Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 265

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
12.02.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Garðar Freyr Vilhjálmsson aðalmaður,
Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri,
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri
Lagt er til að bæta eftirfarandi máli á dagskrá:

Mál nr. 2602011, samstarfssamningur Dalabyggðar og Umf. Ólafs pá um búnað í líkamsræktarsal, verði dagskrárliður nr. 4.

Mál nr. 2602001F, fundargerð félagsmálanefndar Dalabyggðar frá fundi nr.78, verði dagskrárliður nr. 9.

Aðrir liðir í útsendri dagskrá færist til skv. ofangreindu.

Samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun
Umhverfis- og skipulagsnefnd tók mál þetta til afgreiðslu á 161. fundi sínum og bókaði eftirfarandi:

Tillaga að breytingu Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 vegna vatnsmiðlunar í Hvanná lögð fram til afgreiðslu skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Vinnslutillaga var kynnt frá 17. nóvember til 8. desember 2025. Umsagnir bárust frá 6 aðilum um vinnslutillöguna; Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, Náttúrufræðistofnun og Hestamannafélaginu Glaði. Brugðist hefur verið við ábendingum úr umsögnunum í endanlegri breytingartillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar og senda hana til athugunar Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

Er hér afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
25324_ASK_T_U_01-tillaga..pdf
2. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd
Umhverfis- og skipulagsnefnd tók mál þetta til afgreiðslu á 161. fundi sínum og bókaði eftirfarandi:

Framlögð tillaga að deiliskipulagi Tungu að lokinni auglýsingu sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 18. desember 2025 með athugasemdarfresti til 29. janúar 2026. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Skilmálar um veitukerfi voru lagfærðir með hliðsjón af umsögn heilbrigðiseftirlitsins. Umsögn Minjastofnunar kallaði ekki á lagfæringar á tillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna og fela skipulagsfulltrúa að senda hana til yfirferðar Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. Skipulagslaga.

Er hér afgreiðsla umhverfis- og skipulagsnefndar lögð fram til staðfestingar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
DSK-Tungan-01-DSK-1901.pdf
DSK-Tunga-Skógarströnd 1901-2025-uppfært.-PDF.pdf
3. 2602004 - Heilbrigðiseftirlit - v/framkomið frumvarp til laga um breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits og fleiri þátta
Rætt um framkomið frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Til máls tók: IÞS

Samþykkt að fela sveitarstjóra að eiga samráð við sveitarfélög á Vesturlandi varðandi umsögn um framkomið frumvarp.
4. 2602011 - Samstarfssamningur Dalabyggðar og Umf. Ólafs pá um búnað í líkamsræktarsal
Framlagður til staðfestingar samstarfssamningur Dalabyggðar og Umf. Ólafs pá um búnað í líkamsræktarsal Íþróttamiðstöðvar í Búðardal en samningurinn var tekinn til umræðu á 344. fundi byggðarráðs þar sem sveitarstjóra var falið að vinna málið áfram á þeim grunni sem hér er til staðfestingar.
Til máls tók: BÞ

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða samstarfssamning Dalabyggðar og Umf. Ólafs pá.
Samstarfssamningur undirritaður.pdf
5. 2301027 - Skólaakstur á yfirstandandi skólaári
Kynntar breytingar sem orðið hafa varðandi nemendafjölda á einni akstursleið skólabíla og kynnt tillaga að tímabundinni lausn vegna þeirrar stöðu.
Eyjólfur vék af fundi undir lið 5 á dagskrá.

