| |
1. 2108016 - Notkun á íþróttahúsinu á Laugum | |
Þar sem Íþróttafélagið Undri er orðið aðili að UDN gilda siðareglur og viðbragðsáætlanir þess einnig fyrir félagið. Byggðarráð samþykkir að veita Íþróttafélaginu Undra aðgang að íþróttamannvirkjum innan þess ramma sem kveðið er á um í samstarfssamningi Dalabyggðar og UDN en hámarksstyrkur vegna aðgangs að íþróttamannvirkjum getur numið kr. 1.000.000 á ári. Leitast skal við að notkun sé sem mest á opnunartíma Sælingsdalslaugar en öll notkun skal vera í samráði við forstöðumann Sælingsdalslaugar. Samþykkt samhljóða. | | |
|
2. 2107024 - Uppsögn á samningi vegna Vinlandsseturs | |
Í ljósi þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 eru gerðar eftirfarandi breytingar á samningi við Vínlandssetur ehf. vegna reksturs Vínlandsseturs. 1. Ekki verður greitt afgjald til loka árs 2022. 2. Hálft gjald, miðað við upprunalegan samning, verði greitt til loka árs 2023. 3. Fallið verður frá reikningi vegna rekstrarkostnaðnaðar vegna upphafs árs 2021 vegna afnota Auðarskóla af húsnæði Vínlandsseturs. 4. Gengið verði í viðgerðir til að laga að ekki blási inn í norðurhluta hússins. 5. Fyrirkomulag á viðhaldi verði með sama hætti og er í samningi um rekstur Eiríksstaða. 6. Á árinu 2023, þegar kemur að greiðslu afgjalds, greiðist það samhliða uppgjöri virðiskaukaskatts sex sinnum á ári. Samþykkt samhljóða. | | |
|
3. 2107023 - Uppsögn á samningi vegna Eiríksstaða | |
Í ljósi þeirra aðstæðna sem skapast hafa vegna Covid-19 er samningur við Iceland Up Close ehf. um reks tur Eiríksstaða framlengdur til 30. september 2023. Afgjald til Dalabyggðar verður 7% af leiðsögn og 6% af öðrum tekjum. Afgjald greiðist sex sinnum á ári samhliða uppgjöri virðisaukaskatts. Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
4. 2107021 - Laugar í Sælingsdal - tilboð | |
| |
|