| |
| 1. 2603010 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts 2026 | |
| Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. | | |
|
| 2. 2603014 - Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts | |
| Sveitarstjóra falið að ganga frá málinu í samræmi við reglur um styrk til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka. | | |
|
| 3. 2603012 - Afskriftarbeiðni | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna beiðni. | | |
|
| 4. 2603020 - Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega endurskoðun | |
| Sveitarstjóra falið að koma með tillögu að uppfærðum reglum og fyrirkomulagi þessarar þjónustu á næsta fund byggðarráðs. | | |
|
| 5. 2602015 - Samræmdar greiðslur til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi | |
Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi fagaðila frá hverju sveitarfélagi til að yfirfara gjaldskrár fyrir greiðslur til stuðningsfjölskyldna og koma fram með tillögu að samræmdri gjaldskrá fyrir svæðið. Verkefnahópurinn hittist í alls 8 skipti, þar sem skoðað var hvernig greiðslum til stuðningsfjölskyldna sé háttað hjá misfjölmennum sveitarfélögum á landinu.
Tillaga verkefnahópsins er eftirfarandi: 1. flokkur: 50.634 kr. pr. sólarhring 2. flokkur: 43.039 kr. pr. sólarhring 3. flokkur: 32.912 kr. pr. sólarhring 4. flokkur 25.317 kr. pr. sólarhring
Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
| | |
|
| 6. 2602014 - Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags | |
| Byggðarráð samþykkir framkomna umsókn. | | |
|
| 7. 2501029 - Skammtímadvöl barna | |
Byggðarráð samþykkir aðkomu Dalabyggðar að verkefninu og að framlag Dalabyggðar verði 160.000 kr.
Vísað til staðfestingar í sveitarstjórn Dalabyggðar. | | |
|
| 8. 2603003 - Refa og minkaveiði 2026-2028 | |
| Byggðarráð samþykkir aðkomu Dalabyggðar að verkefninu í þeim anda sem um er rætt. | | |
|
| 9. 2603017 - Pósthlaupið 2026 | |
| Byggðarráð samþykkir að gert verði samkomulag við umf. Ólaf pá um aðkomu Dalabyggðar að þessu jákvæða verkefni. | | |
|
| 10. 2603019 - Söfnun fjögurra Holter hjartasírita og augnlampa | |
| Byggðarráð sér sér ekki fært að verða við framkominni beiðni en óska Hollvinasamtökum góðs gengis í sínum mikilvægu verkefnum. | | |
|
| 11. 2501001 - Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal | |
| Sveitarstjóri kynnti stöðu mála. | | |
|
Jóhanna María Sigmundsdóttir og Kristján Ingi Arnarsson verkefnastjórar sátu fundinn undir lið 12.
| | 12. 2509009 - Almyrkvi á sólu 12.08.2026 | |
Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis. Í Dalabyggð mun þessi atburður sjást vel frá Skógarströnd, Fellsströnd og Skarðsströnd. Sveitarfélagið tekur þátt í samráðsvettvangi Vesturlands vegna almyrkvans og mun leggja megin áherslu á öryggismál í samstarfi við viðbragðsaðila og Vegagerðina. Þjónusta við gesti s.s. gisting, veitingar, salerni o.s.frv. verða á forræði þeirra sem vilja bjóða upp á hana og ber að fara eftir reglum þar um.
Byggðarráð þakkar þeim Jóhönnu Maríu og Kristjáni Inga fyrir þeirra innlegg og lýsir ánægju með hvað nú þegar er búið að gera varðandi þann undirbúning sem að sveitarfélaginu mögulega snýr í því verkefni sem um ræðir. | | |
|
Á fundinn mættu í gegnum fjarfundarbúnað Ingi Ólafsson og Halla Steinólfsdóttir til viðræðna við byggðarráð.
| | 13. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur | |
| Byggðarráð þakkar þeim Inga og Höllu fyrir samtalið og væntir gagna frá þeim varðandi mögulega starfsemi í félagsheimilinu fyrir næsta fund byggðarráðs í lok apríl. | | |
|
| 14. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð | |
| Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka í anda umræðu á fundinum. | | |
|
| 15. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla | |
| Sveitarstjóra falið að ræða við verktaka í anda umræðu á fundinum. | | |
|
| 16. 2602016 - Fjárhagsáætlun 2026- Viðauki I | |
Í tillögunni felast breytingar á rekstrarliðum til kostnaðarhækkunar í A-sjóði um 23.850 m.kr.
Áætluð afkoma A og B hluta á árinu 2026 er um 16.315 m.kr. í rekstrartap.
Samþykkt samhljóða og vísað til staðfestingar í sveitarstjórn. | | Viðauki_1.pdf | | |
|
| 17. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025 | |
| |
|
| 18. 2602017 - Starfsmannamál | |
| |
|
| 19. 2602018 - Laun og launakjör kjörinna fulltrúa | |
| Samþykkt að vísa til afgreiðslu sveitarstjórnar. | | |
|
| 20. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal | |
| |
|