákvað byggðarráð að að veita 50% afslátt af gatnagerðargjaldi lóða sem standa við þegar uppbyggðar götur. Við ákvörðun á afslætti var sérstaklega rætt að afslátturinn ætti aðeins að ná til lóða fyrir íbúðarhúsnæði við tilbúnar götur, ekki af atvinnuhúsnæði eða öðrum lóðum utan tilbúinna gatna.
Sveitarstjóra falið að ræða við málsaðila. | | |
|
| 5. 2611010 - Auðarstofa - Nýsköpunarsetur | |
Byggðarráð samþykkir að farið verði í þær framkvæmdir sem taka á fyrir í "1. fasa" og mótframlag Dalabyggðar verði samkvæmt fjárhagsáætlun.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka samtal við lögreglustjórann á Vesturlandi um mögulega aðstöðu í húsnæðinu.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 6. 2611011 - Nafnasamkeppni íþróttamiðstöðvar | |
| Byggðarráð tekur vel í erindið og felur lýðheilsufulltrúa að vinna málið áfram. | | |
|
| 7. 2611015 - Umsókn um lóð Sunnubraut 18 | | Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn. | | |
|
| 8. 2611014 - Umsókn um lóð Gunnarsbraut 9-11 | | Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn. | | |
|