Til máls tók: BÞ

Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við hlutaðeigandi verktaka um tímabundin samning.
Fundargerðir til kynningar
6. 2512002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 344
6.1. 2512021 - Útsvar og fasteignaskattur 2026
Elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og holræsagjaldi, sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu og hafi ekki af því leigutekjur.
Upplýsingar Tryggingastofnunar (TR) um tekjuviðmið höfðu ekki verið birtar þegar gögn voru unnin fyrir sveitarstjórnarfund í desember sl. og því samþykkt að viðmið fyrir afslátt ellilífeyrisþega og öryrkja yrðu birt á heimasíðu Dalabyggðar þegar tilkynnt yrði um álagningu fasteignagjalda 2026.
Hér eru lögð fram drög að þeim viðmiðum (sjá viðhengi með fundargerð).
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu.
6.2. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Farið yfir stöðu mála hvað framkvæmdir varðar.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar.
Lögð fram drög að samningi á milli Dalabyggðar og Ungmennafélagsins Ólafs pá um búnað.
Lögð fram drög að leigusamningi vegna meðferðarherbergis.
Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar.
Byggðarráð samþykkir að vinna áfram með framlögð drög að samningum sem til umræðu voru.
6.3. 2601017 - Umsagnarleyfi um tækifærisleyfi Þorrablót Ungmennafélagið Stjarnan Tjarnarlundi
Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn um tækifærisleyfi vegna þorrablóts 31. janúar n.k. með vísan til 17. gr. laga nr. 85/2007.
Samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar Dalabyggðar nr.375/2016 skal aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir innan Dalabyggðar miðast við fæðingarár, eða þá sem verða 18 ára á árinu.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis vegna þorrablóts í Tjarnarlundi.
6.4. 2601016 - Umsagnarleyfi um tækifærisleyfi Þorrablót Laxdæla Dalabúð
Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn um tækifærisleyfi vegna þorrablóts 24. janúar n.k. með vísan til 17. gr. laga nr. 85/2007.
Samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar Dalabyggðar nr.375/2016 skal aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir innan Dalabyggðar miðast við fæðingarár, eða þá sem verða 18 ára á árinu.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis vegna þorrablóts í Dalabúð.
6.5. 2601021 - Umsagnarleyfi um tækifærisleyfi Þorrablót Suður-Dala Dalabúð
Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn um tækifærisleyfi vegna þorrablóts 7. febrúar n.k. með vísan til 17. gr. laga nr. 85/2007.
Samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar Dalabyggðar nr.375/2016 skal aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir innan Dalabyggðar miðast við fæðingarár, eða þá sem verða 18 ára á árinu.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis vegna þorrablóts í Dalabúð.
6.6. 2601020 - Búseturúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda
Erindi frá mennta-og barnamálaráðuneyti þar sem fram kemur að framlag ríkisins til Dalabyggðar vegna búsetuúrræða barna með fjölþættan vanda vegna ársins 2025 sé kr. 83.616.450,-
Einnig liggja fyrir drög að samningi við Barna- og fjölskyldustofu um fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættan vanda fyrir árið 2026.
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála, byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í anda umræðu á fundinum.
6.7. 2309007 - Staða innviða
Rætt um stöðu á íbúða- og atvinnuhúsamarkaði í Dalabyggð.
Sveitarstjóri kynnti stöðu mála.
6.8. 2411008 - Gott að eldast - Dalabyggð
Lögð fram drög að erindisbréfi MÓMA teymis í Dalabyggð í tenglsum við verkefnið Gott að eldast og í kjölfar samskipti við HVE, SSV og aðra þá sem koma að þjónustu við aldraða.
Byggðarráð styður við stofnun MÓMA teymis í Dalabyggð og fagnar því að verkefnið sé að komast á framkvæmdastig.
6.9. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu
Farið yfir stöðu mála í málefnum barnaverndar. Núverandi heimild Dalabyggðar til að vera sjálfstæð í málaflokknum gildir til 28. febrúar n.k. Kynnt staða mála í viðræðum um mögulega aðild Dalabyggðar að barnaverndarþjónustu en skv. breytingum sem gerðar voru árið 2023 þurfa barnaverndarþjónustur að vera fyrir 6000 manna þjónustusvæði að lámarki.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
6.10. 2512006 - Byggðasafn Dalamanna, geymsluaðstaða og viðbragðsáætlun
