| |
| 1. 2609003 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir vindmyllu að Hömrum í Laxárdal | |
| Vindmyllan er innan stærðarviðmiða í aðalskipulagi. Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur skipulags- og byggingafulltrúa að afgreiða þegar ítarlegri gögn liggja fyrir. | | |
|
| 2. 2609023 - Umsókn um stofnun lóðar í Hundadal - Grímsbrekka | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar. | | |
|
| 3. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur með hliðsjón af nýjustu fáanlegu loftmyndum (google maps) að jarðraskið frá árinu 2025 nái aðeins út fyrir lóðarmörk lóðar C til austurs. Nefndin hvetur lóðareiganda lóðar C til að lagfæra jarðraskið utan lóðamarka.
Varðandi tilfærslu byggingareits, þá kemur fram í greinargerð breytingartillögu svohljóðandi rökstuðningur á ástæðu breytingarinnar: Á núverandi deiliskipulagi er byggingarreitur fyrir lóð C illa staðsettur vegna votlendis og halla í landi. Með breytingu deiliskipulags er byggingarreiturinn færður á þurrlendi og meiri flata. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að sjónræn áhrif breytingarinnar á lóð G séu ekki svo mikil eða neikvæð að hafna beri tilfærslu byggingareitsins. | | |
|
| 4. 2609007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - fiskiteljari í Laxá | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdarleyfis og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið. | | |
|
| 5. 2610007 - Umhverfismatsskýrsla skógrækt í landi Ljárskóga | |
| Nefndin hefur kynnt sér skýrsluna og skipulagsfulltrúi fer yfir drög að umsögn. Skipulagsfulltrúa falið að klára umsögn og skila inn. | | |
|
| 6. 2610009 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar og styrkingar á veg 60, Haukadalsá-Erpsstaðir | |
| Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið þegar samþykki allra landeiganda liggur fyrir. | | |
|
| 7. 2610008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar og styrkingar á Jaðarsbraut í Saurbæ | |
| Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir. | | |
|
| |
| 8. 2608008 - Umsókn um byggingarleyfi Kaldakinn | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | | |
|
| 9. 2609019 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu að Stóra-Vatnshorni | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | | |
|
| 10. 2609028 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 178.2 m2 skemmu að Hamri | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | | |
|
Viðar Þór Ólafsson kemur inná fundinn undir þessum lið.
| | 11. 2603003 - Refa og minkaveiði 2026-2028 | |
| Viðar Þór kemur fyrir fundinn og fer yfir stöðuna. Nefndin felur honum og formanni nefndar að kalla veiðimenn til fundar til að ræða fyrirkomulag og kjör. | | |
|
| 12. 2610006 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu að Þurranesi | |
| Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða þegar fullnægjandi gögn hafa borist. | | |
|