| |
| 1. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II | |
Áhrif Viðauka II á fjárhagsáætlun ársins 2026 eru að kostnaður í A-sjóði hækkar um 2,1 m.kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé og samtals eignfærslur hækka um 62,6 m.kr. sem kemur til lækkunar á handbæru fé. Rekstrarafkoma ársins 2026 er áætluð m.t.t. Viðauka II neikvæð sem nemur 18,5 m.kr.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu að Viðauka II samhljóða.
Til máls tóku: Bjarki og Skúli | | Viðauki_2_v2..pdf | | |
|
| 2. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun | |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.
Til máls tók: Bjarki | | |
|
| 3. 2604010 - Gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026 | |
Sveitarstjórn samþykkir tillögu að uppfærðri gjaldskrá samhljóða.
Til máls tók: Bjarki | | |
|
| 4. 2503006 - Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar | |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar í Búðardal.
Til máls tók: Bjarki | | |
|
| 5. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð | |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samkomulag.
| | |
|
| 6. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla | |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samkomulag.
| | |
|
| 7. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila - viljayfirlýsing | |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að viljayfirlýsingu.
Til máls tók: Bjarki | | |
|
| 8. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun | |
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta samþykkt umhverfis- og skipulagsnefndar um aðalskipulagsbreytingu.
Til máls tók: Guðlaug | | Samantekt umsagna við auglýsta tillögu og viðbrögð.pdf | | Bréf Skipulagsstofnunar v.breytingu á aðalskipulagi vegna vatnsmiðlunar, Hvanná..pdf | | |
|
| |
| 9. 2604002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 349 | 9.1. 2604010 - Gjaldskrá Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Dalabyggðar 2026 Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar. | 9.2. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12 Byggðarráð þakkar framkomið erindi. Erindið rætt og vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar. | 9.3. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 Framlagt minnisblað um stöðu mála. Byggðarráð tekur jafnframt undir bókun atvinnumálanefndar þar sem nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu. | 9.4. 2604011 - Laun vinnuskóla 2026 Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu að hækkun launataxta vinnuskóla.
Ljóst er að ákveðin óvissa er uppi varðandi vinnuskóla Dalabyggðar í sumar í ljósi þess að ekki hafa neinar umsóknir um umsjón skólans borist, er það áhyggjuefni og ljóst að mál þurfa að skýrast á allra næstu dögum. | 9.5. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar sveitarstjórnar. | 9.6. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með áorðnum viðauka og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn. | 9.7. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla | 9.8. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | 9.9. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur Það er ljóst að ekki verður aðhafst frekar á því kjörtímabili sem senn er á enda varðandi rekstrar- og eignarhald á Félagsheimilinu Tjarnarlundi. | 9.10. 2604020 - Umsókn um undanþágu vegna fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni um undanþágu um fjölda hunda vegna atvinnustarfsemi. | 9.11. 2604023 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. | 9.12. 2604026 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. | 9.13. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal Byggðarráð þakkar fulltrúum Byggðastofnunar fyrir fundinn. | 9.14. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila Byggðarráð þakkar framkomið erindi, samþykkt að fela sveitarstjóra að ræða við bréfritara og fá fram frekari upplýsingar um m.a. aðgengi og innra skipulag húsnæðis þess sem um ræðir. | 9.15. 2503006 - Úrgangsþjónusta - verðskrá söfnunarstöðvar Kristján Ingi kynnti stöðu mála. Byggðarráð þakkar Kristjáni Inga fyrir yfirferðina og fól honum og sveitarstjóra að útfæra tillögu að gjaldskrá söfnunarstöðvar úrgangs í Búðardal fyrir fund sveitarstjórnar 13. maí n.k. | 9.16. 2504018 - Afskriftabeiðnir Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni. | 9.17. 2604025 - Ósk um að taka í fóstur lóðina Stekkjarhvammur 3 Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að umsækjendur fái að taka lóðina í fóstur og verði þau afnot framlag sveitarfélagsins að þessu jákvæða verkefni. | 9.18. 2602017 - Starfsmannamál | 9.19. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II - rekstur á fyrsta ársfjórðungi Rætt um stöðuna á rekstri og hvað þurfi að taka tillit til við gerð Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026.