Rætt um möguleika varðandi geymsluaðstöðu safnamuna.
6.11. 2311021 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026
Rætt um mögulega breytingu á samþykktum um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar skv. auglýsingu um fyrirmynd að samþykkt um stjórn sveitarfélaga nr. 1180/2021 í samræmi við 9. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samþykkt að boða til vinnufundar sveitarstjórnar um verkefnið.
6.12. 2601023 - Varúðarniðurfærsla skattkrafna v.2025
Kynnt tillaga um að varúðarniðurfærsla vegna útistandandi skattkrafna verði lækkuð um 1,2 millj.kr. frá því sem nú er vegna útistandandi skattkrafna í lok árs 2025.
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu.
6.13. 2601025 - Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Kynnt framkomin umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags.
Byggðarráð samþykkir framkomna umsókn.
6.14. 2601026 - Umsókn um leikskólavist í öðru sveitarfélagi
Kynnt framkomin umsókn um leikskólavist utan lögheimilissveitarfélags.
Byggðarráð samþykkir framkomna umsókn.
7. 2512006F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 147
7.1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal
Kynnt staða mála varðandi framkvæmdir og væntanleg lok þeirra, ráðningar og á innkaupum á búnaði.
Framlögð drög að gjaldskrá til kynningar.
Lýðheilsufulltrúi sagði frá því að nú er búið að manna íþróttamiðstöðina og verið er að kaupa inn húsgögn og annan búnað til þess að hægt verði að opna mannvirkið og hefja starfsemi í febrúar.
Lýðheilsufulltrúi kynnti drög að gjaldskrá hússins.
Stefnt er að vígslu hússins í lok febrúar.
7.2. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran
Lýðheilsufulltrúi kynnti starfið í félagsmiðstöðinni og hvernig því verði háttað nú á vorönn.
Lýðheilsufulltrúi sagði frá starfseminni sem er með líku sniði og verið hefur. Einnig voru kynntar nýjar reglum sem tóku gildi eftir áramótin síðustu varðandi nesti og slíkt og tóku þeir sem mæta í félagsmiðstöðina þátt í að móta þær reglur sem nú gilda.
7.3. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð
Farið yfir stöðu mála varðandi farsæld barna og samþætta þjónustu í Dalabyggð.
Verkefnastjóri fjölskyldusviðs sagði frá stöðu mála í Dalabyggð. Einnig sagði hún frá starfsemi Farsældarráðs á Vesturlandi sem Dalabyggð á aðild að. Fyrsti fundur þess ráðs verður haldinn í yfirstandandi viku og munu fulltrúar Dalabyggðar sitja fundinn.
7.4. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026
Farið yfir stöðu mála í grunnskólanum.
Skólastjóri fór yfir stöðu mála í grunnskólanum og upplýsti jafnframt fræðslunefnd um að verið er að koma tónlistarskólanum inn í Abler varðandi utanumhald á skráningu og samskipti við nemendur og forráðamenn líkt og komið er á varðandi íþrótta- og félagsstarf ungmenna í Dalabyggð.
7.5. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025
Farið yfir stöðu mála í leikskólanum.
Skólastjóri fór yfir stöðu mála í leikskólanum.
7.6. 2305001 - Skólaþjónusta
Rætt um fyrirkomulag sérfræðiþjónustu við Auðarskóla í kjölfar erindis frá hluta starfsmanna grunnskóladeildar Auðarskóla sem kynnt var og rætt á síðasta fundi fræðslunefndar.
Staða máls rædd og samþykkt að halda áfram rýni á verkefninu sem um ræðir.
7.7. 2601019 - Drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum
Í Samráðsgátt er nú til umsagnar drög að reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum. Drögin fjalla m.a. um tíðni mats, framkvæmd, undanþágur og birtingu niðurstaðna skyldubundins samræmds námsmats í grunnskólum.
Rætt um framkomin drög og sveitarstjóra falið að senda inn umsögn f.h. Dalabyggðar í anda umræðunnar á fundinum.
8. 2511006F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 48
8.1. 2511011 - Bæjarhátíð 2026
Á fundinn mætir verkefnastjóri hátíðarhalda 2026 til viðræðna við nefndina.
Farið yfir fyrirkomulag bæjarhátíðarinnar Heim í Búðardal og hlutverk sveitarfélagsins í því að undirbúa og halda utan um hátíðarhöldin í samstarfi við rekstraraðila og félagasamtök.
Rætt um mögulega aðkomu tónlistarskólans að bæjarhátiðinni í ljósi þess að í ár eru 50 ár frá stofnun hans en skólinn var stofnaður þann 1. október 1976.
8.2. 2511012 - 17. júní 2026
Á fundinn mætir verkefnastjóri hátíðarhalda 2026 til viðræðna við nefndina.
Rætt um fyrirkomulag hátíðarhaldanna.
8.3. 2411011 - Menningarmálaverkefnasjóður 2025
Farið yfir nýtingu styrkja úr Menningarmálaverkefnasjóði 2025





