| |
| 1. 2606025 - Skipun varaformanns og ritara | |
| Samþykkt samhljóða | | |
|
| 2. 2606026 - Fundartími fræðslunefndar | |
| Samþykkt samhljóða | | |
|
| 3. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu | |
Fræðslunefnd Dalabyggðar leggur til við sveitarstjórn að hefja formlegt samtal og viðræður við Barnaverndarþjónustu Vesturlands um mögulegt samstarf um rekstur barnaverndarþjónustu, með það að markmiði að efla faglega þjónustu við börn og fjölskyldur og tryggja að hún uppfylli þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt gildandi lögum og viðmiðum.
Málinu vísað til sveitarstjórnar
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 | |
Fræðslunefnd telur mikilvægt að hafin verði vinna við breytingar á samþykktum um stjórn Dalabyggðar í samræmi við framangreint. Með slíkri breytingu er leitast við að efla heildarsýn og samþættingu í skyldum málaflokkum, þar sem verkefni skarast í auknum mæli í framkvæmd. Breytingunni er ætlað að einfalda stjórnsýslu, draga úr tvíverknaði og bæta yfirsýn, sem stuðlar að skilvirkari ákvarðanatöku og hagkvæmari rekstri.
Málinu vísað til sveitarstjórnar til fyrri umræðu.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 5. 2606001 - Reglur um auglýsingar í íþróttamannvirkjum | |
Fræðslunefnd samþykkir framlögð drög að uppfærðum reglum og vísar málinu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 6. 2606017 - Reglur um styrki til tónlistanáms utan Dalabyggðar | |
Fræðslunefnd felur sveitarstjóra að endurskoða reglur til samræmis við umræður á fundi og leggja aftur fyrir fræðslunefnd.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 8. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 | |
Starfandi skólastjóri fór yfir skólastarf síðasta vetrar og þau verkefni sem eru framundan áður en kennsla hefst í haust. Ljóst er að endurnýja þarf búnað í grunnskóladeild m.a. borð og stóla í kennslustofur, kaupa sófasett og vinna ákveðna þarfagreiningu á húsbúnaði og nýtingu rýma.
Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnin verði þarfagreining í grunnskóladeild í samráði við skólastjóra í haust þar sem m.a verður farið yfir búnaðarþörf og aðbúnað. Að horft verði til þeirrar vinnu við fjáhagsáætlunargerð í haust.
| | |
|
| |
| 7. 2606032 - Ráðning skólastjóra | |
Fræðslunefnd fagnar ráðningu Katrínar Kristjánsdóttur í starf skólastjóra Auðarskóla og telur hana vel til starfans fallna í ljósi reynslu og þekkingar á skólastarfinu. Nefndin óskar Katrínu velfarnaðar í starfi.
| | |
|