| |
1. 2312007 - Ólafsdalur - breyting á aðalskipulagi og breyting á deiliskipulagi | |
Framlögð til afgreiðslu, skv. 3. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga, tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032 í Ólafsdal og tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ólafsdals. Tillögurnar báðar voru kynntar á vinnslustigi frá 25. júní til 25. júlí 2024 og bárust umsagnir frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands, Ólafsdalsfélaginu og Vinum íslenskrar náttúru (við deiliskipulagstillögu). Vegna athugasemda á vinnslutíma var gerð breyting varðandi skógræktarsvæði. Svæðin er nefnd svæði fyrir endurheimt fjölbreytts gróðurfars og er gróðursvæðum fækkað og þau minnkuð frá því sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032 og samsvarandi breytingu á deiliskipulagi Ólafsdals til auglýsingar. Skipulagsfulltrúa er falið að senda tillögu að aðalskipulagsbreytingu til athugunar Skipulagsstofnunar, sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
| | |
|
2. 2110026 - Deiliskipulag fyrir jörðina Skoravík | |
Framlögð tillaga að deiliskipulagi Skoravíkur til afgreiðslu skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga, sbr. erindi dags. 1. október 2024. Deiliskipulagið tekur til alls lands jarðarinnar Skoravíkur á Fellsströnd og setur skilmála um uppbyggingu íbúðarhús á jörðinni ásamt gestahúsum og þjónustubyggingu til að hýsa tæki, tól og annað sem tengist starfsemi á jörðinni. Aðkoma að skipulagssvæðinu er um heimreið frá Klofningsvegi og liggur fyrst um jarðirnar Skóga og Hellu áður en vegslóðinn kemur að Skoravíkurá. Fyrir liggur samþykki landeiganda jarðanna Skóga og Hellu um aðkomuna um núverandi vegslóða gegnum jarðirnar. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga með fyrirvara um að lögð verði fram tillaga að reiðleið sem kveðið er á um í gildandi aðalskipulagi.
| | |
|
3. 2409033 - Hvammar deiliskipulag | |
Nefndin samþykkir að leggja fram komna tillögu með áorðnum breytingum fyrir sveitarstjórn. | | |
|
4. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal | |
Nefndin fór yfir fyrstu drög að tillögum og samþykkir að vinna í þeim á milli funda. | | |
|
5. 2409022 - Merking stíga | |
Nefndin tekur jákvætt í verkefnið og felur sveitarstjóra að hafa samband við stjórn hestamannafélagsins til að kanna hug þess. | | |
|
6. 2409034 - Fornleifaskráning í Dalabyggð | |
Erindið lagt fram á fundinum. Nefndin tekur vel í að eiga samtal við bréfritara. | | |
|
7. 2101044 - Loftslagsstefna Dalabyggðar | |
Nefndin sér ekki ástæðu til breytinga á stefnunni. | | |
|
8. 2408013 - Vindorkuver í landi Garpsdals umhverfisskýrsla | |
Nefndin samþykkir umsögnina fyrir sitt leyti. | | |
|
9. 2408011 - Vindorkuver í landi Sólheima umhverfisskýrsla | |
Nefndin samþykkir umsögnina fyrir sitt leyti. | | |
|
10. 2410002 - Umgengni á lóðum Dalabyggðar | |
Nefndin fagnar erindinu og biður starfsmenn Dalabyggðar að bregðast við. | | |
|
11. 2410001 - Þjóðvegur gegn um Búðardal - Vesturbraut | |
Nefndin þakkar erindið. Hér er aðeins um að ræða fyrsta fasa af stærra verkefni sem teygir sig norður fyrir og suður fyrir þéttbýlið með ýmsum ráðstöfunum. Nefndin bendir á að allar framkvæmdirnar eru á veghelgunarsvæði Vegagerðarinnar, sem krefst ekki framkvæmdaleyfis. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að ná niður aksturshraða í gegnum þéttbýlið með öllum tiltækum ráðum, þar á meðal þessum. | | |
|