Jón Egill Jóhannsson - Er líða fer að jólum 2025 = 250.000 kr. Verkefni lokið.

History up Close - Námskeið í fornu handverki = 170.000 kr. Verkefni lokið

Hollvinahópur Grafarlaugar f.h. Umf. Æskan - Upplýsingaskilti við Grafarlaug = 150.000 kr. Verkefni lokið

Sælukotið Árblik, Guðrún Esther Jónsdóttir - Jólaball í Árbliki = 100.000 kr. Verkefni lokið.

Berghildur Pálmadóttir - Sögur úr sveitinni = 80.000 kr. Ekki varð af verkefninu

Guðmundur R. Gunnarsson - Davíðsmót = 70.000 kr. Verkefni lokið

Atli Freyr Guðmundsson - D&D í Dölunum = 60.000 kr. Verkefni lokið

Jasa Baka - Dala stúlka = 60.000 kr. Ekki varð af verkefninu

Kristján E. Karlsson - Ásýnd Dalanna = 60.000 kr. Ekki varð af verkefninu

Greiddir styrkir fyrir árið 2025 voru því kr.800.000,- en ónýttir styrkir kr.200.000,-
8.4. 2511019 - Menningarmálaverkefnasjóður 2026
Farið yfir innkomnar umsóknir um styrki úr Menningarmálaverkefnasjóði fyrir árið 2026
Teknar eru fyrir umsóknir sem bárust í sjóðinn fyrir árið 2026.

Samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins skal úthlutunin fara fram fyrir þann 1. febrúar ár hvert.
Auglýst var eftir umsóknum 1. desember 2025 til og með 12. janúar 2026.

Í sjóðinn bárust 8 umsóknir, til úthlutunar voru 1.500.000 kr.-

7 verkefni hljóta styrk að þessu sinni:

Jón Egill Jóhannsson - Er líða fer að jólum 2026 = 400.000 kr.-
History up Close - Námskeið í fornu handverki = 300.000 kr.-
Sigurbjörg Ingunn Kristínardóttir - Nýr flygill í Dalabúð = 300.000 kr.-
Atli Freyr Guðmundsson - D&D í Dölunum = 150.000 kr.-
Atli Freyr Guðmundsson - Átthagafræðsla = 150.000 kr.-
Dagverðarnes - Hönnun og bygging á söguskilti og hátíðarhöld vegna lok verkefnisins = 100.000 kr.-
Carolin Baare Schmidt og Sigríður Jónsdóttir - Uppbygging útivistar og samkomusvæðis = 100.000 kr.-

Nefndin þakkar fyrir innsendar umsóknir.
8.5. 2512006 - Byggðasafn Dalamanna, geymsluaðstaða og viðbragðsáætlun
Rætt um möguleika varðandi geymsluaðstöðu safnamuna.
9. 2512005F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 161
9.1. 2601014 - Fjölnytja- og landgræðsluskógrækt á lögbýlinu Vígholtsstöðum L137591
Framlagt bréf til sveitarfélagsins varðandi heimild til að fara í fjölnytja- og landgræðsluskógrækt.
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur farið yfir erindið. Skógræktaráformin samræmast stefnu og skilyrðum Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 um skógrækt á landbúnaðarsvæðum.
Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að ræktunaráætlun verði kynnt henni áður en framkvæmdaleyfi verður gefið út.

9.2. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun
Tillaga að breytingu Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 vegna vatnsmiðlunar í Hvanná lögð fram til afgreiðslu skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Vinnslutillaga var kynnt frá 17. nóvember til 8. desember 2025. Umsagnir bárust frá 6 aðilum um vinnslutillöguna; Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, Náttúrufræðistofnun og Hestamannafélaginu Glaði. Brugðist hefur verið við ábendingum úr umsögnunum í endanlegri breytingartillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna til auglýsingar og senda hana til athugunar Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
9.3. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd
Framlögð tillaga að deiliskipulagi Tungu að lokinni auglýsingu sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 18. Desember 2025 með athugasemdarfresti til 29. Janúar 2026. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Skilmálar um veitukerfi voru lagfærðir með hliðsjón af umsögn heilbrigðiseftirlitsins. Umsögn Minjastofnunar kallaði ekki á lagfæringar á tillögu.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja tillöguna og fela skipulagsfulltrúa að senda hana til yfirferðar Skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. gr. Skipulagslaga.
9.4. 2601022 - Úrgangsþjónusta - hreinsunarátak 2026
Umræða um fyrirkomulag hreinsunarátaks 2026. Söfnun á timbri og brotajárni í dreifbýli þar sem markmiðið er meðal annars að bæta aðgengi íbúa sem búa fjær söfnunarstöðinni í Búðardal að losunarílátum fyrir þessa flokka.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að viðhafa samskonar verklag og var viðhaft sumarið 2025.
9.5. 2503006 - Úrgangsþjónusta - útboð 2025
Umræða um fyrirkomulag söfnunar á rúlluplasti sem var undanskilin í útboði úrgangsþjónustu. Íslenska gámafélagið er tilbúið að sjá um þjónustuna áfram með sama sniði á sama verði.
Fram kom í samtali nefndarinnar við fulltrúa Íslenska Gámafélagsins að mikilvægt er að leggja aukna áherslu á við bændur að þeir flokki rúlluplast eftir litum og æskilegt sé að minnka notkun á svörtu plasti.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að viðhaft verði samskonar verklag varðandi söfnun rúlluplasts og viðhaft hefur verið undanfarin ár.
9.6. 2601003 - Umsókn um 10 stöðuleyfi að Fellsenda (hjúkrunarheimili)
Framlögð umsókn um stöðuleyfi fyrir gámaeiningar við hjúkrunarheimilið Fellsenda.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs sbr.reglugerð þar um .
9.7. 2512007 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir starfsmannahús í landi Kvennabrekku/við Árblik/
Framlögð umsókn um byggingarleyfi í landi Kvennabrekku/við Árblik.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi umsókn og felur byggingarfulltrúa að afgreiða umsóknina.
9.8. 2602001 - Umsókn um breytingu innandyra í Íþróttamiðstöðinni
Framlögð umsókn um breytingu innandyra í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagða breytingu.
10. 2602001F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 78
10.1. 2602007 - Félagsmál 2026
Farið yfir stöðu mála í málaflokknum.
Umrædd mál eru bundin trúnaði og því ekki frekar bókað hér.

