Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 164

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
12.05.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Guðlaug Kristinsdóttir formaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir ritari,
Baldvin Guðmundsson varamaður,
Björn Henry Kristjánsson aðalmaður,
Viðar Þór Ólafsson varaformaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Kristján Ingi Arnarsson embættismaður, Hlynur Torfi Torfason Skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Bjarnheiður Jóhannsdóttir, ritari
Lagt er til að bæta á dagskrá máli nr. 2605011, Umsókn um byggingarleyfi, og verði það dagskrárliður nr. 9.

Aðrir liðir færist til skv. framangreindu.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu v.Hvannármiðlunar hefur verið í auglýsingaferli sem lauk þann 11. maí sl. og er hér lögð fram til endanlegrar afgreiðslu í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar.
Samþykkt með lagfæringum eftir athugasemdir umsagnaraðila, með 1. mgr 32. greinar Skipulagslaga til hliðsjónar og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn.
2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi
Framlögð umsókn um byggingarleyfi í ljósi uppfærðrar tillögu að afstöðu lokahúss þar sem gangstétt við Ásuhvamm hefur verið færð vestan við götu. Bílastæðum hefur einnig verið fækkað.
Samþykkt með fyrirvara um lok grenndarkynningar og samþykkt Vegagerðarinnar.
Búðardalur-Lokahús-RARIK.pdf
3. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal - Iðjubraut
Rætt um gildandi deiliskipulag við Iðjubraut í Búðardal og mögulega þörf á lítilsháttar endurskoðun.
Nefndin samþykkir að fela skipulagsfulltrúa, í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir og umræður á fundinum, að gera óverulega deiliskipulagsbreytingu og kynna áformin fyrir RARIK, fyrir næsta fund nefndarinnar.
4. 2604008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Álftafirði
Framlögð umsókn frá Vegagerðinni um efnistöku og efnisvinnslu.
Samþykkt samhljóða.
5. 2602010 - Umsókn um stofnun lögbýlis
Óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi umsókn um stofnun lögbýlis.
Frestað vegna ónógra gagna, skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
6. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12
Vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd af 349. fundi byggðarráðs.
Nefndin þakkar erindið. Leggur hún til að farið verði í þarfagreiningu og yfirferð lóðaleigusamninga, með það að markmiði að bæta úr.
7. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15
Framlögð til kynningar gögn vegna fyrirhugaðrar hleðslustöðvar við Vesturbraut 15.
Nefndin leggst ekki gegn áformunum.
8. 2604007 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í Dalakoti
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í Dalakoti.
Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna.
9. 2605011 - Umsókn um byggingarleyfi að Lyngbrekku
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á fjósi.
Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna og gæta samræmis við lög um dýravelferð.
10. 2604018 - Umsókn um stofnun lóðar að Háafelli
Framlögð umsókn um stofnun lóðar að Háafelli.
Nefndin samþykkir framlagða umsókn.
11. 2604017 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 gámum á Vesturbraut 15
Framlögð umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 gámum á Vesturbraut 15.
Nefndin samþykkir stöðu gáma til eins árs, í samræmi við reglur.
12. 2604016 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi að Hömrum
Framlögð umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi að Hömrum.
Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna.
Mál til kynningar
13. 2603003 - Refa og minnkaveiði 2026-2028
Kynnt staða mála.
14. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026
Framlagt til kynningar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd minnisblað verkefnastjóra um hlutverk og skyldur sveitarfélagsins varðandi undirbúning og utanumhald í tengslum við almyrkva á sólu þann 12. ágúst n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta