| |
Viðar Þór Ólafsson verkstjóri áhaldahúss kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 1.
| | 1. 2609015 - Eftirlitsskýrsla vegna Guðrúnarlaugar | |
Huga þarf að merkingum og rennsli. Verkefnastjóra og verkstjóra áhaldahúss falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 2. 2604012 - Fjallskil 2026 | |
Skýrslur um fjallskil 2026 bárust frá fjallskilanefndum Skógarstrandar, Hvammssveitar, Laxárdals, Suðurdala, Fellsstrandar og Saurbæjar.
Byggðarráð þakkar fjallskilanefndum fyrir skýrslurnar.
Sveitarstjóra og starfsfólki falið að fara yfir fjármagn vegna viðhalds rétta í samræmi við upplýsingar í skýrslum nefndanna. Sveitarstjóra falið að senda tilkynningar um álagningar vegna vangoldinna dagsverka í samræmi við upplýsingar í skýrslum nefndanna. | | |
|
Ingibjörg Jóhannsdóttir, aðalbókari situr fundinn undir dagskrárlið 3.
| | 3. 2610003 - Staða á viðskiptakröfum haust 2026 | |
Tekið til umræðu útistandandi kröfur og næstu skref varðandi þær kröfur. Sveitarstjóra og starfsfólki falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
| 4. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags | Minnisblað verkefnastjóra var tekið fyrir á síðasta fundi fræðslunefndar og er hér lagt fram fyrir byggðarráð.
Byggðarráð styður tillögu fræðslunefndar um að unnar verði reglur um viðmið varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags á grundvelli þeirra sjónarmiða og tillagna sem fram koma í framlögðu minnisblaði. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson, verkefnastjóri umhverfis- og eignasviðs og Ingibjörg Jóhannsdóttir, aðalbókari sitja fundinn undir dagskrárlið 5.
| | 5. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Farið yfir forsendur og fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2027-2030.
Byggðarráð leggur til að áætlun verði unnin áfram í samræmi við umræður á fundinum og verði tekin fyrir á auka fundi byggðarráðs 5. nóvember nk. | | |
|
| 6. 2610026 - Beiðni um kaup á lyftustólum | |
Beiðni frá Silfurtúni um að keyptir verði lyftustólar fyrir heimilið.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við hjúkrunarforstjóra. | | |
|
| 7. 2610018 - Staða bílaflota BDRS | |
| |
|
| 8. 2510013 - Íbúðir í Búðardal | |
| Byggðarráð fagnar frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Búðardal. | | |
|
| 9. 2511013 - Skipurit skrifstofu Dalabyggðar | |
| |
|
| 10. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 | |
Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda á árinu 2027:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutfall útsvars árið 2027 verði 14,97% og álagningarhlutfall fasteignaskatts eftirfarandi:
a) 0,60% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
Álagningahlutfall fasteignaskatts á A-hluta er ákveðið með heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Byggðarráð áréttar að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða og álagningarhlutfallið verður tekið til endurskoðunar þegar að ári með það að markmiði að lækka það á ný.
Staðgreiðsluafsláttur fasteignagjalda verði líkt og á árinu 2026 eða 5%
Nú er það svo að elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og fráveitugjaldi, sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu og hafi ekki af því leigutekjur. Upplýsingar Tryggingastofnunar (TR) um tekjuviðmið hafa ekki verið birtar þegar fyrirliggjandi gögn voru unnin og því lagt til við sveitarstjórn að viðmið fyrir afslátt ellilífeyrisþega og öryrkja verði birt á heimasíðu Dalabyggðar þegar tilkynnt er um álagningu fasteignagjalda 2027 ef viðmiðin verða ekki komin fyrir fund sveitarstjórnar í desember nk.
Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega getur þó að hámarki verið 85.000kr.- árið 2027.
Samþykkt samhljóða.
Í samræmi við bókun 273. fundar sveitarstjórnar þann 15.10.2026 muni gjaldskrár sem ekki hækka samkvæmt vísitölu eða öðrum lögbundnum viðmiðum, ekki hækka um meira en 2,5%
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 11. 2610027 - Erindi vegna Dalabúðar - nýting og aðstaða | |
| Byggðarráð þakkar fyrir erindir og vísar því til menningamálanefndar sem er að skoða nýtingu menningarhúsa í eigu sveitarfélagsins. | | |
|
Einar Björn Þorgrímsson, lýðheilsufulltrúi situr fundinn undir dagskrárlið 12.
| | 12. 2610013 - Húsnæði félagsstarfs í Dalabyggð | |
| Lýðheilsufulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson, verkefnastjóri umhverfis- og eignasviðs situr fundinn undir dagskrárlið 14.
| | 14. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings | |
| Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka samtal við málsaðila um að gengið verði frá samningi í samræmi við umræður á fundinum, út frá þeim drögum sem liggja fyrir fundinum. | | |
|
| 15. 2610030 - Samkomulag um samnýtingu bílastæðis | |
| Byggðarráð leggur til að Dalabyggð verði aðili að samkomulagi um nýtingu bílastæða við Staðarfellskirkju en ekki er um fjárhagslega skuldbindingu að ræða, aðeins afnotarétt. | | |
|
| |
|
| 16. 2610025 - Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga | |
| Sveitarstjóra falið að klára umsögn og skila inn í samráðsgátt. | | Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga - umræðuskjal.pdf | | |
|
| 17. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026 | |
| Sveitarstjóra falið að skila inn umsögn sveitarfélagsins í samráðsgátt. | | frumvarp-um-loftslagslog-þingskj201-202mal.pdf | | |
|
| |
| 18. 2609029 - Fyrirhuguð niðurfelling Hjarðarholtsvegar af vegaskrá | |
| |
|
| 19. 2610004 - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Ketilsstaðavegur (5807-01) af vegaskrá | |
| |
|
| 20. 2610005 - Tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu Stóra-Holtsvegar (5978-01) st, 610-660 af vegaskrá | |
| |
|