10.2. 2505022 - Samningur um barnaverndarþjónustu
Farið yfir stöðu mála varðandi barnavernd.
Framlengd undanþága Dalabyggðar til að vera sjálfstæð í málaflokknum er í gildi fram til 28.02.2026. Farið yfir stöðu mála í samskiptum við nærliggjandi barnaverndarþjónustur.
10.3. 2501029 - Skammtímadvöl barna
Verkefnastjóri fjölskyldumála kynnti stöðu mála og lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun.
Sveitarfélög á Vesturlandi; Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Snæfellsbær, Hvalfjarðarsveit og Dalabyggð, hafa átt í samráði við Þroskahjálp á Vesturlandi um brýna þörf fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi. Með sameiginlegri viljayfirlýsingu, lýsa aðilar yfir vilja sínum til að vinna saman að framgangi verkefnisins með það að markmiði að tryggja börnum og fjölskyldum þeirra örugga og faglega þjónustu á svæðinu.

Hér að neðan er rakin tímalína máls, frá því að samtalið hófst og fram til dagsins í dag.

Á fyrsta fundi stjórnenda velferðarþjónustu á Vesturlandi þann 20.11.2024 var þörfin fyrir skammtímadvöl á Vesturlandi rædd og bókað í fundargerð að stjórnendur hvers sveitarfélags myndu kortleggja þörfina á úrræðinu.

Á fundi stjórnenda velferðarþjónustu þann 11.12.2024 var það bókað að hvert sveitarfélag myndi óska eftir að fá heimild frá sínu fagráði varðandi áframhaldandi samtal. Markmið samtalsins yrði að fara saman í uppbyggingu á skammtímadvöl á Vesturlandi.

Á fundi stjórnenda velferðarþjónustu þann 08.01.2025 var bókað að stjórnendur væru að ræða við sín fagráð og fengið góðan meðbyr. Á fundinum var lagt upp með að allir stjórnendur væru komnir með heimild eða bókun þess efnis að halda áfram vinnslu verkefnisins fyrir næsta fund hópsins.

Þann 15.01.2025 var bókað á fundi félagsmálanefndar Dalabyggðar að nefndin fagni því að til skoðunar sé að koma á fót skammtímadvöl á Vesturlandi.

Á fundi stjórnenda í velferðarþjónustu þann 12.02.2025 var bókað að stjórnendur hefðu farið í greiningu á þörfinni í sínum sveitarfélögum og að umræða um skammtímavistun myndi halda áfram á næsta fundi. Þá var einnig rætt um möguleika á húsnæði fyrir úrræðið á Vesturlandi.

Á fundi stjórnenda í velferðarþjónsutu þann 10.03.2025 var ákveðið að leggja upp með að fyrir næsta fund verði stjórnendur búnir að kortleggja stöðuna á sínu svæði og þörfina fyrir úrræðið.

Á þessum tímapunkti í ferlinu fóru stjórnendur jafnframt að ræða almennt um þá húsnæðismöguleika sem í boði væru undir úrræðið á svæðinu. Stjórnendum bárust upplýsingar um að húsnæðið að Holti í Borgarbyggð gæti mögulega komið til skoðunar en það er í eigu Þroskahjálpar Vesturlands.

