| |
1. 2407003 - Fjárhagsáætlun 2024 - Viðauki IV | |
Til máls tók: Björn Bjarki
Samþykkt samhljóða. | Viðauki IV (4) ágúst 2024..pdf | Viðauki IV (4), ágúst 2024, sundurliðun og skýringar..pdf | | |
|
2. 2409009 - Forvarnarhópur Dalabyggðar - erindisbréf | |
Til máls tóku: Björn Bjarki, Eyjólfur og Ingibjörg.
Samþykkt samhljóða. | Forvarnarhópur Dalabyggðar_Erindisbréf_tilbúið..pdf | | |
|
3. 2409008 - Reglur um félagslega heimaþjónustu | |
Til máls tók: Eyjólfur.
Samþykkt samhljóða. | Reglur um félagslega heimaþjónustu í Dalabyggð_tilbúið..pdf | | |
|
4. 2409007 - Reglur um fjárhagsaðstoð Dalabyggðar | |
Til máls tók: Eyjólfur.
Samþykkt samhljóða. | Reglur um fjárhagsaðstoð_Dalabyggð_tilbúið..pdf | | |
|
5. 2405003 - Aðkomutákn við Búðardal | |
Til máls tók: Björn Bjarki.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
6. 2406008F - Byggðarráð Dalabyggðar - 327 | Lögð fram til kynningar. | 6.1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal 2024 Farið yfir stöðu uppbyggingar.
Sveitarstjóra falið að hefja undirbúning á verðkönnun fyrir skipulag skólalóðar.
Samþykkt samhljóða. | 6.2. 2407003 - Fjárhagsáætlun 2024 - Viðauki IV Samtals breyting á A-sjóði kr. 3.046.000,- til hækkunar útgjalda. Samtals breytingar á B-sjóði kr. 250.000,- til lækkunar útgjalda. Samtals breytingar á A og B sjóði kr. 2.796.000,- til lækkunar á handbæru fé. Afkoma ársins, A og B hluti, samtals kr. 40.686.000,- (Upphafleg áætlun 88.191.000,-)
Samþykkt samhljóða. | 6.3. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 Byggðarráð tekur undir bókun fræðslunefndar og mun hafa viðbótartillögur til hliðsjónar í vinnu sinni við fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
Samþykkt samhljóða. | 6.4. 2301067 - Starfsmannamál Byggðarráð samþykkir framlagða auglýsingu. | 6.5. 2406018 - Fjallskil 2024 Allar fjallskilanefndir hafa skilað inn gögnum. Lagt til að allar fundargerðir og álagningar verði staðfestar.
Samþykkt samhljóða. | 6.6. 2407009 - Lagning ljósleiðara í Búðardal Byggðarráð lýsir ánægju sinni með þá tengingu sem komin er í Búðardal og hvetur til þess að áætlanir standist um að eftirstöðvar klárist sumarið 2025 í samræmi við samtal við Mílu.
Samþykkt samhljóða. | 6.7. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal Farið yfir stöðu mála. | | |
|
7. 2406004F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 133 | Lögð fram til kynningar. | 7.1. 2408005 - Tómstundir/íþróttir skólaárið 2024-2025 Jón Egill íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir það starf sem boðið verður upp á í haust og búið er að skipuleggja. Fræðslunefnd lýsir ánægju með það framboð af tómstundum sem í boði verður. | 7.2. 2408002 - Ungmennaráð 2024-2025 Lögð fram drög að auglýsingu eftir framboðum í ungmennaráð. Auglýsingin var samþykkt með á orðnum breytingum og íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að koma auglýsingu og kynningarefni á framfæri til ungmenna. Framboðsfrestur er til og með 9. september n.k.
| 7.3. 2305001 - Skólaþjónusta | 7.4. 2408003 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2024-2025 Varðandi skólalóð, öryggismál og leiksvæði, þá óskar fræsðlunefnd eftir því að byggingarnefnd/byggðarráð taki umræðu um þennan mikilvæga þátt við framkvæmdaaðilann sem og eftirlitsaðilann sem sér um byggingarstjórn og eftirlit með verkinu er varðar aðstöðu nemenda grunnskólans samanber minnisblað skólastjóra.
Varðandi leiktæki á skólalóð þá mælist fræðslunefnd til að það verði skoðað hvað helst vanti á núverandi lóð í samráði við skólastjórnendur.