Varðandi framkvæmdaáætlun yfirstandandi árs þá er ljóst að bæta þarf í vegna lokafrágangs við Íþróttamiðstöð og vegna hitaveituframkvæmda á Laugum. Samþykkt að vísa til gerðar Viðauka II við fjárhagsáætlun 2026. | | |
|
| 10. 2604005F - Byggðarráð Dalabyggðar - 350 | | Til máls tók: Einar | 10.1. 2604015 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki II Byggðarráð samþykkir samhljóða framkomna tillögu að Viðauka II og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
| 10.2. 2209012 - Laugar í Sælingsdal - samskipti | 10.3. 2405006 - Húsnæði viðbragðsaðila Sveitarstjóra falið að taka málið áfram í anda umræðu á fundinum. | 10.4. 2603004 - Útboð tæming á rotþróm 2026-2028 | 10.5. 2605006 - Rarik, umsóknir um lóðir fyrir veitumannvirki 2026 Byggðarráð samþykkir úthlutun beggja lóðanna, þ.e. Ásuhvamms 1a og Miðbrautar 4. | 10.6. 2605009 - Umsókn um lóð Iðjubraut Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir umsókn um lóð með fyrirvara um þörf á deiliskipulagsbreytingu sem lögð verður fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd á næsta fundi. | 10.7. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag með áorðnum breytingum og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn. | 10.8. 2602017 - Starfsmannamál Farið yfir stöðu mála. Sveitarstjóra falið að vinna áfram að málum í anda umræðu á fundinum.
Þuríður vék af fundi undir hluta af þessum lið. | | |
|
| 11. 2604004F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 150 | | Til máls tók: Ingibjörg | 11.1. 2604022 - Hver vegur að heiman Fræðslunefnd þakkar Kristjáni fyrir góða yfirferð og tekur undir þau sjónarmið sem nefnd eru varðandi mikilvægi átthagafræðslu og annarra þátta varðandi sjálfsmynd íbúa og samfélagsins. Spennandi verður að sjá framvindu þessa verkefnis á næstu misserum. | 11.2. 2010009 - Akstur framhaldsskólanema úr Búðardal Tilraunaverkefni það sem fékkst stuðningur við er nú á enda og ljóst að ekki er grundvöllur fyrir að svo stöddu að framhald verði á. | 11.3. 2603021 - Leikjanámskeið 2026 Fram er komin hugmynd frá Eiríksstöðum varðandi utanumhald um sumar- og leikjanámskeið í sumar og vill fræðslunefnd lýsa ánægju sinni með þann áhuga sem þar birtist. Verið er að skoða með grundvöll þess samstarfs og kemur í ljós á næstu dögum hvert framhaldið verður.
Einnig rætt um stöðuna hvað vinnuskóla í sumar varðar. | 11.4. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála. Búið er að auglýsa laus störf kennara og er umsóknarfrestur opinn, verið er að skoða þörf fyrir auglýsingu um önnur störf. Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.
Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra að ganga frá því til birtingar. | 11.5. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2025 Sveitarstjóri kynnti stöðu mála í fjarveru aðstoðarleikskólastjóra.
Skólastjóri ræddi um viðhaldsþörf á skólahúsnæðinu.
Vinna við námsvísi næsta skólaárs er á lokametrunum. Núna eru 28 börn á leikskólanum og útlit fyrir að óbreyttu að frá hausti verði þau 25. 5 börn færast í grunnskólanum af þeim sem nú eru á leikskólanum.