Þann 19.06.2025 fór hluti stjórnenda í heimsókn í skammtímadvölina Móaflöt sem staðsett er í Garðabæ. Fulltrúar staðarins tóku á móti hópnum og veittu mikilvæga innsýn inn í rekstur og fyrirkomulag úrræðisins en þar dvelja börn og ungmenni til 18 ára aldurs. Í kjölfar heimsóknarinnar var bókað að haft yrði samband við formann Þroskahjálpar á Vesturlandi með það að markmiði að óska eftir sameiginlegum fundi.

Þann 8.10.2025 var fundur með stjórnendum í velferðarþjónustu og formanni Þroskahjálpar á Vesturlandi. Þar voru skoðaðir möguleikar á samstarfi við Þroskahjálp og húsnæðið að Holti. Þar kom fram að Þroskahjálp á Vesturlandi hefði áhuga á samstarfi við sveitarfélögin á Vesturlandi. Eins kom það fram í samtalinu að aðrir aðilar hefðu einnig áhuga á að nýta Holt undir rekstur en að Þroskahjálp hefði áhuga á því að húsnæðið yrði uppfært með það í huga að hægt yrði að nýta það fyrir skammtímadvöl fyrir börn og ungmenni á Vesturlandi. Þá var bókað að stjórnendur myndu kynna málið fyrir sínum fagráðum og að útbúin yrði viljayfirlýsing ásamt því að áframhaldandi samtal yrði við Þroskahjálp.

Viljayfirlýsing sveitarfélaga við Þroskahjálp var lögð fyrir félagsmálanefnd Dalabyggðar þann 3.12.2025. Félagsmálanefnd lýsti yfir ánægju með að þetta skref sé tekið og styður það að Dalabyggð verði aðili að viljayfirlýsingunni. Sama dag, þann 3.12.2025 skrifaði Dalabyggð undir sameiginlega viljayfirlýsingu ásamt sveitarfélögum á Vesturlandi og var lagt til að verkefnahópur myndi skila niðurstöðum sínum þann 13.02.2026.

Í kjölfar undirritunar hafa stjórnendur á Vesturlandi fundað nánast vikulega með það að markmiði að útfæra verkefnið nánar í samræmi við efni viljayfirlýsingarinnar. Vinnan hefur einkum snúið að mótun þjónustunnar og skilgreiningu helstu forsendna fyrir uppbyggingu skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi.


Í þessari vinnu hefur verið lögð áhersla á að móta heildstæða skammtímadvöl sem uppfyllir gildandi lög og reglugerðir um málefni fatlaðs fólks, tryggir jafnt aðgengi barna og fjölskyldna óháð búsetu og byggir á faglegum gæðaviðmiðum. Þá er vinna hafin við að móta sameiginlega nálgun að framtíðarfyrirkomulagi reksturs, þar á meðal fjármögnun þjónustunnar á grundvelli fjölda þjónustuþega.

Þann 27.01.2026 funduðu stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi með formanni og stjórnarformanni Þroskahjálpar á Vesturlandi. Farið var yfir stöðu mála, teikningar af húsnæðinu kynntar og lagðar til þær breytingar sem stjórnendur telja nauðsynlegt að ráðast þurfi í.

Næstu skref í verkefninu eru að fara í vettvangsferð að Holti með fulltrúum Þroskahjálpar, SSV og skipulagssviðum sveitarfélaga. Þar er markmiðið að skoða aftur aðstæður m.a með tilliti til aðgengismála.


Félagsmálanefnd bindur vonir við að skammtímadvöl fyrir fötluð börn geti opnað sem fyrst á Vesturlandi.

Samþykkt samhljóða.

10.4. 2501027 - Farsæld barna í Dalabyggð
Farið yfir stöðu farsældarmála í Dalabyggð.
Verkefnastjóri fjölskyldumála fór yfir stöðu mála.
10.5. 2411008 - Gott að eldast á Vesturlandi
Farið yfir stöðu verkefnisins.
Stofnað hefur verið MÓMA teymi (móttöku- og matsteymi) í Dalabyggð.
Í teyminu sitja fulltrúar frá Dalabyggð, HVE og Silfurtúni sem munu fara sameiginlega yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun.
11. 2501005 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2025
12. 2501003 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2025
Mál til kynningar
13. 2601024 - Skýrsla um orkumál á rafkynntum svæðum á Vesturlandi
Til máls tók: BÞ
14. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026
Til máls tók: BÞ
264 fundur 12. febrúar 2026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 

Til bakaPrenta