Rætt um kynningarfund sem haldinn verður þann 4. september n.k. í Dalabúð þar sem Menntastefna Dalabyggðar verður kynnt. Fræðslunefnd hvetur alla áhugasama til að mæta á fundinn sem haldinn verður í Dalabúð kl. 17:30. | 7.5. 2408004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2024-2025 Ljóst er að börnum er að fjölga á leikskólanum þegar líður á haustið, eru 23 börn nú en stefnir í að verði 27 börn í nóvember. Rætt um mönnum og stöðu hennar. | 7.6. 2407002 - Fjárhagsáætlun 2025-2028 | 7.7. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 Varðandi viðbótartillögur sem vísað var til fræðslunefndar þá var rætt um hvaða möguleikar væru til staðar. Fræðslunefnd óskar eftir við byggðarráð að þeir þættir sem tilgreindir eru í viðbótartillögum starfshópsins verði hafðir til hliðsjónar við gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar fyrir komandi ár. | | |
|
8. 2408002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 149 | Lögð fram til kynningar. | 8.1. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal Umræður spunnust um deiliskipulagið og þau drög sem kynnt voru. Samþykkt að vinna málið áfram á milli funda þannig að hægt verði að leggja fram tillögu um uppfært skipulag á næsta fundi nefndarinnar. | 8.2. 2408011 - Vindorkuver í landi Sólheima, umhverfismatsskýrsla Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir lengri tímafresti til þess að gefa umsögn um framkomna umhverfismatsskýrslu um vindorkugarð í landi Sólheima. Skýrslan er gríðarlega efnismikil og snertir það marga viðamikla þætti í innviðum í Dalabyggð, og stangast á við gildandi aðalskipulag. Í ljósi framangreinds óskar nefndin eftir því að fá rýmri frest til að skila af sér umsögn eða þar til eftir næsta reglubundna fund umhverfis- og skipulagsnefndar sem verður haldinn 2. október n.k. | 8.3. 2408013 - Vindorkuver í landi Garpsdals umhverfisskýrsla Sveitarstjóra falið að ganga frá umsögn Dalabyggðar um fyrirliggjandi umhverfisskýrslu í landi Garpsdals, í samstarfi við skipulagsfulltrúa, í samræmi við umræður á fundinum. | 8.4. 2408008 - Umsókn um byggingarleyfi Rauðbarðaholt 3 Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir útgáfu byggingarleyfis með fyrirvara um að fullnægjandi gögn hafi borist byggingarfulltrúa. | 8.5. 2409001 - Umsókn um byggingarleyfi að Ljárskógaströnd 17 Umsóknin er í samræmi við deili- og aðalskipuskipulagsbreytingar sem nú eru í ferli hjá Skipulagsstofnun. Ekki er unnt að gefa út byggingarleyfi fyrr en skipulögin bæði hafa tekið gildi og fullnægjandi gögn hafa borist byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi að þessum formsatriðum uppfylltum. | 8.6. 2409003 - Umsókn um byggingarleyfi Ljárskógaströnd 26 Umsóknin er í samræmi við deili- og aðalskipuskipulagsbreytingar sem nú eru í ferli hjá Skipulagsstofnun. Ekki er unnt að gefa út byggingarleyfi fyrr en skipulögin bæði hafa tekið gildi og fullnægjandi gögn hafa borist byggingarfulltrúa. Byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi að þessum formsatriðum uppfylltum. | 8.7. 2405003 - Aðkomutákn við Búðardal Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að staðsetningu. | 8.8. 2409004 - Umsókn um breytingu á hönnun að Jörfa Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir beiðni um breytingu á fyrirliggjandi hönnun með fyrirvara um að fullnægjandi gögn hafi borist byggingarfulltrúa. | 8.9. 2408007 - Framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar | | |
|
9. 2406002F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 71 | Lögð fram til kynningar. | 9.1. 2402007 - Félagsmál 2024 Verkefnastjóri fjölskyldumála kynnti stöðu mála fyrir félagsmálanefnd.
Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að uppfærðum reglum um félagslega heimaþjónustu og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að uppfærðum reglum um fjárhagsaðstoð með áorðnum breytingum og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar. | 9.2. 2406000 - Forvarnarmál Félagsmálanefnd samþykkir tillögu að erindisbréfi með áorðnum breytingum og vísar staðfestingar í sveitarstjórn. | 9.3. 2402006 - Fjárhagsaðstoð 2024 Verkefnastjóri fjölskyldumála fór yfir stöðu mála. | 9.4. 2408014 - Bjartur lífsstíll Félagsmálanefnd lýsir ánægju með væntanlega aðild Dalabyggðar að verkefninu. Rætt um mikilvægi þess að hlúa að þeim íbúum sem eiga erfitt um vik að koma sér til og frá þeirri afþreyingu sem í boði gæti verið. | | |
|
10. 2401003 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2024 | Lögð fram til kynningar. | stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 951.pdf | | |
|
11. 2401002 - Fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi 2024 | Lagðar fram til kynningar. | 181 fundur stjórnar SSV - fundargerð leiðrétt..pdf | 182 fundur stjórnar SSV - fundargerð..pdf | | |
|
12. 2403034 - Aðalfundur veiðifélags Laxdæla 2024 | Lögð fram til kynningar. | Fundargerð aðalfundaar 2024..pdf | | |
|
13. 2401010 - Fundir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2024 | |
Lögð fram til kynningar. | 191_2024_0916_Samþykkt fundargerð..pdf | | |
|
| |
14. 2408007 - Framtíð verndarsvæðis Breiðafjarðar | |
Lögð fram til kynningar. | Breidafjardarskyrsla-juni-2024..pdf | | |
|
15. 2401014 - Skýrsla sveitarstjóra 2024 | Til máls tók: Björn Bjarki.
Lögð fram til kynningar. | Skýrsla sveitarstjóra á 249. fundi.pdf | | |
|
Rætt um aðstöðu á skólalóð á meðan á framkvæmdum stendur og einnig um framtíðar skipulag lóðarinnar að framkvæmdum loknum.