Fræðslunefnd samþykkir fyrir sitt leiti framkomna tillögu að skóladagatali og felur skólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra að ganga frá því til birtingar. | | |
|
| 12. 2604001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 164 | 12.1. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun Samþykkt með lagfæringum eftir athugasemdir umsagnaraðila, með 1. mgr 32. greinar Skipulagslaga til hliðsjónar og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn. | 12.2. 2604002 - Umsókn um byggingarleyfi á lokahúsi Samþykkt með fyrirvara um lok grenndarkynningar og samþykkt Vegagerðarinnar. | 12.3. 2308002 - Deiliskipulag í Búðardal - Iðjubraut Nefndin samþykkir að fela skipulagsfulltrúa, í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir og umræður á fundinum, að gera óverulega deiliskipulagsbreytingu og kynna áformin fyrir RARIK, fyrir næsta fund nefndarinnar. | 12.4. 2604008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Álftafirði Samþykkt samhljóða. | 12.5. 2602010 - Umsókn um stofnun lögbýlis Frestað vegna ónógra gagna, skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | 12.6. 2604009 - Erindi vegna gatnagerðar við Vesturbraut 8, 10 og 12 Nefndin þakkar erindið. Leggur hún til að farið verði í þarfagreiningu og yfirferð lóðaleigusamninga, með það að markmiði að bæta úr. | 12.7. 2605002 - Fyrirhuguð uppsetning hleðslustöðva við Vesturbraut 15 Nefndin leggst ekki gegn áformunum. | 12.8. 2604007 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í Dalakoti Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna. | 12.9. 2605011 - Umsókn um byggingarleyfi að Lyngbrekku Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna og gæta samræmis við lög um dýravelferð. | 12.10. 2604018 - Umsókn um stofnun lóðar að Háafelli Nefndin samþykkir framlagða umsókn. | 12.11. 2604017 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 2 gámum á Vesturbraut 15 Nefndin samþykkir stöðu gáma til eins árs, í samræmi við reglur. | 12.12. 2604016 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir gestahúsi að Hömrum Nefndin samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að afla fullnægjandi gagna. | 12.13. 2603003 - Refa og minnkaveiði 2026-2028 | 12.14. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 | | |
|
| 13. 2510005F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 57 | 13.1. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 Búið að funda með Rauða krossinum í Dölum og Reykhólasveit, Björgunarsveitinni Ósk og Slysavarnadeild Dalasýslu. Teknar saman spurningar og ábendingar nefndarmanna til Vegagerðarinnar. Erindi til viðbragðsaðila ítrekuð varðandi mönnun og þörf. Það má ekki vanmeta fyrirfram aðsókn vegna atburðarins í Dalabyggð. Nefndin hvetur íbúa til að fylgjast með og jafnframt nýta tækifærin sem skapast við móttöku og þjónustu við gesti á svæðinu. | 13.2. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal Farið yfir stöðuna m.a. þær upplýsingar sem fram koma í frétt frá 24. mars sl. á vef Dalabyggðar. Nefndin ítrekar við áhugasama aðila sem vilja tryggja sér bil í tilvonandi atvinnuhúsnæði að hafa samband sem fyrst við verkefnastjóra Byggðastofnunar, Rúnar Þór Guðbrandsson, í síma 861-4000 eða með tölvupósti á runar@dugandi.is | 13.3. 2603015 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2026 Lagt fram til kynningar.
Verkefnastjóra falið að miðla lausum störfum í Dalabyggð til Vinnumálastofnunar. | 13.4. 2604021 - Óstaðbundin störf viðhorf, væntingar og búseta - skýrsla Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 14. 2603006F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 49 | 14.1. 2511011 - Bæjarhátíð 2026 Rætt um hugmyndir og mögulega viðburði á hátíðarhöldunum í sumar. Fyrstu drög að dagskrá er samblanda atriða og dagskárliða fyrir breiðan hóp. Unnið áfram að skipulagi. | 14.2. 2604006 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026 Nefndin upplýst um að BARNÓ verði í haust. Undirbúningur verði hafinn eftir sumarið. | | |
|
|
| 16. 2601006 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2026 | | Fundur-242..pdf | | |
|
| 17. 2605007 - Aðalfundur menningar og framfarasjóðs Dalasýslu | | |
|
| |
| 18. 2604014 - Aðalfundarboð Landskerfis bókasafna 2026 | | |
|
| 19. 2605004 - Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku | | Raforkueftirlit_SSKS_jöfnunargjald_alþingi_april2026..pdf | | |
|
|
| 21. 2605014 - Staða húsnæðisuppbyggingar í Dalabyggð | |
| HMS yfirlit - Dalabyggð.pdf | | |
|
| 22. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026 | | Til máls tók: Bjarki | | 269. fundur 13. maí 2026.pdf | | |
|
| 23. 2605013 - Kjörtímabilið 2022 - 2026 | |
Til máls tóku: Einar, Skúli (2), Garðar, Þuríður, Eyjólfur; Guðlaug, Bjarki og Ingibjörg.
Sveitarstjórn þakkar gott samstarf við starfsfólk, nefndarfólk og aðra þá sem að málum hafa komið með einum eða öðrum hætti á kjörtímabilinu.
Framtíðin í Dölum er björt !
| | |
|